Fréttir

true

Stykkishólmsbær leiðréttir fréttatilkynningu Breiðafjarðarnefndar

Í fréttatilkynningu Breiðafjarðarnefndar, frá 26. janúar síðastliðnum og birtist í Skessuhorni sem kom út í gær, er fullyrt að af umsögn Stykkishólmsbæjar við skýrslu nefndarinnar um framtíð Breiðafjarðar megi ráða að sveitarfélagið „sé ekki tilbúið í samstarf um frekari verndun.“ Stykkishólmsbær hefur sent frá sér tilkynningu þar sem þetta orðalag Breiðafjarðarnefndar er leiðrétt: „Framangreind fullyrðing…Lesa meira

true

Hrossahólf víða orðin vatnslaus

Vegna viðvarandi frostatíðar eru hólf þar sem útigangshross ganga nú víða orðin vatnslaus og ekki breytinga að vænta á næstu dögum. Matvælastofnun vekur athygli á skyldum eigenda og umráðamanna hrossa að sjá til þess að útigangi sé séð fyrir aðgangi að vatni eða snjó til að tryggja heilsu þeirra og velferð.Lesa meira

true

Fékk í skrúfuna við veiðar á Breiðafirði

Línuskipið Jóhanna Gísladóttir GK hafði stutt stopp í Ólafsvík í gær þar sem skipið hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og komu kafarar að sunnan með búnað til að skera úr skrúfu skipsins. Að sögn Sigurðar Sveins Guðmundssonar hafnarvarðar tók verkið ekki langan tíma og hélt Jóhanna fljótlega til veiða á Breiðafirði.Lesa meira

true

Kannabisneysla á málaskrá lögreglu

Síðastliðinn mánudag stöðvuðu lögreglumenn för ökumanns á Akranesi sem við athugun reyndist undir áhrifum kannabisefna. Hann var handtekinn og fór mál hans hefðbundna leið, að sögn lögreglu. Á fimmtudag í liðinni viku átti lögregla erindi við aðila í Ólafsvík. Lögreglumennirnir fundu þá mikla kannabislykt. Húsráðandi heimilaði leit og fundust fíkniefni í húsinu. Var hann kærður…Lesa meira

true

Tveir með Covid á Vesturlandi

Samkvæmt Lögreglunni á Vesturlandi voru aðeins tveir einstaklingar smitaðir og í einangrun vegna Covid-19 á Vesturlandi í gær. Þá var einn í sóttkví. Allir þessir einstaklingar eru í Borgarnesi. Í gær greindust tveir smitaðir innanlands og voru þeir báðir í sóttkví. Nokkuð mörg sýni voru tekin innanlands í gær eða rúmlega 900. Dagana þar á…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Fjölni á heimavelli

Snæfell tapaði með átta stigum gegn Fjölni þegar liðin mættust í Stykkishólmi í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gær. Fjölniskonur komu sterkar til leiks og voru komnar fjórum stigum yfir í lok fyrsta leikhluta, 22-18. Ekkert markvert átti sér stað í öðrum leikhluta og Fjölnir hélt áfram að leiða og þegar haldið var til…Lesa meira

true

Tap gegn Haukum í Fjósinu

Skallagrímur tapaði fyrir fyrir Haukum þegar liðin mættust í Borgarnesi í gærkvöldi í Domino‘s deild kvenna í körfubolta. Skallagrímskonur komust yfir á fyrstu tveimur mínútum leiksins en sú forysta entist stutt og eftir fjórar mínútur voru Hafnfirðingar búnir að jafna. Haukar tóku þá alveg við stjórninni á vellinum og voru komnar með átta stiga forystu…Lesa meira

true

Fimmtíu ár frá því Brákarhlíð hóf starfssemi

Næstkomandi sunnudag, 31. janúar 2021, verða liðin 50 ár frá vígsludegi Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi, nú Brákahlíð. Afmælisins og starfseminni voru gerð ítarleg skil í afmælisblaði sem Brákarhlíð gaf út í október síðastliðnum í samstarfi við Skessuhorn. Ekki verður um nein teljandi hátíðarhöld að ræða að sinni í tilefni þessa merka áfanga en stefnt er…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar fluttur í nýtt húsnæði

Fiskmarkaður Snæfellbæjar í Ólafsvík flutti starfsemi sína úr Bankastræti rétt fyrir áramót og í 1.600 fermetra húsnæði sem áður hýsti Fiskiðjuna Bylgju. Andri Steinn Benediktsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir í samtali við Skessuhorn að gamla húnæðið sem þeir voru í hafi fyrir löngu verið orðið sprungið utan af starfseminni. „Nýja húsnæðið býður upp á mikið betra…Lesa meira

true

Sjúkrabíll í forgangi fyrir sofandi mann

Ökumaður nokkur sem var á leið norður í land í liðinni viku taldi veginn vera ófæran. Hann lagði sig því í bílnum á bílastæði í Borgarnesi. Vegfarendur tóku eftir honum þar sem hann svaf í bílnum og töldu hann þurfa á endurlífgun að halda. Var því sjúkrabíll sendur á staðinn í forgangsakstri. Ekki þurfti þó…Lesa meira