Fréttir

true

Fimmtíu ár frá því Brákarhlíð hóf starfssemi

Næstkomandi sunnudag, 31. janúar 2021, verða liðin 50 ár frá vígsludegi Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi, nú Brákahlíð. Afmælisins og starfseminni voru gerð ítarleg skil í afmælisblaði sem Brákarhlíð gaf út í október síðastliðnum í samstarfi við Skessuhorn. Ekki verður um nein teljandi hátíðarhöld að ræða að sinni í tilefni þessa merka áfanga en stefnt er…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Snæfellsbæjar fluttur í nýtt húsnæði

Fiskmarkaður Snæfellbæjar í Ólafsvík flutti starfsemi sína úr Bankastræti rétt fyrir áramót og í 1.600 fermetra húsnæði sem áður hýsti Fiskiðjuna Bylgju. Andri Steinn Benediktsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir í samtali við Skessuhorn að gamla húnæðið sem þeir voru í hafi fyrir löngu verið orðið sprungið utan af starfseminni. „Nýja húsnæðið býður upp á mikið betra…Lesa meira

true

Sjúkrabíll í forgangi fyrir sofandi mann

Ökumaður nokkur sem var á leið norður í land í liðinni viku taldi veginn vera ófæran. Hann lagði sig því í bílnum á bílastæði í Borgarnesi. Vegfarendur tóku eftir honum þar sem hann svaf í bílnum og töldu hann þurfa á endurlífgun að halda. Var því sjúkrabíll sendur á staðinn í forgangsakstri. Ekki þurfti þó…Lesa meira

true

Litli og stóri í Ólafsvíkurhöfn

Talsvert frost hefur verið að undanförnu. Meðfylgjandi mynd var tekin í Ólafsvíkurhöfn nú í dag. Á henni má sjá að krapahröngl leggur nú yfir en þarna eru bátarnir Indriði Kristins BA frá Tálknafirði sem hefur undanfarið róið til fiskar og lagt afla sínum upp í Ólafsvík. Indriði er er einn af stærri „smábátum“ í íslenska…Lesa meira

true

Talningarhelgi garðfugla framundan hjá fuglavinum

Hin árvissa Garðfuglahelgi Fuglaverndar verður haldin um næstu helgi, dagana 29. janúar – 1. febrúar. Þá eru fuglavinir hvattir til að skrá fugla sem líta við í garðinn í eina klukkustund og senda Fuglavernd talningartölurnar. Viðburðurinn stendur yfir frá og með föstudegi til mánudags og má velja þann dag sem best hentar á því tímabili.…Lesa meira

true

Ók út af við Skorholt á svipuðum stað og flutningabíllinn

Bíl var ekið út af Vesturlandsvegi við Skorholt í Melasveit síðastliðinn mánudag. Ökumaður hringdi sjálfur eftir aðstoð og kenndi hann sér einhverra eymsla. Aðeins var tæp vika síðan flutningabíll ók útaf á svipuðum slóðum. Enginn vindmælir er á þessu svæði en hins vegar geta vindhviður þar verið afar varasamar.Lesa meira

true

Mikið um hraðakstur á vegum Vesturlands

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi hefur mikið verið um hraðakstur í umdæminu að undanförnu og of algengt að ökumenn séu mældir á 120 til 130 kílómetra hraða á vegum úti þar sem leyfilegur hámarkshraði eru 90 kílómetrar. Sekt við slíkri hegðun er á bilinu 80 til 120 þúsund krónur auk þess sem einn til tveir…Lesa meira

true

Elsa María fréttamaður hjá RUV í spjalli í Skessuhorni

Skagakonan Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, sem nú er búsett í Borgarnesi, fer víða um Vesturland og Vestfirði í starfi sínu sem fréttamaður fyrir RUV. Á rúmu ári þykir hún hafa staðið sig einkar vel í starfi. Í viðtali sem birtist í Skessuhorni í dag segist hún ekki hafa gengið með fréttamanninn í maganum áður en…Lesa meira

true

Félagið Hinsegin Vesturland verður stofnað 11. febrúar

Systurnar Guðrún St. og Bjargey Anna Guðbrandsdætur standa að stofnun félagsins Hinsegin Vesturland. Stofnfundur verður fimmtudaginn 11. febrúar og verður streymt á netinu. Guðrún og Bjargey fengu á síðasta ári styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands fyrir verkefnið Hinsegin Borgarbyggð og ætluðu þær að halda hinseginhátíð í Borgarnesi. Vegna Covid-19 var hátíðinni frestað en þær systur stefna…Lesa meira

true

Vilja kveikja áhuga nemenda á hreyfingu

Nemendum í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi stendur nú til boða að taka áfanga í floti og sjósundi en skólinn er fyrsti framhaldsskóli landsins að bjóða upp á slíkan áfanga. „Flot í þyngdarleysi í heitri sundlaug er einstök leið til að losa spennu úr líkama og sál. Flot skapar aðstæður fyrir djúpslökun og getur m.a. minnkað…Lesa meira