Fréttir

true

Tæpir fjórir milljarðar greiddir út í tekjufallsstyrki

Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir úr ríkissjóði í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Skatturinn fer með framkvæmd úrræðisins en styrkirnir sem þegar hafa verið greiddir út renna til um 540 aðila. Tekjufallsstyrkir nýtast fjölmörgum rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna faraldursins og…Lesa meira

true

Breiðafjarðarnefnd skilar tillögum til ráðherra

Í tilkynningu frá Breiðafjarðarnefnd, sem birt er í Skessuhorni sem kom út í dag, kemur fram að nefndin hefur nú sent umhverfis- og auðlindaráðherra erindi með tillögum sínum um framtíð verndar, nýtingar og stjórnunar verndarsvæðis Breiðafjarðar. Markmið nefndarinnar með tillögunum er að varðveita náttúru og menningu svæðisins samhliða því að styrkja enn frekar samfélögin umhverfis…Lesa meira

true

Nýjar reglur um vindorkuver í samráðsgátt stjórnvalda

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett tillögu að breytingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun til kynningar í samráðsgátt sjórnvalda. Eru tillögurnar unnar upp úr skýrslu starfshóps þrigga ráðuneyta. Vindorkan er auðlind sem takmarkast nær eingöngu við landssvæði sem hægt er að nýta undir slík mannvirki því vindur er nærri ótakmörkuð auðlind, ólíkt vatnsorku og jarðvarma.…Lesa meira

true

Maggi Ben ráðinn framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts

Undirbúningsnefnd að Fjórðungsmóti Vesturlands í hestaíþróttum hefur gengið frá ráðningu við hinn landsþekkta Magnús Benediktson sem framkvæmdastjóra fyrir mótið. Hann hefur m.a. verið framkvæmdastjóri Spretts í Kópavogi en á nú og stýrir útgáfu Eiðfaxa. Fjórðungsmótið verður haldið í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí í sumar. Hestamenn á Vesturlandi eru nú komnir á fullt við undirbúning mótsins,…Lesa meira

true

Reglugerð undirrituð um veiðar á loðnu

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf um veiðar á allt að 61.000 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Er það aukning um…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagríms

Karlalið Skallagríms í 1. deild körfuboltans sigraði Selfoss örugglega með 88 stigum gegn 64 þegar liðin mættust í Borgarnesi í gær. Liðin byrjuðu bæði vel en um miðjan fyrsta leikhluta náðu Skallagrímsmenn að sigla fram úr gestunum og voru ellefu stigum yfir í lok leikhlutans, 27-16. Lítið markvert gerðist í öðrum leikhluta og Skallagrímsmenn héldu…Lesa meira

true

Starfsmenntanám í garðyrkju frá LbhÍ til FS

Lilja D Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að hefja skuli undirbúning að tilfærslu starfsmenntanáms í garðyrkju og skyldum greinum frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi og undir yfirstjórn og ábyrgð Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þessi ákvörðun er tekin að fenginni niðurstöðu starfshóps sem fjallaði um starfsmenntanám við LbhÍ. Samhliða er lögð áhersla á að efla…Lesa meira

true

Fótboltamót í frosti og roki

Stelpurnar í 5. flokki Snæfellsnessamstarfsins í knattspyrnu létu rok og kulda ekki á sig fá sunnudaginn 24. janúar síðastliðinn. Þann dag hófu þær keppni í Faxaflóamótinu þetta árið með heimaleik sem spilaður var á Ólafsvíkurvelli. Stelpurnar spila í D-riðli A-liða og tóku á móti HK-2. Stóðu heimastúlkur sig vel og sigruðu 5 – 1 í…Lesa meira

true

Ráðin verkefnastjóri íþrótta- og tómstundastyrkja í félagsmálaráðuneytinu

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið ráðin sem verktaki tímabundið til sjö mánaða hjá félagsmálaráðuneytinu í stöðu verkefnastjóra. Mun hún hafa umsjón með sérstökum íþrótta- og tómstundarstyrkjum, sem börn af efnaminni heimilum eiga rétt á, en verkefnið er hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda til þess að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á fjölskyldur og heimili landsins. „Hluti…Lesa meira

true

Sala Neyðarkallsins verður í byrjun febrúar

Sölu á Neyðarkalli björgunarsveitanna var eins og kunnugt er frestað í nóvember vegna Covid. Nú hefur verið ákveðið að salan fari fram dagana 3.-7. febrúar. Að þessu sinni er Neyðarkallinn með björgunarhund sér við hlið. Landsbjörg biðlar til fólks að taka björgunarsveitafólki vel, en búast má við að það komi sér fyrir í verslanamiðstöðum og…Lesa meira