
Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir úr ríkissjóði í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Skatturinn fer með framkvæmd úrræðisins en styrkirnir sem þegar hafa verið greiddir út renna til um 540 aðila. Tekjufallsstyrkir nýtast fjölmörgum rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna faraldursins og…Lesa meira








