Fréttir

true

Íbúakynning um möguleika í sameiningu sveitarfélaga

Næstkomandi fimmtudag, 28. janúar, verður kynning meðal íbúa í Dalabyggð á valkostagreiningu vegna sameiningar sveitarfélaga. Sveitarfélagið samdi síðastliðið sumar við RR ráðgjöf um greiningu valkosta sveitarfélagsins vegna mögulegrar sameiningar. „RR ráðgjöf er ráðgjafafyrirtæki með sérþekkingu á stjórnsýslu, rekstri og málefnum sveitarfélaga. Róbert Ragnarsson hefur leitt greiningarvinnuna og mun flytja kynninguna og stýra umræðum ásamt Freyju…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá Borgarbyggð vegna ástands Ráðhúss

Borgarbyggð sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna rakaskemmda í Ráðhúsinu í Borgarnesi, og greint var frá í frétt hér á vefnum í síðustu viku. Þar segir: „Í lok síðasta árs skilaði verkfræðistofan EFLA skýrslu vegna úttektar á neðstu hæð Ráðhússins með það að markmiði að meta núverandi ástand á ytra byrði hússins og kanna…Lesa meira

true

Horft verði til fleiri þátta en kyns og aldurs

Nú eru framboðsmál til Alþingis komin á fulla ferð og ólíkra flokksfélaga að ákveða hvernig mannvali verður háttað á framboðslista. „Fjölbreytileiki kjörinna fulltrúa er falinn í fleiru en aldri og kyni. Það þarf að horfa til fleiri þátta eins og menntunar, starfsvettvangs og lífsreynslu,“ segir í ályktun sem Verkalýðsmálafélag Samfylkingarinnar sendi fjölmiðlum. „Samfylkingin á að…Lesa meira

true

Hópur skiptinema mættur á Bifröst

Þrátt fyrir heimsfaraldur eru nú þrettán skiptistúdentar frá sjö löndum að koma sér fyrir á Bifröst. Um mánaðamótin febrúar-mars bætast við tveir nemar sem verða í skólanum í seinni lotu haustannar. Nemarnir nú koma frá Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi, Rúmeníu, Ítalíu, Tékklandi og Bandaríkjunum og koma sér fyrir í þremur námsmannaíbúðum í háskólaþorpinu. „Segja má að…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagríms á Flúðum

Skallagrímur tapaði með tveimur stigum þegar liðið mætti Hrunamönnum á Flúðum í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn. Heimamenn komu sterkari til leiks og byrjuðu fyrsta leikhluta af meiri kraftir en gestirnir. Þá tók þjálfari Skallagríms leikhlé sem virtist kveikja á liðinu og Skallagrímur náði að jafna áður en leikhlutinn kláraðist og staðan 23-23…Lesa meira

true

Snæfell sigraði eftir hnífjafnan leik við Blika

Snæfellskonur höfðu betur gegn Breiðabliki, 68-61, þegar liðin mættust í Hólminum í Domino‘s deild kvenna á laugardaginn. Jafnræði var með liðunum allan leikinn. Í fyrsta leikhluta skiptust liðin á að vera yfir og mestur var munurinn þegar Breiðablik komst fimm stigum yfir þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum, 12-7. Snæfell var búið að jafna…Lesa meira

true

Súrt tap hjá Skallagrímskonum

Skallagrímur tapaði naumlega gegn Fjölni, 74-76, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardaginn. Liðin komu bæði sterk til leiks og byrjuðu hnífjöfn en Skallagrímskonur náðu svo yfirhöndinni í lok fyrsta leikhluta og leiddu með sjö stigum í lok leikhlutans, 21-14. Fjölniskonur gáfu ekkert eftir í örum leikhluta og voru fljótar að minnka muninn…Lesa meira

true

Skortur er á dagforeldrum á Akranesi

Akraneskaupstaður auglýsti nýverið eftir dagforeldrum til starfa í bæjarfélaginu. Að sögn Valgerðar Janusdóttur, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, hefur skortur á dagforeldrum aðallega gert vart við sig þegar líða fer á veturinn. Dagforeldrar hefja störf á haustin í flestum tilfellum með nýjan hóp barna og fylla þá sín pláss eins og kostur er. Þegar líða fer…Lesa meira

true

Bólusettir geta sótt sér bólusetningarskírteini

Í liðinni viku fékk hópur einstaklinga síðari bólusetningarsprautuna gegn COVID-19 og telst þar með fullbólusettur. Hjá embætti landlæknis var í síðustu viku lögð lokahönd á rafræna lausn sem gerir fólki kleift að sækja sér bólusetningarvottorð á vefnum; heilsuvera.is. Vottorðið er að efni og útliti í samræmi við fyrirliggjandi evrópska staðla og alþjóðlega bólusetningarskírteinið. „Markmiðið er…Lesa meira

true

Kynna vatnsveitustyrki fyrir lögbýli

Mánudaginn 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum. Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er…Lesa meira