Fréttir

true

Heimila Íslandspósti að fella niður afslætti af magnpóstsendingum

Póst- og fjarskiptastofnun hefur með úrskurði 30. desember síðastliðinn fallist á beiðni Íslandspósts um að gera verulegar breytingar á þeim afsláttarkjörum fyrir magnpóst, sem verið hafa í gildi frá árinu 2012. Með ákvörðun sinni hefur stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að gera athugasemdir við ósk Íslandspósts um breytingar á gjaldskrá…Lesa meira

true

Vel heppnuð flugeldasýning á þrettándanum

Björgunarfélag Akraness hélt flugeldasýningu klukkan 18 í gær á þrettándanum. Flugeldunum var skotið upp af stóru bryggjunni og var því hægt að fylgjast með sýningunni meðfram allri strandlengju Akraness að sunnanverðu. Var tilkomumikið að horfa á sýninguna af Langasandi í blíðviðrinu.Lesa meira

true

Náði árangri á heimsmælikvarða

Í umsögn forsvarsmanna Íþróttabandalags Akraness við kjör Íþróttmanns Akraness 2020 í gærkvöldi kom fram að Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona stimplaði sig á liðnu ári vel og vandlega inn á styrkleikalista Íslands í klassískum kraftlyftingum. Hún setti 17 ný Íslandsmet og eftir árið standa sjö af þeim ennþá. Árið var erfitt fyrir alla en Kristín náði þó…Lesa meira

true

Breikkun sjóvarnargarðsins við Faxabraut að ljúka

Vinna við breikkun sjóvarnargarðsins við Faxabraut á Akranesi stendur nú yfir og gengur hratt hjá Borgarverki, sem er verktakinn. Breikkunin á sjóvarnargarðinum er að verða lokið og hækkun garðsins langt komin. Ljóst er að ásýnd Langasands hefur breyst talsvert við þessar framkvæmdir, en hækkun garðsins um fjóra metra gerir það að verkum að hann breikkar…Lesa meira

true

Hrauni i Ólafsvík hefur verið lokað

Rekstri veitingastaðarins Hrauns í Ólafsvík hefur verið hætt. Bæjarblaðið Jökull greindi frá. Jón Kristinn Ásmundsson hóf rekstur Hrauns árið 2014 í leiguhúsnæði við Grundarbraut 2. Áður rak hann Hótel Hellissand. Eigendur hússins við Grundarbraut 2 ætla því nú annað hlutverk, samkvæmt frétt Jökuls. Jón segir í samtali við blaðið að hann sjái fyrir sér að…Lesa meira

true

Ellefu greindust með veiruna í gær

Ellefu voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim voru sjö í sóttkví við greiningu. Nú eru 126 í einangrun á landinu vegna Covid-19 og 279 í sóttkví. Tuttugu liggja á sjúkrahúsi vegna veirunnar en enginn er á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er 19,9.Lesa meira

true

Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir styrkir Sjóminjasafnið

Síðasta úthlutun sjóðsins og hann lagður niður í kjölfarið Þórhalla Hulda Baldursdóttir, Kári Viðarsson, Lydía Rafnsdóttir og Sigurður Valdimar Sigurðsson fyrir hönd Menningarsjóðsins Fegurri byggðir afhentu Sjóminjasafninu í Sjómannagarðinum á Hellissandi veglega gjöf á Þorláksmessu. En stjórn Menningarsjóðsins Fegurri byggðir ákvað á síðasta ári að allar eignir sjóðsins rynnu óskiptar til Sjóminjasafnsins í Sjómannagarðinum á…Lesa meira

true

Rætt við styrkþega úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar

Milli jóla og nýárs var í fyrsta sitt úthlutað úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar. Minningarsjóðurinn var stofnaður 2018 til að halda á lofti minningu tónlistarmannsins frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Hlutverk sjóðsins er að standa við bakið á ungu og efnilegu tónlistarfólki í héraðinu. Í þessari fyrstu úthlutun voru þrjár ungar tónlistarkonur styrktar, þær Anna Þórhildur Gunnarsdóttir…Lesa meira

true

Tóku upp áramótaruslið

Björgunarsveitarfólk í Brák í Borgarnesi fór akandi um heimabyggð í upphafi nýs árs og tíndu saman rusl sem fylgir flugeldum og tertum sem sprengdar voru upp í bænum þegar nýtt ár gekk í garð. Meðfylgjandi mynd birti sveitin á Facebook síðu sinni en þar má sjá að nokkuð mikið rusl safnaðist á kerruna og sýnir…Lesa meira

true

Keypti iPhone á netinu en fékk aldrei

Í vikunni komu einstaklingar á lögreglustöð á Vesturlandi og sögðu sínar farir ekki sléttar. Þeir höfðu keypt og greitt fyrir nýjustu útgáfuna af iPhone 12 síma á bland.is en aldrei fengið símann í hendurnar. Vitað er hver „seljandinn“ er og er hann eftirlýstur. Að sögn lögreglu er nokkuð um það að fólk kaupi hluti á…Lesa meira