Fréttir

true

Kristín Þórhallsdóttir er Íþróttamaður Akraness 2020

Kjöri Íþróttmanns Akraness var lýst fyrr í kvöld við athöfn í Frístundamiðstöðinni á Garðavöllum. Lýsingin fór fram með óhefðbundnu sniði að þessu sinni sökum samkomutakmarkana, en var í beinni útsendingu á ÍATV. Í þriðja sæti í kjörinu varð Guðrún Juliane Unnarsdóttir, 16 ára fimleikastúlka í FIMA og landsliðskona. Í öðru sæti varð Jakob Svavar Sigurðsson…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan harmar óhapp á Akranesi

„Sementsverksmiðjan harmar óþægindi sem nágrannar fyrirtækisins urðu fyrir í gær, þriðjudag, þegar sementsryk þyrlaðist upp frá sílói og lagðist yfir nágrenni verksmiðjunnar,“ segir í tilkynningu sem Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri hefur sent frá sér. „Mannleg mistök urðu til þess að sementssíló við Sementsverksmiðjuna á Akranesi yfirfylltist við uppskipun aðfararnótt 5. janúar svo sementsryk þyrlaðist upp og…Lesa meira

true

Frjálsíþróttafólk UMSB í 100 manna afrekaskrá FRÍ

Ungmennasamband Borgarfjarðar var stofnað árið 1912 og hefur yfirleitt átt gott frjálsíþróttafólk innan sinna vébanda. Sambandið hefur lengi átt frjálsíþróttafólk í fremstu röð á landsvísu og í landsliði Íslands auk þess sem margir hafa orðið Íslandsmeistarar í fullorðinsflokki og settur hefur verið fjöldi Íslandsmeta. Héraðslið UMSB hefur oft verið sterkt og keppt í 1. deild…Lesa meira

true

Kjöri Íþróttmanns Akraness verður sjónvarpað í kvöld

Um korteri eftir að flugeldasýningu lýkur við Akraneshöfn í kvöld hefst útsending frá kjöri Íþróttamanns Akraness. Hátíðin verður með gjörbreyttu sniði að þessu sinni vegna samkomutakmarkana. ÍATV mun streyma frá athöfninni sem fram fer á Garðavöllum. Viðstaddir verða einungis þrír efstu í kjörinu ásamt stjórn og fulltrúa bæjaryfirvalda, auk upptökumanna. Fyrirfram hafa verið tekin viðtöl…Lesa meira

true

Stór hluti Fellsstrandar og Skarðsstrandar án síma- og netsambands

Íbúar og sumarhúsaeigendur á Fellsströnd og Skarðsströnd í Dalabyggð hafa nú í þrjú ár búið við mjög óstöðugt eða jafnvel með öllu óvirkt net- og símasamband með tilheyrandi óþægindum og óöryggi. Hafa þeir ítrekað sent kvartanir til ýmissa aðila, en mætt fálæti. Svæðið er strjálbýlt og ljóst að fjarskiptafyrirtækin telja ekki eftir miklu að slægjast…Lesa meira

true

Fjarfundur fyrirhugaður um brennslu úrgangs

Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á opnum fjarfundi um brennslu úrgangs. Fundurinn verður haldinn n.k. mánudag 11. janúar kl. 10-12. “Ljóst má vera að framundan eru töluverðar breytingar í úrgangsmeðhöndlun og hyggst umhverfis- og auðlindaráðherra m.a. leggja fram frumvarp um lagabreytingar á vorþingi. Einnig mun ráðherra á næstunni kynna stefnu í úrgangsmálum,” segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Bjóða upp á flugeldasýningu í Borgarnesi

Björgunarsveitirnar Brák í Borgarnesi og Heiðar í Borgarfirði hafa ákveðið að standa sameiginlega að flugeldasýningu í Borgarnesi. Verður hún laugardaginn 9. janúar klukkan 20. Flugeldunum verður skotið upp frá Fitjum, þar sem Brák er nú að byggja nýjar höfuðstöðvar sínar. Íbúar geta valið um að njóta sýningarinnar heiman frá sér eða leggja bílum t.d. við…Lesa meira

true

Lögregla bendir tjónþolum á að hafa samband við VÍS

Lögreglan á Vesturlandi hefur sent tilkynningu til íbúa á Akranesi. Þar er þeim sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna sementsryks á Akranesi í fyrrinótt, bent á að tilkynna tjón á heimasíðu vis.is eða hafa samband við tryggingafélagið VÍS, en Sementsverksmiðjan er vátryggð hjá félaginu. Ljóst er að sementsrykið sem fór yfir byggðina á…Lesa meira

true

Jólin kvödd með flugeldasýningu frá Akranesbryggju

Í kvöld á þrettándanum mun Björgunarfélag Akraness sjá um veglega flugeldasýningu frá ysta hluta aðalhafnargarðs Akraneshafnar. Hefst sýningin klukkan 18. Árleg þrettándabrenna sem verið hefur á Þyrlupallinum fellur hins vegar niður. Í kjölfar sýningarinnar verður svo streymt frá kjöri Íþróttamanns Akraness sem einnig verður með breyttu sniði þetta árið. Streymið er í gegnum ÍATV og…Lesa meira

true

Brotist inn í bát í Rifi

Að morgni mánudags barst Neyðarlínu tilkynning um að brotist hefði verið inn í Saxhamar SH í höfninni á Rifi og sjúkrakassa skipsins stolið. Málið er í rannsókn lögreglu og er verið m.a. verið að skoða upptökur úr myndavélum við höfnina. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.Lesa meira