Fréttir

true

Íbúar dvalar- og hjúkrunarheimila bólusettir á miðvikudaginn

Fyrsta sending af bóluefni frá Pfizer kom hingað til landsins í morgun. Voru það tíu þúsund skammtar sem duga til bólusetningar fyrir 5000 manns. Á morgun hefst bólusetning forgangshópa sem verða heilbrigðisstarfsmenn í framlínu og íbúar hjúkrunar- og dvalarheimila. Í dag hefur verið unnið að skipulagningu fyrstu bólusetningar fólks hér á Vesturlandi. Að sögn Rósu…Lesa meira

true

Nemendur útskrifuðust frá FSN

Laugardaginn 19. desember brautskráðust 15 nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Var þetta 31. brautskráning í sögu skólans. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust sex nemendur, þeir eru: Anel Crnac, Áslaug Stella Steinarsdóttir, Björg Hermannsdóttir, Elísabet Páley Vignisdóttir, Helena Anna Hafþórsdóttir og Viktor Brimir Ásmundsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðust fjórir nemendur, þeir eru: Eiríkur Már Sævarsson, Elva…Lesa meira

true

Þrír greindust með Covid-19 í gær

Þrír voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is, tveir þeirra voru í sóttkví við greiningu. Nú eru 143 í einangrun á landinu vegna Covid-19 og 239 í sóttkví. 25 liggja á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af er einn á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú 27,8. Samkvæmt Lögreglunni á Vesturlandi…Lesa meira

true

Línur teknar að skýrast í framboðsmálum Framsóknar

Hjá Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi hefur verið ákveðið að fram fari póstkosning við val á framboðslista fyrir alþingiskosningar haustið 2021. Kosið verður um fimm efstu sætin. Kjörskrá verður lokað 30 dögum fyrir valdag póstkosningarinnar eða laugardaginn 2. janúar nk. Þátttökurétt í kosningunni hafa þeir sem skráðir hafa verið í flokkinn fyrir þann dag. Framboðsfrestur rennur út…Lesa meira

true

Bjóða upp á námskeið í verslun í vefheimum

Nú í haust og einkum í aðdraganda jóla varð mikil aukning í verslun á netinu. Margir vilja eflaust fræðast meira um rekstur vefverslana. Til að koma til móts við þarfir þeirra sem reka slíka verslun, eða íhuga stofnun vefverslunar, hyggst Háskólinn á Bifröst bjóða upp á vefnámskeið þar sem rætt verður hvað einkenni góða vefverslun…Lesa meira

true

Byrjað verður að bólusetja á morgun

Fyrstu skammtarnir af Pfizer bóluefninu gegn Covid-19 eru væntanlegir til landsins nú í dag. Gert er ráð fyrir tíu þúsund skömmtum af bóluefni í fyrstu sendingu en eftir það koma þrjú þúsund skammtar á viku fram í mars. Strax á morgun, þriðjudag, á að hefja bólusetningu og fyrstu skammtarnir eru ætlaðir Covid göngudeild Landspítalans, framlínustarfsfólki…Lesa meira

true

Björgunarsveitir hefja netsölu og selja rótarskot auk flugelda

Nú eru björgunarsveitirnar hér á Vesturlandi að hefja sölu á ýmsum varningi fyrir áramótin, en salan er sem fyrr einn af máttarstólpum fjáröflunar fyrir starf sveitanna. Í ljósi aðstæðna verða ýmis afbrigði frá sölunni miðað við undangengin ár. Auk hefðbundinnar flugeldasölu eru sumar björgunarsveitirnar þegar byrjaðar að selja flugelda í netsölu, þannig að viðskiptavinir panta…Lesa meira

true

Norðan hvassviðrið mun ganga niður með kvöldinu

Víða um vestan- og sunnanvert landið hefur verið bálhvasst frá því í morgun. Gul viðvörun er í gildi um allt landið. Björgunarsveitir voru í morgun kallaðar út í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum, en eftir hádegi fóru hjálparbeiðnir að berast af vestanverðu landinu vegna foktjóns. Útkallsbeiðni barst af Kjalarnesi rétt fyrir hádegi vegna þakklæðningar sem var…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna veðurs allan sunnudaginn

Í kvöld er spáð vaxandi norðanátt með éljum um landið norðan- og austanvert, en þurrt verður sunnan heiða. Norðan- og norðaustan 15-23 m/s á morgun, sunnudag. Rigning eða slydda verður á láglendi norðan- og austanlands og hiti yfir frostmarki, en snjókoma eða slydda undir kvöld og kólnar heldur. Úrkomulítið á sunnanverðu landinu og hiti 1…Lesa meira

true

Mikið flóð í Hvítá í morgun

Mikið flóð var í Hvítá í Borgarfirði í morgun eftir úrhellisrigningu og snjóbráð til fjalla frá því aðfararnótt aðfangadags. Áin flæddi m.a. yfir veginn að Hvítárbakka. Þá hefur hún einnig farið yfir veginn á mós við Ferjukot þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Að sögn heimafólks í Ferjukoti er þetta mesta flóð í ánni í…Lesa meira