Fréttir

true

Jólakort frá Garða- og Saurbæjarprestakalli

Prestar, starfsfólk og safnaðarnefndir í Garða- og Saurbæjarprestakalli bjóða lesendum í lítið ferðalag um kirkjur prestakallsins til að upplifa jólatöfra. Á meðfylgjandi myndbandi er lítil jólakúla sem gaman er að kíkja inn í.Lesa meira

true

Símon syngur Ó helga nótt

Tuttugasti og fjórði og jafnframt síðasti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Símon Orri Jóhannsson sem flutti lagið Ó helga nótt. Lagið er eftir Adolph Adams og textinn eftir Sigurð Björnsson.Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna um hátíðarnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum, þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Kertasníkir er síðastur til byggða

Síðasti jólasveinninn til byggða er hann Kertasníkir. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutt erindi Jóhannesar úr Kötlum um þann dáðadreng sem og lokaerindin: https://youtu.be/Yq_-JMfU-UgLesa meira

true

Vísitala þorsks lækkar þriðja árið í röð en væntingar eru um góða nýliðun

Stofnvísitala þorsks samkvæmt haustmælingu Hafró hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haustmælingarinnar. Nú er hún svipuð því sem var árin 2008-2009. Lækkunina í ár rekur Hafró til þess að fjöldavísitala 40-80 cm fisks var undir meðaltali rannsóknartímabilsins. Stofnvísitala ýsu hefur haldist svipuð frá árinu 2017. Vísitala annarra nytjastofna…Lesa meira

true

Íslendingum tryggt hlutfallslega sama magn bóluefna og öðrum Evrópulöndum

Samningur Íslands um bóluefni frá lyfjaframleiðandanum Janssen var undirritaður á mánudag. Þetta er þriðji samningur íslenskra heilbrigðisyfirvalda um kaup á bóluefnum við Covid 19. Samningurinn við Janssen tryggir bóluefni fyrir 235.000 einstaklinga. Áður var búið að gera samning um bóluefni frá Pfizer fyrir 85.000 einstaklinga og Astra Zenca fyrir 115.000 einstaklinga. „Þátttaka Íslands í samstarfi…Lesa meira

true

Þrír með veiruna á Vesturlandi

Tólf greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær og voru níu þeirra í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á Covid.is. 24 eru nú á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæslu. Hér á Vesturlandi eru nú þrír í einangrun með veiruna samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi; tveir á Akranesi og einn í Ólafsvík.…Lesa meira

true

Hæstiréttur staðfestir upprekstrarrétt á hluta Króksjarðar

Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm sem bindur enda á átta ára gamalt þrætumál milli eiganda jarðarinnar Króks í Norðurárdal annars vegar og Borgarbyggðar hins vegar. Málið snýst um upprekstrarrétt á hluta Króksjarðarinnar. Einnig snerist málatilbúnaður um hvort fjáreigendur í upprekstrarfélagi Þverárréttar gætu rekið fjársafn sitt í gegn um hluta Króksjarðarinnar á haustin á leið til…Lesa meira