
Þrettándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Gísli Gíslason sem flutti lagið Nú mega jólin koma fyrir mér. Hlekkur á lagið er hér fyrir neðan. Lesa meira

Þrettándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Gísli Gíslason sem flutti lagið Nú mega jólin koma fyrir mér. Hlekkur á lagið er hér fyrir neðan. Lesa meira

Í nótt var það hann Giljagaur sem kom til byggða ofan úr klakabrynjaðri Skarðsheiðinni, nú eða Ljósufjöllum eða Okinu, allt eftir því hvar menn eru staddir hverju sinni. Í boði Kvikmyndafjélags Borgarfjarðar flytur Sveinbjörn Eyjólfsson hér kvæði Jóhannesar úr Kötlum um gaurinn gilja. Lesa meira

Tólfti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Heiðmar sem flutti lagið Spaceman Came Travelling eftir Chris de Burgh. Hlekk á lagið má finna hér fyrir neðan: Lesa meira

Í hádeginu í gær tilkynnti KKÍ, Körfuknattleikssamband Íslands, þá leikmenn sem valdir hafa verið í sína fyrstu æfingahópa yngri landsliðana; U15, U16 og U18 ára landslið drengja og stúlkna fyrir verkefni sumarið 2021. Þar á meðal má finna nokkra galvaska Vestlendinga. Frá Snæfelli í Stykkishólmi voru tveir leikmenn valdir; Ingigerður Sól Hjartardóttir í U16 ára…Lesa meira

Fyrsti jólasveinninn mætti til byggða í nótt og vafalítið eru mörg börn hér á Vesturlandi sem varpa öndinni léttar að þeir hafi lifað af kóvíd, flensu og annað kvef. Því sveinkarnir ákváðu að mæta, þrátt fyrir ýmislegt vesén í mannabyggðum, og hengdu traust sitt á félagana í Kvikmyndafélagi Borgarfjarðar sem fönguðu stemninguna. Stóðu þeir meðal…Lesa meira

Fréttavefur Ríkisútvarpsins greindi frá því nú síðdegis að Lögreglan á Vesturlandi hafi í dag óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru tildrög málsins þau að ökumaður var stöðvaður undir áhrifum fíkniefna í Borgarfirði fyrr í dag. Í kjölfarið fór fram húsleit í sumarhúsi í héraðinu og þar hafi fundist sprengiefni. Því var…Lesa meira

Landsréttur hefur staðfest sýknudóm héraðsdóms yfir íslenska ríkinu í kæru sem Ágústa Elín Ingþórsdóttir fyrrverandi skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi lagði fram gegn menntamálaráðherra. Taldi Ágústa Elín að skipunartími hennar hefði framlengst sjálfkrafa til fimm ára þar sem henni hefði ekki verið tilkynnt innan nauðsynlegs fyrirvara að starfið yrði auglýst. Dómurinn taldi að ákvörðun mennta-…Lesa meira

Í yfir helmingi tilfella var 1.500 kr. munur á hæsta og lægsta verði á vinsælum jólabókum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 10. desember síðastliðinn. Í 12 tilfellum af 53 var verðmunur á bókum yfir 2.000 kr. en mest fór munurinn upp í 3.000 kr. Penninn.is var oftast með hæsta verðið í könnuninni en…Lesa meira

Í byrjun næsta árs mun Akraneskaupstaður efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við FÍLA, félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni er að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið. Svæðið sem um ræðir nær frá Sementsreitnum, þeim kjarna þar sem…Lesa meira

Fáir erlendir listamenn hafi getað notið dvalar í gestavinnustofum landsins undanfarið og hafa margar þeirra því staðið auðar fyrir vikið. En á því eru undantekningar. Alix Philippe, belgísk listakona búsett í London, hefur frá því í október dvalið í Gestavinnustofu Artak350 að Grundargötu 26 í Grundarfirði. Alix er nú að ljúka dvöl sinni hér á…Lesa meira