Fréttir

true

Ríkissjóður tapaði 168 milljörðum á níu mánuðum

Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs liggur fyrir. Rekstrarafkoman án afkomu hlutdeildarfélaga var neikvæð um 168 milljarða króna sem er í samræmi við væntingar að teknu tilliti til áhrifa heimsfaraldurs Covid-19. Faraldurinn hefur haft mikil áhrif á útgjöld og tekjur ríkisins og afkomu ríkissjóðs á árinu. Brugðist hefur verið við áhrifunum með ýmsum…Lesa meira

true

Allar Krónuverslanir nú með Svansvottun

Nú hafa allar verslanir Krónunnar í landinu hlotið Svansvottun, en um er að ræða opinbert og vel þekkt umhverfismerki á Norðurlöndunum sem er meðal annars með það markmið að lágmarka umhverfisleg áhrif á neyslu og framleiðslu vara. „Eitt þeirra umhverfismarkmiða sem Krónan setti sér fyrir árið 2020 var að fá Svansvottun fyrir allar verslanir okkar.…Lesa meira

true

Allir sem greindust í gær reyndust hafa verið í sóttkví

Í gær greindust sjö ný smit kórónuveirunnar hér á landi og reyndust allir hafa verið í sóttkví fyrir sýnatöku. Nú eru samtals 197 í einangrun á landinu, hefur fjölgað um 11 frá í gær. 36 eru nú á sjúkrahúsi og þar af þrír á gjörgæslu. Á Vesturlandi eru nú sjö smitaðir; fimm á Akranesi og…Lesa meira

true

Hvatar auknir til að styðja við almannaheillastarfsemi

Stefnt er að því að framlög einstaklinga og atvinnurekenda til almannaheillastarfsemi aukist verulega með nýju frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðherra mælti fyrir málinu í síðustu viku, en tillögurnar snúa bæði að auknum hvötum til að styðja við aðila í almannaheillastarfsemi og léttari skattbyrði aðilanna sjálfra. Í frumvarpinu er kveðið á um breytingar á…Lesa meira

true

Jólatónleikar Hljómlistarfélagsins verða 17. desember

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir árlegum jólatónleikum félagsins fjórða árið í röð fimmtudaginn 17. desember klukkan 20:30. „Í ár verða tónleikarnir þó með öðru sniði en venjulega vegna Covid 19 en við viljum gjarnan gefa til samfélagsins smá gleði fyrir jólin, þar af leiðandi verður tónleikunum streymt í samvinnu við Kvikmyndafjelag Borgarfjarðar, öllum að kostnaðarlausu. En…Lesa meira

true

Valgerður sigurvegari í Lagakeppni Hannesarholts

Föstudaginn 4. desember síðastliðinn voru úrslitin í Lagakeppni Hannesarholts kunngjörð. Þar kom sá og sigraði Valgerður Jónsdóttir á Akranesi með lagið sitt „Áraskiptin 1901-1902.“ Fyrirkomulag keppninnar var að semja lög við ljóð Hannesar Hafstein. Alls voru send til keppni 206 lög, en dómnefnd valdi lög til sigurs í þrjú efstu sætin. Dómnefndin var skipuð Kristjönu…Lesa meira

true

Björg spiluð niður af Bröttubrekku

Starfsmenn Vegagerðarinnar og fleiri unnu nýverið við að ná niður tveimur björgum í bröttum skeringum í Bröttubrekku. „Þessi björg höfðu valdið okkur nokkru hugarangri en við tókum eftir því að þau voru að mjakast lengra og lengra fram. Við óttuðumst að þau myndu hrynja og lenda á, eða í veg fyrir ökutæki,“ sagði Sæmundur Kristjánsson…Lesa meira

true

Varafli komið fyrir á fjarskiptastöðum

Varaafl hefur verið bætt á 68 fjarskiptastöðum um land allt í fyrri áfanga við umfangsmiklar endurbætur. Tilgangurinn er að efla rekstraröryggi í fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir landið í desember 2019. Settar hafa verið upp 32 nýjar fastar vararafstöðvar, rafgeymum bætt við á tíu lykilskiptistöðvum fjarskipta, tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar settir upp á…Lesa meira