Fréttir

true

Tilnefningar óskast um Vestlending ársins

Að venju gengst Skessuhorn fyrir vali á Vestlendingi ársins. Skilyrði er að viðkomandi sé búsettur/ir í landshlutanum. Hver eða hverjir hafa verðskuldað þetta sæmdarheiti á árinu? Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um nöfn og gjarnan má fylgja ein setning sem styður þá tillögu. Óskast tilnefningar sendar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is merkt „Vestlendingur ársins.“…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns í næstu viku

Miðvikudaginn 16. desember kemur Jólablað Skessuhorns úr prentun og verður dreift til kaupenda. Að venju verður blaðið það síðasta sem gefið verður út á árinu. Fyrsta blað á nýju ári verður svo gefið út 6. janúar. Þeir sem vilja koma á framfæri efni og auglýsingum í árlegu Jólablaði er bent á að hafa samband fyrir…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgar lítilsháttar

Hagstofan hefur nú birt tölur um íbúafjölda 1. desember eftir sveitarfélögum. Landsmenn eru nú 368.620 og hefur fjölgað um 1,2% frá fyrra ári. Ef íbúafjöldatölur eru bornar saman við 1. desember 2019 kemur í ljós að íbúum á Vesturlandi hefur fjölgað um 31 á árinu, sem jafngildir 0,2%, eru í dag 16.697 talsins. Hlutfallslega hefur…Lesa meira

true

Rýmri heimildir til að stunda íþróttastarf

Heimildir til að stunda íþróttastarf verða rýmri með nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi á morgun, 10. desember. Sérstaklega er kveðið á um íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) varðandi heimildir til æfinga meðal afreksfólks og í efstu deildum sambandsins eins og að neðan greinir: Íþróttastarf almennt Öllum er heimilt…Lesa meira

true

Hærri flúorstyrkur mælist í hrossum á Vesturlandi

Nýlega fór fram meistaraprófsvörn Brynju Valgeirsdóttur í búvísindum við deild Ræktunar og fæðu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Bar ritgerðin titilinn; „Flúor í íslenska hestinum“. Í kynningu á verkefni Brynju kemur fram að flúor í umhverfi á upptök sín frá bæði náttúrulegum uppsprettum og iðnaði og dreifist þaðan til grunnvatns og gróðurs. Hryggdýr sem útsett eru fyrir…Lesa meira

true

Jón Þór hættir sem þjálfari A landsliðs kvenna

„KSÍ og Jón Þór Hauksson hafa komist að samkomulagi um að Jón Þór láti af störfum sem þjálfari A landsliðs kvenna að hans ósk. Undir stjórn Jóns Þórs náði liðið því markmiði að tryggja sér sæti í lokakeppni EM 2022. Engu að síður telja KSÍ og Jón Þór það vera rétt skref að hann stígi…Lesa meira

true

Nýjar sóttvarnareglur taka gildi á fimmtudag

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti fyrir hádegi tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum. Nýjar takmarkanir taka gildi á fimmtudaginn, 10. desember, og gilda til 12. janúar. Reglur um skólahald breytast lítið fram að áramótum en reglur sem munu taka gildi 1. janúar verða kynntar fljótlega. Áfram verður tíu manna fjöldatakmarkanir en með undantekningum og fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk og grímuskilda gildir…Lesa meira

true

Átta greindust með veiruna í gær

Átta greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og þar af voru fjórir í sóttkví. 187 eru nú í einangrun hér á landi vegna veirunnar og 261 í sóttkví. 34 liggja á sjúkrahúsi og þar af eru þrír á gjörgæslu. Einn hefur látist vegna Covid-19 síðasta sólarhringinn og hafa…Lesa meira

true

Sveinbjörn Hafsteinsson flytur lagið Jól

Áttundi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Sveinbjörn Hafsteinsson sem flutti lagið Jól eftir Leif Jónsson. Hlekk á lagið má finna hér fyrir neðan:  Lesa meira