Fréttir

true

Breytt fyrirkomulag jólatrésskemmtana í Borgarbyggð

Starfsmenn áhaldahúss Borgarbyggðar hafa að undanförnu unnið við að skreyta jólatré í sveitarfélaginu. Verða þau í Skallagrímsgarði og á Hvanneyri. Jólatréð í Skallagrímsgarði er úr heimabyggð líkt og á síðasta ári. Mikil eftirspurn var eftir því að gefa sveitarfélaginu jólatré í ár en gefendur að þessu sinni eru hjónin Valdimar Reynisson og Þórný Hlynsdóttir í…Lesa meira

true

Gunnar Einarsson er nýr þjálfari meistaraflokks Víkings Ó

Víkingur Ólafsvík greindi frá í vikunni að Gunnar Einarsson hafi verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Víkings Ólafsvíkur í knattspyrnu. Gunnar tekur við liðinu af Guðjóni Þórðarsyni og er samningurinn til tveggja ára. Í tilkynningunni segir m.a.: „Gunnar, sem er 44 ára, er spennandi ungur þjálfari sem þjálfaði Kára í 2. deildinni á síðastliðnu keppnistímabili en áður…Lesa meira

true

Þrír í sóttkví af þeim ellefu sem greindust með veiruna í gær

Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og þar af voru þrír í sóttkví. 166 eru nú í einangrun á landinu vegna veirunnar og 446 í sóttkví. 45 manns liggja á sjúkrahúsi vegna Covid og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú 32,5. Enn eru fimm í…Lesa meira

true

Útvarp Akranes fer í loftið á morgun

Útvarp Akranes fer í loftið um næstu helgi. Útsendingar hefjast kl. 13:00 á morgun, föstudag og standa fram á sunnudag. Sent verður út fá Símenntunarmiðstöð Vesturlands við Akratorg. Útvarp Akraness hefur fyrir löngu skapað sér sess sem fastur liður í jólaundirbúningi Skagamanna en útvarpið er ein mikilvægasta fjáröflun Sundfélags Akraness. Sundfélagið hefur staðið fyrir útvarpsdagskrá…Lesa meira

true

Íslenska kvennalandsliðið spilar þýðingarmikinn leik í dag

Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Slóvakíu ytra í undankeppni fyrir EM 2022 í kvöld. Leikurinn hefst kl. 17:00 og verður sýndur á RÚV. Þetta er næstsíðasti leikur stelpnanna í riðlakeppninni en þær mæta Ungverjalandi næsta þriðjudag, 1. desember. Svíþjóð situr í fyrsta sæti riðilsins með 19 stig og er ljóst að sænsku stelpurnar hafa unnið…Lesa meira

true

Vonskuveður framundan

Í nótt var hvöss suðaustanátt og mikil úrkoma á öllu sunnan- og vestanverðu landinu. Veðurspá fyrir stóran hluta landsins gerir ráð fyrir vonskuveðri í dag, fimmtudag. Víðast hvar verður hvasst af suðvestri, 15-25 m/s. Rigning í fyrstu en hvöss og dimm él upp úr hádegi. Í viðvörun frá veðurfræðingi segir að vaxandi éljagangur verði um…Lesa meira

true

Gefa starfsfólki sveitarfélagsins gjafabréf á þjónustu og verslun í heimabyggð

Borgarbyggð hefur auglýst eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem verða jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 10.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup…Lesa meira

true

Brásól Brella og furðuævintýrin hennar

Bókin Brásól Brella: Vættir, vargar og vampírur, eftir Borgnesinginn Ásrúnu Magnúsdóttur kom nýverið út. Þetta er fimmta barnabókin sem Ásrún gefur út en þessi er nokkuð frábrugðin þeim fyrri. „Í hinum bókunum mínum sótti ég innblástur í það sem ég þekki í raunheimum en þessi bók er furðuævintýrasaga út í gegn,“ segir Ásrún. Bókin fjallar…Lesa meira

true

Viðgerðir á kirkjunni aðkallandi

Árlegur jólamarkaður til styrktar viðhaldssjóði Innra-Hólmskirkju verður í félagsheimilinu Miðgarði um næstu helgi. „Við í sóknarnefnd Innra-Hólmskirkju höfum á síðustu árum staðið fyrir fjáröflunum til styrktar viðhaldssjóði kirkjunnar. Við ætlum með þessu að klára það verkefni sem er verulega áríðandi og aðkallandi að fara í, sem er viðgerð á þaki og á ytra byrði kirkjunnar,”…Lesa meira

true

Segir byggingu Hyrnutorgs hafa verið vel undirbúna og heppnaða framkvæmd

Rétt tuttugu ár eru í dag liðin frá því verslanamiðstöðin Hyrnutorg var opnuð við Borgarbraut 58-60 í Borgarnesi, en húsið var vígt sunnudaginn 26. nóvember árið 2000. Bygging Hyrnutorgs var að frumkvæði Kaupfélags Borgfirðinga en félagið stofnaði ásamt Olíufélaginu hf og Samvinnulífeyrissjóðnum félagið Borgarland ehf um uppbyggingu og rekstur hússins. Stjórn og stjórnendur KB litu…Lesa meira