Fréttir

true

Á ferð og flugi með ömmu í Akrafjalli

Árið 2012 skrifaði Hallbera Jóhannesdóttir á Akranesi bókina Á ferð og flugi með ömmu og fékk hún Bjarna Þór Bjarnason listamann til að myndskreyta hana. Hallbera gaf síðan bókin út sjálf. Sú bók var um ömmu og Frey, sem er 6 ára, en þau fara um Akranes og amma fræðir strákinn í leiðinni. Bókin seldist…Lesa meira

true

Leitin að eigendum silfurskeiðarinnar rakin í Skessuhorni

Ríflega hundrað ára, falleg silfurskeið sænskrar fjölskyldu týndist í Danmörku fyrir 26 árum, en dúkkaði upp á Akranesi fyrir hálfum mánuði, á heimili Ingibjargar Jónu Gestsdóttur og Garðars Guðmundssonar Norðdahl. Skeiðin hafði flakkað milli kynslóða frá árinu 1918 þar til hún týndist í gömlum skápi og flutti til Íslands. Það var svo fyrir hreina tilviljunin…Lesa meira

true

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 86.853 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Eftirfarandi skilgreining gildir um uppbótina: „Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu…Lesa meira

true

Ráðuneytið hafnar beiðni um blóðskilunarmeðferð á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness skoraði í mars á heilbrigðisyfirvöld að setja upp blóðskilunarvél á sjúkrahúsinu á Akranesi. Í áskoruninni var bent á að sjúklingar á Akranesi sem þurfa á blóðskilun að halda eru háðir aðstoð því meðferð af þessu tagi getur tekið allt að 6 til 7 klukkustundir í senn í nokkur skipti í viku hverri. Jafnframt…Lesa meira

true

Viðvörunarstig vegna veðurs hækkað í appelsínugult

Veðurstofan Íslands hækkaði fyrir stundu viðvörunarstig vegna veðurs upp í appelsínugult fyrir tvö spásvæði; Strandir og Norðurland vestra auk miðhálendisins. Appelsínugulu viðvaranirnar taka gildi kl. 20:00 í kvöld og gilda til morguns. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir: „Ástæðan er sú að útlit er fyrir að vindstyrkur verði meiri en upphafleg spá gerði ráð fyrir. Dálítil…Lesa meira

true

Staðfest kóvidsmit á Vesturlandi eru nú fimm

Samkvæmt tölum sem Lögreglan á Vesturlandi var að birta um útbreiðslu Covid-19 á Vesturlandi kemur fram að samanlagt hefur fólki í einangrun fækkað á Vesturlandi, eru nú fimm. Tveir voru greindir í Grundarfirði á síðasta sólarhring en þar hefur ekki komið upp smit síðan í lok október. Eitt smit er í Borgarnesi. Á Akranesi er…Lesa meira

true

Bæjarstjórn unga fólksins fundaði í síðustu viku

Bæjarstjórnarfundur unga fólksins á Akranesi var haldinn í 19. skipti þriðjudaginn 17. nóvember. Í ljósi aðstæðna fór fundurinn fram í fjarfundi. Í bæjarstjórn unga fólksins tóku sér sæti að þessu sinni þau Helgi Rafn Bergþórsson fulltrúi Tónlistarskólans á Akranesi, Ylfa Örk Davíðsdóttir fulltrúi Hvíta hússins, Hanna Bergrós Gunnarsdóttir fulltrúi Arnardalsráðs, Jóel Þór Jóhannesson fulltrúi nemendaráðs…Lesa meira

true

Litadýrð í sólarupprás morgunsins

Engu líkara var en himininn logaði nú í morgun þegar skammdegissólin var að hefja sig á loft. Meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í þessu við Langasand á Akranesi. Í suðri má m.a. sjá bólstrana sem stíga upp frá Hellisheiðarvirkjun. Vafalítið er þessi litadýrð vegna kalda og raka loftsins og endurkasts sólarljóssins í ískristöllum, en…Lesa meira

true

Undraðist að humar veiddist nánast uppí kartöflugarðinum hans

Tilraunaveiðar með humargildrur á Ingu P SH ganga vonum framar á Breiðafirði. Auðsjáanlega er humar að finna víða á svæðinu á miðunum við Snæfellsnes. Fyrst voru gildrurnar lagðar ellefu mílur vestur að Öndverðarnesi og var afli með ágætum en veður hamlagði þó veiðum. Í síðustu viku voru gildrurnar svo færðar á svokallað Jökuldýpi sem er…Lesa meira

true

Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar með ýmis verkefni á aðventunni

Í mörg horn er að líta hjá Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar fyrir jólin en töluvert efni er væntanlegt til birtingar frá félaginu á aðventunni. Næsta laugardag, 28. nóvember, sendir félagið út tónleika með Jónínu Ernu og félögum af tilefni aldarafmælis Sigfúsar Halldórssonar. Þá verður send úr guðsþjónusta fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember, úr Borgarneskirkju. „Þetta eru…Lesa meira