Fréttir

true

75 smit í gær

Alls greindust 75 ný innanlandssmit kórónuveirunnar í gær, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim voru 28 utan sóttkvíar við greiningu. Fimm smit greindust á landamærunum, en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar. Í dag eru 64 á sjúkrahúsi vegna Covid-19 hér á landi, þar af fjórir á gjörgæslu. Í dag eru 996 í einangrun vegna veirunnar…Lesa meira

true

Ljósleiðari lagður síðasta spölinn

Framkvæmdir eru hafnar við síðasta áfangann í ljósleiðaravæðingu dreifbýlis Snæfellsbæjar. Um er að ræða lagningu ljósleiðara milli Hellissands og Gufuskála, en sveitarfélagið nýtur styrks frá Fjarskiptasjóði til verksins. Það er verktakinn Stafnafell ehf. í Staðarsveit em sér um að plægja fyrir ljósleiðaranum en Gunnar Hauksson hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd Snæfellsbæjar.Lesa meira

true

Valdís Þóra ráðin íþróttastjóri Leynis

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf íþróttastjóra Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Tekur hún við starfinu frá og með 1. nóvember næstkomandi. Hún mun annast þjálfun í barna-, unglinga- og afreksstarfi klúbbsins, ásamt því að sinna almennum félagsmönnum. Í tilkynningu á vef Leynis segir að hún hafi skýra framtíðarsýn á starfið og sé…Lesa meira

true

Kaupfélag Skagfirðinga lætur gott af sér leiða

Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfyrirtæki þess í matvælaframleiðslu hafa ákveðið að gefa fólki í erfiðleikum matvöru, sem svarar til 40.000 máltíða, fram til jóla. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu í dag. Vitnað er til Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns Fjölskylduhjálpar sem segir gjöfina algjöra himnasendingu fyrir bágstadda. Í tilkynningu segir Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS: „Þetta er…Lesa meira

true

Endurnýja búningsklefa

Tilboð voru opnuð í endurnýjun búningsklefa íþróttahússins á Jaðarsbökkum á Akranesi 13. október síðastliðinn. Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á rúmar 22,9 milljónir króna. Tvö tilboð bárust og voru þau kynnt á fundi skipulags- og umhverfisnefndar mánudaginn 19. október. Lægra boðið átti Skagaver ehf., upp á rétt tæplega 21,5 milljónir króna en GS Import bauð 24,5…Lesa meira

true

Samið um rekstur laugar á Hlöðum

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum fyrr í vikunni að semja við Aldísi Ýr Ólafsdóttur um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum næstu þrjú árin, frá 2021 til 2023. Hún hefur rekið laugina undanfarin tvö ár og hafði sóst eftir því halda því áfram næstu þrjú árin. Sveitarstjórn lýsti yfir ánægju sinni með það; „enda hefur samstarfið…Lesa meira

true

Vilja flytja eftirlit póstmála til Byggðastofnunar

Í samráðsgátt stjórnvalda eru nú til kynningar drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar um frumvarpið til og með 4. nóvember nk. Með tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Byggðastofnunar hyggjast stjórnvöld tryggja…Lesa meira

true

Vökudagar 2020 byrjaðir

Vökudagar 2020 á Akranesi byrjuðu í dag, fimmtudaginn 29. október með ýmsum viðburðum um allan bæ. Opnunaratriði Vökudaga í ár var ljósmyndasýning Helgu Ólafar Oliversdóttur í gluggum Tónbergs. Nokkur fjöldi mætti við opnunina en þar voru á ferð göngufélagar Helgu. Skáluðu göngufélagarnir í kaffi og kakói fyrir Helgu sem gat ekki verið viðstödd opnunina. Ýmsar…Lesa meira

true

Borgarbyggð hvetur til að jólaljósin verði sett upp snemma

Undanfarið hefur borið á því að íbúar í Borgarbyggð eru byrjaðir að lýsa upp skammdegið með jólaljósum- og skreytingum. „Borgarbyggð fagnar þessu frumkvæði og hefur ákveðið að slást í för með íbúum með því að setja jólaljósin upp snemma í ár. Íbúar eru hvattir til að gera slíkt hið sama,“ segir í tilkynningu frá Borgarbyggð.Lesa meira

true

Málverkasýningin Strand í Galleríi Bjarna Þórs

Jaclyn Poucel Árnason er bandarísk listakona, fædd og uppalin í Lancaster í Pennsylvaníu. Hún býr nú á Akranesi með eiginmanni sínum, Benedikt Val Árnasyni. Benedikt er Skagamaður en þau kynntust árið 2016 en Jaclyn lék þá og leikur í dag knattspyrnu með ÍA. Hún er sjálfmenntuð listakona og með gráðu í listasögu frá háskólanum í…Lesa meira