Fréttir

true

Smit kom upp á íþróttaæfingu

Covid-19 smit kom í gær upp á æfingu í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi. „Um leið og upplýsingar bárust um smit var virkjuð aðgerðarstjórn samkvæmt leiðbeiningum frá Almannavörnum með fulltrúm Íþróttabandalagsins ÍA og Akraneskaupstað,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað. „Smitrakning hefur farið fram og foreldrar viðkomandi hópa voru strax upplýstir ef barnið þurfti að fara…Lesa meira

true

Fresta leikjum í Dominosdeild kvenna

Tveimur körfuboltaleikjum í Dominosdeild kvenna, þar sem Vesturlandsliðin koma við sögu, hefur nú verið frestað. Annars vegar átti Skallagrímur að taka á móti Keflavík á laugardaginn í Borgarnesi, en hins vegar stóð til að Keflavík tæki á móti Snæfelli fimmtudaginn 5. nóvember. Framundan eru hertar sóttvarnaraðgerðir og því ákvað KKÍ frestun þessara leikja.Lesa meira

true

Baader kaupir meirihluta í Skaganum 3X

Gengið hefur verið frá samningi um kaup þýska stórfyrirtækisins Baader á meirihluta hlutafjár í Skaganum 3X, sem m.a. hefur starfsstöðvar sínar á Akranesi og Ísafirði. Kaupin hafa átt sér talsverðan aðdraganda. Í tilkynningu frá Ingólfi Árnasyni forstjóra til starfsmanna sinna nú í morgun, sem Skessuhorn hefur undir höndum, kemur fram að upphaflega megi rekja söluna…Lesa meira

true

Höldum hrekkjavöku heima

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra biðlar nú til fólks að halda hrekkjavöku heima í ár, öryggisins vegna. Hrekkajvaka verður laugardaginn 31. október og hefur hátíðin notið sífellt meiri vinsælda hér á landi. Skapast hefur sú hefð að börn klæði sig upp í búning og gangi í hús með „grikk eða gott“ og fái sælgæti. Þessu fylgja margir sameiginlegir…Lesa meira

true

Segja kaup Baader á Skaganum 3X fela í sér mikil tækifæri

Í morgun var tilkynnt að fyrirtækið Skaginn 3X og þýska stórfyrirtækið Baader hafi ákveðið að sameina krafta sína á næsta ári, með fyrirvara um samþykki þar til bærra eftirlitsstofnana. „Um afar ánægjulegar fréttir er að ræða, ekki síst á þeim sérstöku tímum sem nú blasa við í íslensku samfélagi og heimsbyggðinni allri,“ segir í sameiginlegri…Lesa meira

true

Verðlaunuð fyrir endurnýjun á Nýp

Arkitektastofan Studio Bua hefur hlotið verðlaun Bretlandsdeildar Arkitektafélags Bandaríkjanna (American Institute of Architechts UK Chapter) sem nýliði ársins. Verðlaunin hlýtur stofan fyrir endurnýjun húsakosts á Nýp á Skarðsströnd. Greint var frá valinu í gær. Það voru hjónin Sumarliði Ísleifsson og Þóra Sigurðardóttir sem keyptu Nýp á Skarðsströnd árið 2001, en bærinn hafði þá verið í…Lesa meira

true

22 í einangrun á Vesturlandi

Í dag eru 22 manneskjur í einangrun vegna Covid-19 í landshlutanum, skv. nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Af þeim eru 17 á Akranesi, þar sem fjölgar um einn frá því í gær, en annars staðar er fjöldinn óbreyttur. Fjórir eru í einangrun í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Sóttkví sæta…Lesa meira

true

Boðar hertar sóttvarnaraðgerðir

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun leggja til við heilbrigðisráðherra að núverandi sóttvarnaraðgerðir verði hertar. Þetta kom fram í máli hans á upplýsingafundi almannavarna nú kl. 11:00. Í vinnslu er minnisblað þess efnis til ráðherra. Útfærsla einstakra tillagna liggur ekki endanlega fyrir, að sögn Þórólfs, og kvaðst hann því ekki reiðubúinn að ræða útfærslu einstakra tillagna að…Lesa meira

true

Vökudagar byrjaðir á Akranesi

Vökudagar hófust á Akranesi í dag. Opnunaratriði menningarhátíðarinnar í ár er ljósmyndasýning Helgu Ólafar Oliversdóttur í gluggum Tónbergs. Nokkur fjöldi mætti við opnunina en þar voru á ferð göngufélagar Helgu. Skáluðu þeir í kaffi og kakói fyrir Helgu sem sjálf gat ekki verið viðstödd opnunina. Helga Ólöf Oliversdóttir, sjúkraliði á Akranesi, sá það í byrjun…Lesa meira

true

Fjörutíu og tvö smit í gær

Alls greindust 42 ný smit Covid-19 hér innanlands í gær, miðvikudaginn 28. október, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim sem greindust í gær voru 22 í sóttkví við greiningu. Rúmlega tvö þúsund sýni voru tekin. 1.005 manns sæta nú einangrun vegna Covid-19, samanborið við 1.062 í gær. Þá eru 1.730 í sóttkví í dag…Lesa meira