Fréttir

true

Keppni hætt í fótboltanum

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti á fundi sínum á föstudaginn að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppni KSÍ 2020. Sú ákvörðun er í samræmi við 5. grein í reglugerð um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem gefin var út í júlí síðastliðnum. Ákvörðunin tekur strax gildi. Íslenska deildin er sú eina í Evrópu sem…Lesa meira

true

Loka ber öllum golfvöllum landsins

Tilkynnt var á föstudaginn um hertar aðgerðir í sóttvörnum til 17. nóvember. Í þeim felst meðal annars að allar æfingar og keppni í íþróttum eru bannaðar. Viðbragðshópur Golfsambands Íslands óskaði eftir nánari útskýringum á því hvort 6. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar eigi við um golfiðkun. Að mati viðbragðshópsins þótti ekki nægur samhljómur á milli þess…Lesa meira

true

Stærsti úflutningsmánuður fiskeldisafurða frá upphafi

Útflutningsverðmæti eldisafurða á fiski nam tæpum fjórum milljörðum króna í september. Er hér um stærsta mánuð í útflutningi á eldisafurðum frá upphafi að ræða á alla mælikvarða. Það er verðmæta í krónum talið, verðmæta í erlendri mynt og í tonnum. Í krónum talið er um að ræða 182% aukningu frá september í fyrra. Aukningin er…Lesa meira

true

Byrjað að grafa grunn undir reiðhöll á Æðarodda

Í morgun hófu starfsmenn Snóks ehf. jarðvegsskipti undir væntanlega reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda við Akranes. Þar verður byggt 1.250 fm. hús sem verður 25 metrar á breidd og 50 metra langt. Auk hestamanna koma sveitarfélögin; Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit, að framkvæmdum. BM Vallá/Smellinn tekur við jarðvegsskiptum grunni og reisir sökkla en samið hefur verið við…Lesa meira

true

Tíu manna samkomubann og íþróttastarf leggst af

Samkomutakmarkanir munu frá miðnætti takmarkast við tíu manns í stað tuttugu áður. Áfram verður tveggja metra reglan við lýði og aukin áhersla er lögð á grímunotkun. Íþróttastarf í landinu leggst af í bili, sundlaugar verða lokaðar, krár og skemmtistaðir sömuleiðis og veitingastaðir þurfa að loka kl. 21:00 á kvöldin. Aðeins verða börn fædd 2015 og…Lesa meira

true

72 í sóttkví í landshlutanum

Nokkuð fjölgar í hópi þeirra sem sæta sóttkví á Vesturlandi milli daga. Í gær voru þeir 55 en í dag eru 72 í sóttkví í landshlutanum, og fjölgar þannig um 17. Flestir Sé litið til starfssvæða einstakra heilsugæslustöðva breytist hún mest á Akranesi, þar sem fjöldi í sóttkví meira en tvöfaldast. Þar voru í gær…Lesa meira

true

Hótel Sögu lokað nú um mánaðamótin

Hótel Sögu verður lokað 1. nóvember vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 faraldursins á ferðaþjónustufyrirtæki. Hótelið er sem kunnugt er í eigu Bændasamtaka Íslands, sem eru til húsa á þriðju hæð hússins eins og fleiri samtök landbúnaðarins. Lokun hótelsins mun ekki hafa áhrif á aðra starfsemi í húsinu. Í tilkynningu á vef Bændasamtakanna segir að tekjusamdráttur hótelsins…Lesa meira

true

75 smit í gær

Alls greindust 75 ný innanlandssmit kórónuveirunnar í gær, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim voru 28 utan sóttkvíar við greiningu. Fimm smit greindust á landamærunum, en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar. Í dag eru 64 á sjúkrahúsi vegna Covid-19 hér á landi, þar af fjórir á gjörgæslu. Í dag eru 996 í einangrun vegna veirunnar…Lesa meira

true

Ljósleiðari lagður síðasta spölinn

Framkvæmdir eru hafnar við síðasta áfangann í ljósleiðaravæðingu dreifbýlis Snæfellsbæjar. Um er að ræða lagningu ljósleiðara milli Hellissands og Gufuskála, en sveitarfélagið nýtur styrks frá Fjarskiptasjóði til verksins. Það er verktakinn Stafnafell ehf. í Staðarsveit em sér um að plægja fyrir ljósleiðaranum en Gunnar Hauksson hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd Snæfellsbæjar.Lesa meira

true

Valdís Þóra ráðin íþróttastjóri Leynis

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf íþróttastjóra Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Tekur hún við starfinu frá og með 1. nóvember næstkomandi. Hún mun annast þjálfun í barna-, unglinga- og afreksstarfi klúbbsins, ásamt því að sinna almennum félagsmönnum. Í tilkynningu á vef Leynis segir að hún hafi skýra framtíðarsýn á starfið og sé…Lesa meira