Fréttir

true

Breyttar reglur um greiðslur fyrir þjónustu sjúkraþjálfara

Heilbrigðisráðherra hefur framlengt til 31. desember næstkomandi reglugerð um greiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Einnig er gerð sú breyting frá gildandi reglugerð að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna meðferðar verður alfarið bundin því að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara starfandi í heilsugæslu þar sem fram kemur…Lesa meira

true

26 greindust með veiruna í gær

Alls greindust 26 innanlandssmit kórónuveirunnar í gær, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Þar af voru tíu utan sóttkvíar við greiningu. Sex einstaklingar greindust á landamærunum og beðið er eftir niðurstöðu mótefnamælingar úr einni sýnatöku frá því fyrr í vikunni. Í dag eru 72 á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. 905 eru í…Lesa meira

true

Lykillinn að háum aldri hákarla er að hreyfa sig lítið og vera í kulda

Nýverið birtist vísindagrein um rannsóknir á áhrifum öldrunar á heila u.þ.b. 245 ára gamals hákarls í samanburði við sama ferli í heila manna. Hákarl þessi veiddist í haustralli 2017 djúpt vestur af landinu. Klara Jakobsdóttir sérfræðingur á botnsjávarsviði Hafrannsóknastofnunar er einn af höfundum greinarinnar. Öldrun hefur ýmis áhrif á frumur í heila manna sem eru…Lesa meira

true

Ný reglugerð um skólastarf tekur gildi á morgun

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi hefur verið gefin út og tekur gildi á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember. Fjölmargir skólar halda í dag starfsdag og skipuleggja vinnu sína næstu vikur. Reglugerðin gildir um allt skólastarf á landinu, en nær einnig til frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna. Víðtækt samráð var haft…Lesa meira

true

Fresta sölu Neyðarkalls til febrúar

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur ákveðið að fresta árlegri sölu Neyðarkallsins til febrúar á næsta ári í ljósi samkomutakmarkana vegna Covid-19. Salan mun því að óbreyttu fara fram dagana 3. – 7. febrúar 2021. Sala Neyðarkallsins er ein stærsta fjáröflunarleið björgunarsveita landsins á hverju ári, auk sölu flugelda og nú upp á síðkastið stuðnings Bakvarða.Lesa meira

true

Nettó óskar eftir tillögum frá viðskiptavinum

Matvöruverslanakeðjan Nettó hefur hrint af stað verkefninu „Notum netið til góðra verka“. Óskað er eftir tillögum frá viðskiptavinum um hvaða góðgerðarsamtök eigi að styðja við. Verkefnið felur í sér að 200 krónur af hverri sendingu úr netverslun Nettó munu renna til góðra málefna. Netverslun Nettó er langstærsta netverslun landsins með matvöru og gæti upphæðin því…Lesa meira

true

Umfangsmiklar stuðningsaðgerðir í þágu íþrótta- og æskulýðsfélaga

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudaginn tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, og Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þess efnis að ráðist verði í aðgerðir til að koma til móts við íþrótta- og æskulýðsfélög landsins vegna þeirrar röskunar sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á starf þeirra. Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu…Lesa meira

true

Borgnesingar taka áskorun um að skreyta snemma

Sveitarfélagið Borgarbyggð hvatti íbúa í síðustu viku til að lýsa upp skammdegið og setja jólaljósin snemma upp í ár. Nú þegar hafa nokkrir brugðist við kallinu. Meðfylgjandi mynd var tekinn framan við húsið Hamravík 26 í Borgarnesi í kvöld. Fallega skreytt jólatré komið út fyrir dyr og ilmandi hangirúlla fergði það niður.Lesa meira

true

Tveir létust á síðasta sólarhring

Á síðastliðnum sólarhring létust tveir sjúklingar af Covid-19 á Landspítalanum. Báðir voru á níræðisaldri. Þá er fjöldi látinna úr sjúkdómnum hér á landi kominn í fimmtán á árinu. Alls greindust 24 með veiruna í gær og voru sjö þeirra ekki í sóttkví. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði í samtali við Ríkisútvarpið í hádeginu að mikilvægt væri…Lesa meira

true

Birta skýrslu um upplýsingaóreiðu á tímum Covid-19

Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og Covid-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir. Í henni er fjallað um mikilvægi upplýsingamiðlunar og lýðheilsu, nýtt tækniumhverfi og miðlun upplýsinga, samstarf hópsins við Vísindavef Háskóla Íslands og alþjóðasamstarf á þessu sviði. Í 6. kafla skýrslunnar er ítarlega fjallað um niðurstöður kannana sem vinnuhópurinn…Lesa meira