Fréttir

true

Haraldur er nýr skólastjóri Auðarskóla

Haraldur Haraldsson hefur verið ráðinn skólastjóri Auðarskóla í Búðardal og tekur hann við af Hlöðveri Inga Gunnarssyni um næstu mánaðamót. Haraldur hefur starfað sem skólastjóri í um 30 ár, fyrst við Ásgarðsskóla í Kjós. „Ég byrjaði þar beint eftir háskólanámið, bara af tilviljun,“ segir Haraldur í samtali við Skessuhorn. „Ég ætlaði að fara að kenna…Lesa meira

true

86 innanlandssmit í gær

Alls greindust 86 ný smit Covid-19 innanlands í gær, en alls voru tekin rúmlega þrjú þúsund sýni. Tíu greindust með virk smit á landamærunum í gær og eitt við seinni landamæraskimun. Beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í tíu tilvikum. Í dag eru 58 á sjúkrahúsi vegna kórónuveirunnar, þar af einn á gjörgæslu. Nú eru 1.062 eru í…Lesa meira

true

Áætla að tekjufallsstyrkir til ferðaþjónustunnar verði 3,5 milljarðar

Samkvæmt frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki munu minni ferðaþjónustuaðilar, leiðsögumenn og fleiri geta sótt um styrk vegna tekjufalls sem varð vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Samkvæmt mati sem ráðgjafafyrirtækið KPMG vann fyrir ráðuneytið er áætlað að stuðningur við ferðaþjónustuna vegna þessa úrræðis geti numið um 3,5 milljarði króna nýti allir þessa leið. Frumvarpið hefur verið samþykkt…Lesa meira

true

Fresta íbúakosningu að sinni

Ákveðið hefur verið að fresta íbúakosningu um sölu á ljósleiðarakerfi Hvalfjarðarsveitar. Áður hafði kosningunni verið frestað í maí síðastliðnum, þar sem óvíst var talið hvort hæstbjóðandi stæði við tilboð sitt. „Aðdragandinnvar erindi frá Mílu í kjölfar greiningar Póst- og fjarskiptastofnunar sem orsakaði breytta stöðu Mílu um kaup á kerfinu en taldi fyrirtækið þó rétt að…Lesa meira

true

Brákarhlíð í fimmtíu ár – afmælisblað kemur út í dag

Með Skessuhorni sem kom út í dag fylgir 28 síðna sérblað um Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili í Borgarnesi. Í byrjun næsta árs verða fimmtíu ár liðin frá vígslu heimilisins. Sagan er rifjuð upp, rætt við starfsfólk fyrr og nú, íbúa og aðstandendur. Auk hefðbundinnar dreifingar á Skessuhorni er blaðið sent inn á öll heimili á…Lesa meira

true

Hefur verið fyrirmyndarfyrirtæki óslitið í ellefu ár

Á hverju ári tekur Creditinfo saman lista yfir rekstur íslenskra fyrirtækja. Framúrskarandi fyrirtæki eru þau sem hafa sýnt fram á góðan og stöðugan árangur í rekstri. Í ár eru 842 fyrirtæki verðlaunuð á landsvísu, en það er um 2% af fyrirtækjum landsins. Á Vesturlandi voru þessi fyrirtæki 37 að þessu sinni. Efst á Vesturlandi raðast…Lesa meira

true

Faxabraut mulin niður

Framkvæmdir við nýjan grjótvarnargarð og uppbyggingu Faxabrautar á Akranesi eru nú hafnar af krafti. Borgarverk ehf. er verktaki við framkvæmdirnar. Umferð er nú beint um nýjan bráðabirgðaveg en gangandi og hjólandi verða að nýta aðrar hjáleiðir. Um liðna helgi var byrjað að taka upp steypuna í götunni og efnið malað í hæfilega grjótstærð. Það verður…Lesa meira

true

Straumleysi í Skorradal í kvöld

Rafmagnslaust verður í Skorradal í kvöld frá kl. 18:30 til 19:30 vegna bilunar í spennistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof  Lesa meira

true

Göngin lokuð vegna rykbindingar

Hvalfjarðargöng eru lokuð vegna rykbindingar. Vinna hófst kl. 16:00 og áætlað er að henni verði lokið og göngin opnuð að nýju núna kl. 16:30, að því er fram kemur á Twitter-síðu Vegagerðarinnar.Lesa meira

true

Forsetar og fleiri mættir á Rökkurdaga

Eins og greint hefur verið frá hófust Rökkurdagar í Grundarfirði í gær. Munu þeir standa yfir í viku og ljúka næstkomandi sunnudag. Meðfylgjandi mynd tók Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari í morgun þegar þær Ágústa og Rut frá Líkamsræktinni mættu út til að stýra æfingum. Við fyrstu sýn er engu líkara en að Donald Trump sjálfur…Lesa meira