Fréttir

true

Ósátt með stöðuna í viðskiptum með greiðslumark

Guðrún Sigurjónsdóttir, bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal, er ósátt við þá stöðu sem komin er upp um viðskipti með greiðslumark mjólkur. Telur hún að forsvarsmenn bænda hafi hvorki haft umboð til að semja um það verð sem nú er búið að binda í greinina né heldur þann tíma sem um var samið í viðræðum við…Lesa meira

true

Steypt á höfninni

Starfsmenn Almennu umhverfisþjónustunnar voru önnum kafnir við steypuvinnu á bryggjunni í Grundarfirði í blíðviðrinu síðasta mánudag. Ágætis gangur er í framkvæmdum við höfnina en Borgarverk hefur lokið sínum verkhluta og eru starfsmenn þess horfnir á braut í bili. Almenna umhverfisþjónustan hefur nú tekið við keflinu og á meðan vel viðrar er góður gangur í verkinu.Lesa meira

true

Selja pungvax og skeggolíur í nýrri vefverslun

Bræðurnir Sigurður Árni og Atli Snær Júlíussynir reka saman vefverslunina Herrahellirinn í Borgarnesi þar sem seldar eru hágæða herrasnyrtivörur, eins og segir á vefsíðu fyrirtækisins. Þar má finna allt frá skeggolíum, sjampói fyrir hárið og meira að segja pungvax svo fátt eitt sé nefnt. Nú hafa þeir bræður verið í rekstri í um þrjár vikur…Lesa meira

true

Talsverð hreyfing á fylgi flokka

MMR birti í dag frétt um nýja könnun á fylgi stjórnmálaflokka. Samkvæmt henni mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins nú 21,9%, tæplega fjórum prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í september. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um rúmlega tvö prósentustig og mælist nú 15,2% en fylgi Pírata minnkaði um eitt og hálft prósentustig og mældist nú…Lesa meira

true

Krósk flytur að Kirkjubraut á Akranesi

Kristín Ósk Halldórsdóttir kjólaklæðskeri flytur brátt verslunina Krósk og vinnustofu sína að Kirkjubraut 54 á Akranesi. Hún hefur undanfarin ár haft vinnustofu sína og litla verslun að Smiðjuvöllum 8. Þess utan var hún með verslun í félagi við aðra við Laugaveg í Reykjavík þangað til síðastliðið vor. „Vefverslunin var orðin svo stór að ég fór…Lesa meira

true

Fjölgað um einn í einangrun en fækkun í sóttkví

Frá því í gær hefur fjölgað um einn á Vesturlandi sem eru í einangrun með Covid-19. Eru nú 21. Þar af eru 16 á svæði heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, fjórir í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Í sóttkví eru nú 58 á Vesturlandi og hefur fækkað um 14 frá í gær. Fimm eru í Búðardal, þrír…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast á Akranesi á morgun

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar er haldin á hverju ári en hún var fyrst haldin 2002. Í ár stendur hátíðin frá fimmtudeginum 29. október til 8. nóvember. Tilgangur hátíðarinnar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi…Lesa meira

true

Á gjörgæslu eftir líkamsárás í Borgarnesi

Karlmaður á sextugsaldri, sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Borgarnesi mánudaginn 19. október síðastliðinn, var fluttur á gjörgæslu tveimur dögum síðar. Ástand hans hafði þá versnað mjög og var talið lífshættulegt. Hann var rifbeinsbrotinn, kjálkabrotinn og mögulega viðbeinsbrotinn ásamt því að hafa nokkur bitför í andliti. Eftir að hann var fluttur frá sjúkrahúsinu á Akranesi…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll í fyrramálið

Veðurstofan bendir á að í kvöld og fyrramálið hvessir um sunnan- og vestanvert landið. Á Kjalarnesi og í Hvalfirði er búist við að vindhviður nái allt að 35 m/s í fyrramálið frá kl. 5 til 8. Hvassara verður á suðausturlandi, en í hviðum í Öræfum gætu orðið 35-40 m/s frá kl. 18 í kvöld og…Lesa meira