Fréttir

true

Stofna menningarsjóð í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt tillögu menningarmálanefndar þess efnis að koma á fót sjóði til styrktar menningarmálaverkefnum í Dalabyggð. Menningarmálanefnd sveitarfélagsins mun taka við umsóknum og úthluta úr sjóðnum, sem verður tryggður peningur í fjárhagsáætlun hvers árs, frá og með árinu 2021. Fyrir liggur að semja þarf reglur um hlutverk sjóðsins og úthlutun úr honum og…Lesa meira

true

Valkvæðum aðgerðum frestað tímabundið

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða og hefur auglýsing þess efnis verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Frestunin tekur gildi frá og með deginum í dag á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi.…Lesa meira

true

Átján í einangrun á Vesturlandi

Í dag eru 18 manns í einangrun vegna Covid-19 í landshlutanum, jafn margir og á föstudaginn, samkvæmt tölum sem Lögeglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Af þessum 18 eru langflestir í sóttkví á svæði heilsugæslunnar á Akranesi, eða 14 manns. Þrír eru í sóttkví í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Nokkuð hefur fjölgað í…Lesa meira

true

Ekki vitað til að fólk smitist af riðu í sauðfé

Af gefnu tilefni hefur Matvælastofnun vakið athygli á upplýsingasíðu um riðuveiki á vef stofnunarinnar. Þar eru m.a. upplýsingar um eðli smitefnis riðu, einkenni veikinnar, smitleiðir og til hvaða aðgerða er gripið þegar smit greinist. Þar kemur fram að engar vísbendingar eru um að fólki stafi hætta af snertingu við riðusmitað fé né neyslu afurða þess,…Lesa meira

true

Fimmtíu smit í gær

Fimmtíu manns greindust með kórónuveiruna í gær, sunnudaginn 25. október. Af þeim voru 22 í sóttkví við greiningu en 28 utan sóttkvíar. Þrjú smit greindust á landamærunum og beðið er eftir niðurstöðu mótefnamælingar ellefu sýna. Í dag liggja fimmtíu á Landspítala vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Á landsvísu eru 2.468 og hefur…Lesa meira

true

Rökkurdagar haldnir hátíðlegir í Grundarfirði

Menningarhátíðin Rökkurdagar í Grundarfirði hefjast í dag, mánudaginn 26. október og standa til 1. nóvember. Í ljósi aðstæðna er hátíðin með breyttu sniði í ár en Grundfirðingar gera það besta úr aðstæðum og hefur nú birst vegleg dagskrá á heimasíðu bæjarins. Íbúar eru hvattir til að vera duglegir með myndavélina á meðan Rökkurdögum stendur og…Lesa meira

true

Endurræsa körfuboltatímabilið

Körfuknattleikssamband Íslands hefur gefið út leiðbeiningar um endurræsingu keppnistímabils Domino‘s og 1. deilda eftir stopp vegna sóttvarnarráðstafana yfirvalda. Nefnast leiðbeiningarnar „Aftur á parketið“. Leiðbeiningarnar eru unnar í samvinnu við heilbrigðisteymi KKÍ og fræðasamfélagið, en meðal annars er byggt á endurræsingar leiðbeiningum FIBA. „Aftur á parketið er hugsað sem eins konar leiðarvísir eða leiðbeiningar til þeirra…Lesa meira

true

Haraldur ráðinn skólastjóri Auðarskóla

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 15. október síðastliðinn var samþykkt tillaga byggðarráðs þess efnis að ráða Harald Haraldsson sem skólastjóra Auðarskóla þar sem Hlöðver Ingi Gunnarsson hefur sagt starfi sínu lausu. var Hlöðveri þakkað fyrir vel unnin störf við skólann. Haraldur var valinn úr hópi fimm umsækjenda en hann hefur 30 ára reynslu af starfi skólastjóra.…Lesa meira

true

Ísland fjarlægt af gráa listanum

Ísland hefur verið fjarlægt af hinum svokallaða gráa lista FAFT, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta var ákveðið á aðalfundi hópsins á föstudag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Stjórnarráðinu, en Ísland var sett á listann í október í fyrra en hefur verið fjarlægt af listanum í kjölfar vettvangsathugunar…Lesa meira

true

Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur boðað að innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verði haldinn fyrstu vikuna í nóvember. Innlausnarverðið er andvirði beingreiðslna næstu tveggja ára á núvirði, eða kr. 12.764 á ærgildi. Það greiðslumark sem er innleyst verður jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. Bændur sem eiga hundrað kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra…Lesa meira