
Rafmagnslaust verður í Skorradal í kvöld frá kl. 18:30 til 19:30 vegna bilunar í spennistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof Lesa meira

Rafmagnslaust verður í Skorradal í kvöld frá kl. 18:30 til 19:30 vegna bilunar í spennistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof Lesa meira

Hvalfjarðargöng eru lokuð vegna rykbindingar. Vinna hófst kl. 16:00 og áætlað er að henni verði lokið og göngin opnuð að nýju núna kl. 16:30, að því er fram kemur á Twitter-síðu Vegagerðarinnar.Lesa meira

Eins og greint hefur verið frá hófust Rökkurdagar í Grundarfirði í gær. Munu þeir standa yfir í viku og ljúka næstkomandi sunnudag. Meðfylgjandi mynd tók Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari í morgun þegar þær Ágústa og Rut frá Líkamsræktinni mættu út til að stýra æfingum. Við fyrstu sýn er engu líkara en að Donald Trump sjálfur…Lesa meira

Í dag, þriðjudaginn 27. október, eru 20 manns í einangrun á Vesturlandi, tveimur fleiri en voru í gær. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Flestir eru í einangrun á Akranesi, eða 15, og þar fjölgar um einn á milli daga. Fjórir eru í einangrun í Borgarnesi, einum fleiri en í gær…Lesa meira

Lögreglan á Vesturlandi hefur hafið rannsókn á bjórsölu í netverslun frá brugghúsi Steðja í Borgarfirði. Eins og fram kom í viðtali við Dagbjart Arilíusson, eiganda Steðja, í Skessuhorni í síðustu viku átti hann allt eins von á að hann myndi sæta rannsókn fyrir söluna. Hann hafi hins vegar ákveðið að láta reyna á lögmæti þess…Lesa meira

Alls greindust 59 manns með Covid-19 hér innanlands í gær. Af þeim voru 19 í sóttkví við greiningu, að því er fram kemur í uppfærðum tölum á covid.is. Í dag eru 53 á sjúkrahúsi vegna kórónaveirunnar, þar af einn á gjörgæslu. 1.048 eru í einangrun í dag og hefur fjölgað um 18 síðan í gær.…Lesa meira

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni sem komin er upp í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi. Í síðustu viku greindist riðuveiki á bænum Stóru- Ökrum 1 og Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar. Matvælastofnun hefur undanfarna daga unnið að sýnatöku á svæðinu. Fyrstu…Lesa meira

Bleikt málþing um brjóstakrabbamein verður haldið í dag kl. 17:00-18:15 á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Málþinginu verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins og er ekki gert ráð fyrir gestum í hús. Dagskrá Setning: Brynja Björk Gunnarsdóttir formaður Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna. Brjóstakrabbamein og Covid 19 – áhrif og líðan. Ólöf…Lesa meira

Skallagrímskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið valin í landslið kvenna sem tekur þátt í undankeppni EM á næstunni. Ísland leikur í A-riðli undankeppninnar sem spilaður verður í Heraklion á eyjunni Krít á Grikklandi 8.-15. nóvember næskomandi. Sigrún Sjöfn er reynslumesta landsliðskonan í hópnum og á að baki 53 landsleiki. Íslenska liðið flýgur út laugardaginn 7.…Lesa meira

Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókna á banaslysi sem varð á móts við bæinn Gröf í Eyja- og Miklaholtshreppi í október á síðasta ári. Fimm manna amerísk fjölskylda var í bíl sem hafnaði utan vegar og valt. Í niðurstöðu rannsóknar segir að rekja megi slysið til þreytu ökumanns eftir langt flug hingað til lands frá Ameríku.…Lesa meira