Fréttir

true

Fjölgar um tvo í einangrun

Í dag, þriðjudaginn 27. október, eru 20 manns í einangrun á Vesturlandi, tveimur fleiri en voru í gær. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Flestir eru í einangrun á Akranesi, eða 15, og þar fjölgar um einn á milli daga. Fjórir eru í einangrun í Borgarnesi, einum fleiri en í gær…Lesa meira

true

Sætir rannsókn eins og hann bjóst við

Lögreglan á Vesturlandi hefur hafið rannsókn á bjórsölu í netverslun frá brugghúsi Steðja í Borgarfirði. Eins og fram kom í viðtali við Dagbjart Arilíusson, eiganda Steðja, í Skessuhorni í síðustu viku átti hann allt eins von á að hann myndi sæta rannsókn fyrir söluna. Hann hafi hins vegar ákveðið að láta reyna á lögmæti þess…Lesa meira

true

59 smit í gær

Alls greindust 59 manns með Covid-19 hér innanlands í gær. Af þeim voru 19 í sóttkví við greiningu, að því er fram kemur í uppfærðum tölum á covid.is. Í dag eru 53 á sjúkrahúsi vegna kórónaveirunnar, þar af einn á gjörgæslu. 1.048 eru í einangrun í dag og hefur fjölgað um 18 síðan í gær.…Lesa meira

true

Riðuveiki rædd í ríkisstjórn

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni sem komin er upp í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi. Í síðustu viku greindist riðuveiki á bænum Stóru- Ökrum 1 og Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar. Matvælastofnun hefur undanfarna daga unnið að sýnatöku á svæðinu. Fyrstu…Lesa meira

true

Málþing síðdegis í dag: Brjóstakrabbamein – fordæmalausir tímar

Bleikt málþing um brjóstakrabbamein verður haldið í dag kl. 17:00-18:15 á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Málþinginu verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins og er ekki gert ráð fyrir gestum í hús. Dagskrá Setning: Brynja Björk Gunnarsdóttir formaður Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna. Brjóstakrabbamein og Covid 19 – áhrif og líðan. Ólöf…Lesa meira

true

Sigrún Sjöfn í landsliðshópnum

Skallagrímskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið valin í landslið kvenna sem tekur þátt í undankeppni EM á næstunni. Ísland leikur í A-riðli undankeppninnar sem spilaður verður í Heraklion á eyjunni Krít á Grikklandi 8.-15. nóvember næskomandi. Sigrún Sjöfn er reynslumesta landsliðskonan í hópnum og á að baki 53 landsleiki. Íslenska liðið flýgur út laugardaginn 7.…Lesa meira

true

Vansvefta ökumaður og bílbelti ekki notuð

Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókna á banaslysi sem varð á móts við bæinn Gröf í Eyja- og Miklaholtshreppi í október á síðasta ári. Fimm manna amerísk fjölskylda var í bíl sem hafnaði utan vegar og valt. Í niðurstöðu rannsóknar segir að rekja megi slysið til þreytu ökumanns eftir langt flug hingað til lands frá Ameríku.…Lesa meira

true

Stofna menningarsjóð í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt tillögu menningarmálanefndar þess efnis að koma á fót sjóði til styrktar menningarmálaverkefnum í Dalabyggð. Menningarmálanefnd sveitarfélagsins mun taka við umsóknum og úthluta úr sjóðnum, sem verður tryggður peningur í fjárhagsáætlun hvers árs, frá og með árinu 2021. Fyrir liggur að semja þarf reglur um hlutverk sjóðsins og úthlutun úr honum og…Lesa meira

true

Valkvæðum aðgerðum frestað tímabundið

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða og hefur auglýsing þess efnis verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Frestunin tekur gildi frá og með deginum í dag á höfuðborgarsvæðinu en skipulagðar aðgerðir utan höfuðborgarsvæðisins eru heimilar dagana 27. og 28. október. Frestunin gildir til og með 15. nóvember næstkomandi.…Lesa meira

true

Átján í einangrun á Vesturlandi

Í dag eru 18 manns í einangrun vegna Covid-19 í landshlutanum, jafn margir og á föstudaginn, samkvæmt tölum sem Lögeglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Af þessum 18 eru langflestir í sóttkví á svæði heilsugæslunnar á Akranesi, eða 14 manns. Þrír eru í sóttkví í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Nokkuð hefur fjölgað í…Lesa meira