Fréttir

true

Ekki vitað til að fólk smitist af riðu í sauðfé

Af gefnu tilefni hefur Matvælastofnun vakið athygli á upplýsingasíðu um riðuveiki á vef stofnunarinnar. Þar eru m.a. upplýsingar um eðli smitefnis riðu, einkenni veikinnar, smitleiðir og til hvaða aðgerða er gripið þegar smit greinist. Þar kemur fram að engar vísbendingar eru um að fólki stafi hætta af snertingu við riðusmitað fé né neyslu afurða þess,…Lesa meira

true

Fimmtíu smit í gær

Fimmtíu manns greindust með kórónuveiruna í gær, sunnudaginn 25. október. Af þeim voru 22 í sóttkví við greiningu en 28 utan sóttkvíar. Þrjú smit greindust á landamærunum og beðið er eftir niðurstöðu mótefnamælingar ellefu sýna. Í dag liggja fimmtíu á Landspítala vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Á landsvísu eru 2.468 og hefur…Lesa meira

true

Rökkurdagar haldnir hátíðlegir í Grundarfirði

Menningarhátíðin Rökkurdagar í Grundarfirði hefjast í dag, mánudaginn 26. október og standa til 1. nóvember. Í ljósi aðstæðna er hátíðin með breyttu sniði í ár en Grundfirðingar gera það besta úr aðstæðum og hefur nú birst vegleg dagskrá á heimasíðu bæjarins. Íbúar eru hvattir til að vera duglegir með myndavélina á meðan Rökkurdögum stendur og…Lesa meira

true

Endurræsa körfuboltatímabilið

Körfuknattleikssamband Íslands hefur gefið út leiðbeiningar um endurræsingu keppnistímabils Domino‘s og 1. deilda eftir stopp vegna sóttvarnarráðstafana yfirvalda. Nefnast leiðbeiningarnar „Aftur á parketið“. Leiðbeiningarnar eru unnar í samvinnu við heilbrigðisteymi KKÍ og fræðasamfélagið, en meðal annars er byggt á endurræsingar leiðbeiningum FIBA. „Aftur á parketið er hugsað sem eins konar leiðarvísir eða leiðbeiningar til þeirra…Lesa meira

true

Haraldur ráðinn skólastjóri Auðarskóla

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 15. október síðastliðinn var samþykkt tillaga byggðarráðs þess efnis að ráða Harald Haraldsson sem skólastjóra Auðarskóla þar sem Hlöðver Ingi Gunnarsson hefur sagt starfi sínu lausu. var Hlöðveri þakkað fyrir vel unnin störf við skólann. Haraldur var valinn úr hópi fimm umsækjenda en hann hefur 30 ára reynslu af starfi skólastjóra.…Lesa meira

true

Ísland fjarlægt af gráa listanum

Ísland hefur verið fjarlægt af hinum svokallaða gráa lista FAFT, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta var ákveðið á aðalfundi hópsins á föstudag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Stjórnarráðinu, en Ísland var sett á listann í október í fyrra en hefur verið fjarlægt af listanum í kjölfar vettvangsathugunar…Lesa meira

true

Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur boðað að innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verði haldinn fyrstu vikuna í nóvember. Innlausnarverðið er andvirði beingreiðslna næstu tveggja ára á núvirði, eða kr. 12.764 á ærgildi. Það greiðslumark sem er innleyst verður jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. Bændur sem eiga hundrað kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra…Lesa meira

true

Ráðin vefstjóri og upplýsingafulltrúi á Bifröst

Nýverið var Steinunn Stefánsdóttir ráðin í hlutastarf sem upplýsingafulltrúi og vefstjóri Háskólans á Bifröst. Á vef skólans segir að Steinunn sé með BA-próf í almennum málvísindum og íslensku og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands og leggur hún nú stund á meistaranám í þýðingafræði við sama skóla. Steinunn hefur starfað við framhaldsskólakennslu, verið upplýsingafulltrúi Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur (nú…Lesa meira

true

119 þúsund Íslendingar hafa nýtt ferðagjöfina

Síðastliðinn miðvikudag höfðu 170 þúsund manns sótt ferðagjöf stjórnvalda, fimm þúsund króna styrk til kaupa á einhvers konar ferðaþjónustu. Af þeim höfðu 119 þúsund nýtt ferðagjöfina fyrir alls um 848 milljónir króna. Það samsvarar því að þriðji hver Íslendingu hafi nýtt hana. Flestir hafa nýtt ferðagjöfina til kaupa á gistingu, eða 32%. Í veitingageirann fóru…Lesa meira

true

Dýrafjarðargöng verða opnuð í dag

Klukkan 14 í dag verða Dýrafjarðargöng á Vestfjörðum formlega opnuð. Með tilkomu ganganna styttist Vestfjarðavegur um 27,4 km þar sem leiðin yfir Hrafnseyrarheiði, sem lengi hefur verið einn helsti farartálminn yfir vetrarmánuðina, leggst af. Nú er því hægt að tryggja öruggar samgöngur milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Um leið er stigið skref í að tryggja vegasamband…Lesa meira