Fréttir

true

Daði og Gagnamagnið í Eurovision á næsta ári

Ríkisútvarpið hefur ákveðið að velja Daða Frey og Gagnamagnið til að taka þátt í Eurovision-keppninni í Hollandi fyrir Íslands hönd á næsta ári. Daði sigraði Söngvakeppnina hér heima með laginu Think About Things síðastliðinn vetur. Lagið vakti mikla athygli víða um heim og þótti Daði af mörgum líklegur til sigurs í Eurovision-keppninni, sem var síðar…Lesa meira

true

Þrjátíu innanlandssmit

Alls greindust 30 manns með kórónuveiruna hér innanlands í gær. Er það mjög sambærilegur fjöldi og daginn áður, þegar 33 greindust. Af þeim sem greindust í gær voru 18 í sóttkví við greiningu, eða 60%. Sex smit greindust á landamærunum, eitt virkt smit en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í fimm tilvikum. Samkvæmt uppfærðum tölum á…Lesa meira

true

Þjóðlenduúrskurði um Þóreyjartungur snúið við í Landsrétti

Landsréttur kvað sl. föstudag upp dóm í þjóðlendumáli er snertir Þóreyjartungur í ofanverðum Borgarfirði, sem eru hluti af sameiginlegum afrétti Lundarreykjadals og Andakílshrepps. Með dómnum sneri Landsréttur við bæði niðurstöðu Óbyggðanefndar og dómi Héraðsdóms Vesturlands frá 10. apríl 2019, sem staðfest hafði kröfu Óbyggðanefndar um að Þóreyjartungur væru þjóðlenda. Óbyggðanefnd hafði ekki fallist á aldagamla…Lesa meira

true

Hárgreiðslustofan Silfur opnuð á ný

Guðrún Hrönn Hjartardóttir hefur opnað hárgreiðslustofuna Silfur á ný eftir árs hlé. Guðrún lokaði á síðasta ári er hún fór í fæðingarorlof en nú hefur hún opnað aftur á nýjum stað en stofan er til húsa á Nesvegi 7 þar sem rafeindaverkstæðið Mareind er til húsa. Engin hárgreiðslustofa var í bæjarfélaginu síðastliðið ár og því…Lesa meira

true

Varnir gegn náttúruvá fyrirferðarmiklar í fjármálaáætlun

Stjórnvöld hyggjast veita aukalega 10,2 milljörðum króna til ofanflóðavarna og eflingar vöktunar og styrkingu stjórnsýslu vegna náttúruvár samkvæmt fjármálaáætlun áranna 2021-2025. Eins og kunnugt er gekk fárviðri yfir Ísland í desember 2019 og olli miklu tjóni. Samgöngur lögðust af og atvinnulífið lamaðist á þeim svæðum sem urðu verst úti. Í kjölfar veðursins skipaði ríkisstjórnin átakshóp…Lesa meira

true

Blásið til draugasögusamkeppni

Undirbúningurinn fyrir Föstudaginn dimma í Borgarbyggð er kominn á fullan skrið, en hann verður haldinn í svartasta skammdeginu snemma á nýju ári, 15. janúar næstkomandi. Í tilefni Föstudagsins dimma að þessu sinni hafa aðstandendur hans ákveðið að efna til sagnasamkeppni um draugasögur af Vesturlandi. Tekið er við flökkusögum, lygasögum, þjóðsögum, hamfarasögum, hetjusögum, hræðilegum sögum eða…Lesa meira

true

Níutíu prósent fylgjandi nýjum samningi

Starfsmenn Norðuráls samþykktu nýjan kjarasamning við fyrirtækið með afgerandi meirihluta, eða 89,2% greiddra atkvæða. Alls voru 8% andvíg en 2,8% tóku ekki afstöðu til samningsins, að því er fram kemur á vef Verkalýðsfélags Akraness. Þátttaka í kosningunni um kjarasamningin var afar góð. Alls greiddu 399 manns atkvæði, eða 88,% þeirra sem voru á kjörskrá. Vilhjálmur…Lesa meira

true

Sýknað fyrir sölu á lambakjöti af heimaslátruðu

Matvælastofnun óskaði eftir rannsókn lögreglu á markaðssetningu á kjöti af heimaslátruðum lömbum á bændamarkaði á Hofsósi haustið 2018. Rannsókn lögreglunnar leiddi til að lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra gaf út ákæru í málinu. Ákærði hefur verið sýknaður af Héraðsdómi Norðurlands vestra vegna þess að sú háttsemi að selja eða dreifa afurðum af gripum sem ekki var…Lesa meira

true

Fjölgar mikið í sóttkví á Vesturlandi

Verulega hefur fjölgað í hópi þeirra sem sæta sóttkví vegna Covid-19 á Vesturlandi síðan í gær. Í dag eru þeir 60 talsins í landshlutanum öllum, en voru 32 í gær. Flestir eru í sóttkví á svæði heilsugæslunnar á Akranesi, eða 38 og fjölgar þar um 25 milli daga. Næstflestir eru í Borgarnesi, 20 talsins og…Lesa meira

true

33 smit innanlands

Alls greindust 33 með Covid-19 innanlands í gær. Af þeim voru 20 í sóttkví við greiningu, sem samsvarar 61%. Í dag liggur 21 á sjúkrahúsi vegna kórónaveirunnar, þar af þrír á gjörgæslu. Fram kom á upplýsingafundi almannavarna að af þeim þremur sem eru á gjörgæslu séu tveir í öndunarvél. Alls eru 1.159 í einangrun með…Lesa meira