Guðrún Hrönn, Ragnar Smári Guðmundsson og börnin þeirra þrjú, Gunnar Smári, Haukur Smári og Guðrún Björk. Ljósm. tfk.
2. október 2021
Guðrún Hrönn Hjartardóttir hefur opnað hárgreiðslustofuna Silfur á ný eftir árs hlé. Guðrún lokaði á síðasta ári er hún fór í fæðingarorlof en nú hefur hún opnað aftur á nýjum stað en stofan er til húsa á Nesvegi 7 þar sem rafeindaverkstæðið Mareind er til húsa. Engin hárgreiðslustofa var í bæjarfélaginu síðastliðið ár og því er þetta kærkomin viðbót við þjónustuna í Grundarfirði.