Fréttir

true

Nemendur á heimavist FVA í sóttkví

Covid19-smit kom upp á heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Heimavistinni hefur nú verið lokað og nemendur sem þar búa og starfsmenn eru í sóttkví. Næstu skref eru í höndum smitrakningarteymis Landspítalans. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari sendi nemendum. „Ekki er ástæða til ótta og ekki er talin þörf…Lesa meira

true

Varaforsetum ASÍ fjölgað í þrjá

Síðastliðinn miðvikudag fór 44. þing Alþýðusambands Íslands fram. Fyrirkomulagið var óhefðbundið en 300 manns komu saman á fjarfundi. Lögum var breytt í þá veru að varaformenn sambandsins var fjölgað úr tveimur í þrjá. Í kosningu um þetta nýja embætti var aðeins Ragnar Þór Ingólfsson í framboði og var hann því sjálfkjörinn. Ekki bárust nein mótframboð…Lesa meira

true

Brotist inn á veitingastað í Búðardal

Síðastliðna nótt var brotist inn í veitingastaðinn Veiðistaðinn í Búðardal. Skemmdir eru á útihurð þar sem tilraun hefur verið gerð til að spenna upp hurðina ásamt því að ná gleri úr hurð. Það bar ekki árangur og ljóst að sá eða þeir sem þarna voru á ferð hafa náð að brjóta sér leið í gegnum…Lesa meira

true

Grunur um útbreiðsla riðu í Skagafirði

Sterkur grunur er um að riða hafi greinst í sauðfé sem flutt var frá Stóru-Ökrum í Skagafirði þar sem riðuveiki var staðfest í vikunni. Féð var flutt að Grænumýri og Syðri-Hofdölum í Blönduhlíð og að Hofi í Hjaltadal. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að staðfestingu á endanlegri greiningu sé að vænta um miðja næstu…Lesa meira

true

Fjórhjólahópurinn Lísurnar í sinni fyrstu ferð

Nokkrar röggsamar dömur í Grundarfirði hafa tekið sig saman og stofnað fjórhjólahóp. Ekki er komið eiginlegt nafn á hópinn en nafninu Lísurnar hefur verið fleygt fram og er það væntanlega til heiðurs eins af stofnendum hópsins, en Lísa Ásgeirsdóttir á stóran þátt í þessu. Alls fóru sjö konur á sex fjórhjólum um torfæra vegslóða í…Lesa meira

true

Kantljósin komin upp í göngunum

Uppsetningu kantljósa í Hvalfjarðargöngum er lokið og verður gerð lokaúttekt á þeim í næstu viku. Um er að ræða LED-ljós sem sett voru upp með 25 metra millibili ofan á steyptri vegöxl, rétt fyrir ofan kantstein gangann, samtals 506 ljós. Það var fyrirtækið Orkuvirki ehf. sem annaðist framkvæmdina ásamt undirverktakanum Sagtækni ehf., eins og áður…Lesa meira

true

Fjölgar lítillega í sóttkví

Í dag, föstudaginn 23. október, eru 18 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, samkvæmt nýjum tölum frá lögreglunni. Eru það jafnmargir og í gær. Nær allir sem sæta einangrun í landshlutanum eru á svæði heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, eða 16 af 18. Einn er í einangrun í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Samtals 69 eru í…Lesa meira

true

Daði og Gagnamagnið í Eurovision á næsta ári

Ríkisútvarpið hefur ákveðið að velja Daða Frey og Gagnamagnið til að taka þátt í Eurovision-keppninni í Hollandi fyrir Íslands hönd á næsta ári. Daði sigraði Söngvakeppnina hér heima með laginu Think About Things síðastliðinn vetur. Lagið vakti mikla athygli víða um heim og þótti Daði af mörgum líklegur til sigurs í Eurovision-keppninni, sem var síðar…Lesa meira

true

Þrjátíu innanlandssmit

Alls greindust 30 manns með kórónuveiruna hér innanlands í gær. Er það mjög sambærilegur fjöldi og daginn áður, þegar 33 greindust. Af þeim sem greindust í gær voru 18 í sóttkví við greiningu, eða 60%. Sex smit greindust á landamærunum, eitt virkt smit en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í fimm tilvikum. Samkvæmt uppfærðum tölum á…Lesa meira

true

Þjóðlenduúrskurði um Þóreyjartungur snúið við í Landsrétti

Landsréttur kvað sl. föstudag upp dóm í þjóðlendumáli er snertir Þóreyjartungur í ofanverðum Borgarfirði, sem eru hluti af sameiginlegum afrétti Lundarreykjadals og Andakílshrepps. Með dómnum sneri Landsréttur við bæði niðurstöðu Óbyggðanefndar og dómi Héraðsdóms Vesturlands frá 10. apríl 2019, sem staðfest hafði kröfu Óbyggðanefndar um að Þóreyjartungur væru þjóðlenda. Óbyggðanefnd hafði ekki fallist á aldagamla…Lesa meira