Fréttir

true

Samþykktu viðauka við fjárhagsáætlun

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var lögð fram tillaga að viðauka IV við fjárhagsáætlun ársins 2021. Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir auknum útgjöldum vegna samnings við aðila Húsafellsmáls 10 millj. kr., kostnaður við úttekt á framkvæmdum verði 1,3 millj. kr. og aukning á kennslukvóta við Grunnskólann í Borgarnesi verði 1,7 millj.…Lesa meira

true

Inngangar á talningarstað voru vaktaðir en ekki kjörgögnin

Björn Leví Gunnarsson alþingismaður Pírata, sem sæti á í undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis, skrifar í morgun grein í Morgunblaðið þar sem hann lýsir vettvangsferð nefndarinnar í Borgarnes í gær. Hana fór nefndin til að kanna af eigin raun aðstæður á talningarstað í NV kjördæmi, skoða kjörgögn og fá að tala við þá sem báru ábyrgð á…Lesa meira

true

Extramótið í sundi var um helgina

Það var mikið fjör í Ásvallalaug í Hafnarfirði um síðustu helgi þegar Extramót Sundfélags Hafnarfjarðar fór fram. 18 sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt en keppendur voru um 280 frá 14 félögum. Alls fengu sundmenn frá ÍA tvö gull, átta silfur og sjö brons og stóðu sig mjög vel, sýndu miklar framfarir frá síðasta móti…Lesa meira

true

Fyrsta ferðin í samþættu leiðarkerfi fór af stað í gær

Tilraunaverkefni í samþættu leiðarkerfi í Borgarbyggð hófst með formlegum hætti í gærmorgun þegar fyrsta ferð var farin frá Kleppjárnsreykjum niður í Borgarnes, með viðkomu á Hvanneyri. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fengu tólf milljóna króna í styrk til tveggja ára frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til að koma verkefninu í framkvæmd en um er að ræða samstarfsverkefni…Lesa meira

true

Byrjað að breyta tanki í íbúðarhús

Í sumar var hafist handa við að breyta olíutanki í útjaðri Rifs í Snæfellsbæ í íbúðarhúsnæði. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í sumar standa þau Hildigunnur Haraldsdóttir arkitekt og Þórir Gunnarsson matreiðslumaður á bakvið verkefnið. Góður gangur er í framkvæmdunum en búið er að brenna fyrir gluggum og hurð og koma bæði gluggunum…Lesa meira

true

Strætóferðir hafa fallið niður í dag

Mjög hvasst hefur verið á Kjalarnesi og sömuleiðis á þjóðveginum við Hafnarfjall í dag enda vindáttin austanstæð. Þetta hefur orðið til þess að allar strætóferðir milli Reykjavíkur og Akraness hafa fallið niður í dag og búist við að svo verði áfram sem eftir lifir dags. Þá kemst strætisvagn sem lagði af stað á fimmta tímanum…Lesa meira

true

Verulegar afléttingar taka gildi á miðnætti

Verulegar afléttingar verða gerðar á samkomutakmörkunum innanlands vegna Covid-19 frá og með miðnætti í kvöld, miðvikudaginn 20. október. Almennar fjöldatakmarkanir fara þá úr 500 manns í 2000. Með notkun hraðprófa má víkja frá þeim takmörkunum og nándarreglu, en nándarreglan verður enn óbreytt, einn metri, með sömu undantekningum og hafa verið á sitjandi viðburðum og við…Lesa meira

true

Undirbúningsnefnd lokaði að sér á hótelinu klukkan 13

Í hádeginu í dag kom undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa saman til fundar í Borgarnesi undir stjórn Birgis Ármanssonar formanns. Að lokinni skoðun á húsakosti á hótelinu var fundinum lokað fyrir fjölmiðlafólki sem var á svæðinu. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi fram eftir degi og jafnvel til kvölds. Meðal annars ræðir þingnefndin við…Lesa meira

true

Töldu ónotaða kjörseðla og funda í kjölfarið

Í morgun mættu þrír nefndarmenn, alþingismenn sem sitja í undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, í Borgarnes. Erindi þeirra var að fylgjast með fulltrúum úr yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis og sýslumanninum á Vesturlandi telja ónotaða atkvæðaseðla frá þingkosningunum 25. september. Kjörseðlarnir höfðu verið geymdir í innsiglaðri fangageymslu á lögreglustöðinni í Borgarnesi. Ákveðið hafði verið að telja seðlana til að…Lesa meira

true

Rekstur sjávarútvegsfyrirtækja gekk vel miðað við aðstæður

Þrátt fyrir krefjandi aðstæður í fyrra, vegna Covid-19, gekk rekstur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldisfyrirtækja ágætlega. Þetta má lesa úr samantekt Deloitte sem kynnt var á hinum árlega Sjávarútvegsdegi, sem var í dag. Dagurinn er samstarfsverkefni Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Deloitte og Samtaka atvinnulífsins. Samantekt Deloitte byggist á ársuppgjörum fyrirtækja sem hafa yfir að ráða um…Lesa meira