
Jón Sigurðsson, skólamaður, fyrrverandi ráðherra, Seðlabankastjóri og formaður Framsóknarflokksins, er látinn 75 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Jón var fæddur í Kollafirði á Kjalarnesi 23. ágúst 1946. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1966 og þremur árum síðar brautskráðist hann með BA-próf í íslensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands. Frá útskrift…Lesa meira








