Fréttir

true

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninga laugardaginn 25. september næstkomandi hófst 13. ágúst. Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum og útibúum sýslumanna um allt land fram að kjördegi. Öllum á kjörskrá er heimilt að kjósa utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu. Hjá sýslumanninum á Vesturlandi má greiða atkvæði alla virka daga.…Lesa meira

true

Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar opnaðar á nýjum stað á mánudaginn

Bæjarskrifstofa Akraneskaupstaðar verður lokuð í dag og fram yfir helgi. Verður svo opnuð á nýjum stað mánudaginn 13. september við Dalbraut 4. Gengið verður inn í afgreiðslu þjónustuvers frá Dalbraut. Í auglýsingu frá bænum kemur fram að svarað verður í aðalnúmer, 433-1000, á venjulegum opnunartíma þrátt fyrir flutningana. Næstkomandi mánudag verða allir starfsmenn Akraneskaupstaðar komnir…Lesa meira

true

Nýtt SafeTravel app tekið í notkun

Búið er að taka í notkun nýtt snjallforrit sem ætlað er að stuðla að auknu öryggi á ferðalögum hér á landi. Um er að ræða SafeTravel appið, en það mun einfalda ákvarðanatöku við akstur á Íslandi og veitir upplýsingar í rauntíma um ástand og færð á vegum landsins. Appið er þróað af Stokki hugbúnaðarhúsi í…Lesa meira

true

Ísland ætti að vera matvælaland

Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Ragnheiði I Þórarinsdóttur rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar kemur m.a. fram að nemendafjöldi skólans hefur tvöfaldast á skömmum tíma en þar er boðið upp á þrjár fagdeildir; Ræktun og fæðu, Náttúru og skóg og Skipulag og hönnun. „Ég hef fulla trú á að Íslendingar eigi inni…Lesa meira

true

FISK kaupir 60% hlut í fjölskylduútgerð í Ólafsvík

Gengið hefur verið frá kaupum FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167 í áratugi. Fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafa rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld. Eftir kaupin munu tveir bræðranna, þeir Brynjar og Ægir Kristmundssynir, eiga ásamt fjölskyldum…Lesa meira

true

Vistvænir iðngarðar í undirbúningi á Akranesi

„Okkar markmið og sýn er að Flóahverfið á Akranesi verði öðrum til fyrirmyndar hvað varðar skipulags- og umhverfismál en jafnframt sé svæðið skilgreint sem vistvænn iðngarður þar sem margháttuð þjónusta og framleiðsla geti átt sér stað innan svæðisins auk samstarfs milli fyrirtækja innan svæðisins. Þannig sjáum við Akranes verða að eftirsóttustu áfangastöðunum á Íslandi fyrir…Lesa meira

true

Metnaðarfull áform um umbreytingu Grundaskóla

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, greinir á Facebook síðu sinni frá kynningarfundi í Teams um endurbætur á skólahúsnæði og framtíðar uppbyggingu í Grundaskóla en fundurinn var síðastliðið mánudagskvöld. Sævar segir á síðu sinni að glæsileg frumhönnun sé tilbúin og hvetur hann alla til að kynna sér þær hugmyndir sem er ætlað að skila stórglæsilegum…Lesa meira

true

Gítardúett á Landsnámssetri

Gunnar Ringsted og Reynir Hauksson leiða saman hesta sína á gítardúett tónleikum á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi föstudaginn 10. september kl. 20. Þeir munu renna í gegnum ólíkan stíl tónlistar, á borð við jazz, blús, flamenco, rokk og íslensk þjóðlög með lögum frá Django Reinhardt, Mezzoforte, The Beatles og mörgum fleirum. Gunnar og Reynir lofa…Lesa meira

true

Íþróttamót Dreyra fór fram á Æðarodda

Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Dreyra var haldið á Æðarodda helgina 28. og 29. ágúst. Skráningar voru rúmlega 70 og þátttaka í mótinu mjög góð. Fyrir þátttakendur sem komu langt að var hesthúsapláss og hey í boði. Í tilkynningu frá mótanefnd Dreyra vill félagið þakka Íslandsbanka, Landsbankanum og Kallabakarí fyrir stuðninginn og öllum keppendum og sjálfboðaliðum fyrir…Lesa meira

true

Meistarakeppni Keilusambandsins verður á Akranesi í kvöld

Í kvöld fer fram Meistarakeppni Keilusambands Íslands og að þessu sinni verður leikið í Keilusalnum á Akranesi. Sem fyrr eru það Íslandsmeistarar liða og Bikarmeistarar liða sem mætast í þessari fyrstu keppni komandi tímabils. Fyrst fer fram kvennaleikurinn en þar eigast við Íslandsmeistarar KFR-Valkyrjur við lið ÍR-Buff en KFR-Valkyrjur urðu bæði Íslands- og Bikarmeistarar 2021…Lesa meira