Fréttir

true

Misskilningur að ný brú hafi verið lögð yfir Hraunsfjörð

Vakið hefur athygli að Vegagerðin er búin að koma fyrir nýrri merkingu á brúnni yfir Hraunsfjörð á Snæfellsnesi. Í ljós hefur komið að brúin er einfaldlega ekki yfir Hraunsfjörð, heldur Seljafjörð, eins og nýja merkingin segir til um. Hraunsfjörður á Snæfellsnesi var brúaður fyrst árið 1961 og var brúin jafnframt sú fyrsta sem lögð var…Lesa meira

true

Verslunin Dótarí opnuð á Akranesi

Ný verslun, Dótarí, var fyrr í vikunni opnuð á Akranesi. Hún er til húsa í verslanamiðstöðinni Smiðjuvöllum 32. Í Dótaríi er mikið úrval leikfanga frá öllum helstu leikfangaframleiðendum. Þá er mikið úrval af fatnaði í boði ásamt gjafavöru. Það eru hjónin Tinna Grímarsdóttir og Axel Freyr Gíslason sem eiga verslunina en þau hafa um árabil…Lesa meira

true

Ungur Grundfirðingur veiddi Maríulaxinn sinn í Norðurá

Það er alltaf stór stund hjá ungum veiðimönnum þegar þeir setja í og landa fyrsta laxinum. Hann Haukur Smári Ragnarsson, 12 ára veiðimaður úr Grundarfirði, landaði laxi í Norðurá í gær og var að vonum brosmildur. Laxinn fékk hann í Hafþórsstaðahyl. Í Norðurá höfðu í gær komið 1.285 laxar á land sem er töluvert betri…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun Eyrbyggjuseturs í Skildi

Síðastliðið vor var haldinn fundur í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit þar sem stofnað var félag um Eyrbyggjusögu. Markmið félagsins er að opna setur um Eyrbyggjusögu á Skildi, þar sem haldnar verða sýningar og Eyrbyggjusaga sögð. „Á þessum slóðum eru margir áhugasamir um Eyrbyggjusögu en þetta er eiginlega héraðssaga Snæfellsness,“ segir Anna Melsteð, ein af meðlimum…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður og Sjóvá skrifa undir samning

Akraneskaupstaður og Sjóvá skrifuðu í morgun undir samning um tryggingar bæjarins. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri sagði það gríðarlega ánægjulegt fyrir Akraneskaupstað að vera nú í viðskiptum með tryggingar í heimabyggð. Auk þess sagði hann aðila máls hafa náð góðu samkomulagi sem lækki verulega kostnað Akraneskaupstaðar. „Það sýnir okkur að þið eruð áköf í að sækja…Lesa meira

true

Verndaráætlun undirrituð

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Ströndina við Arnarstapa og Hellna hefur nú verið undirrituð og staðfest af umhverfis- og auðlindaráðherra. Ströndin við Stapa og Hellna er þekkt fyrir fagra og margbreytilegar klettamyndir, ríkt fuglalíf, sögu og menningarminjar. Verndaráætlunin fyrir friðlandið er ætlað að vera stefnumótaskjal, unnið í samvinnu við sveitarfélag, íbúa og hagsmunaaðila og er…Lesa meira

true

Sigurður ráðinn forstöðumaður Ungmennabúða UMFÍ

Íþróttafræðingurinn og húsasmiðurinn Sigurður Guðmundsson á Hvanneyri hefur tekið við sem forstöðumaður Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni. Tekur hann við af Skagakonunni Önnu Margréti Tómasdóttur, sem hefur snúið sér að öðrum verkefnum. Ungmennabúðirnar eru vinsælar á meðal grunnskólanemenda og hefur mikill fjöldi þeirra dvalið þar á síðastliðnum 16 árum sem þær hafa verið starfræktar, lengst af…Lesa meira

true

Nýir golfbílar hjá Leyni á Akranesi

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi keypti nýverið þrjá golfbíla sem tilbúnir eru til útleigu á Garðavelli. Bílarnir eru rafmagnsbílar með lithíum rafhlöðum og verða merktir fyrirtækinu Norðuráli sem er eitt af stærstu bakhjörlum golfklúbbsins.Lesa meira

true

„Verðum klárlega með á næsta ári“

Reynir frá Hellissandi tók þátt á Íslandsmótinu í knattspyrnu í fyrsta skipti í sumar og þar var aðalforsprakkinn Kári Viðarsson í að koma liðinu á laggirnar. Reynir endaði í sjötta sæti C-riðils í 4. deild með tólf stig í sextán leikjum, vann þrjá leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði tíu leikjum. Kári var spilandi þjálfari…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við nýjan leikstjórnanda

Meistaraflokkur kvenna í Skallagrími hefur samið við leikstjórnandann Nikola Nedoroscikova um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Nikola kemur frá Slóvakíu en hefur undanfarin ár leikið í efstu og næstefstu deild í Portúgal. Þar á undan spilaði hún í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrir Roger State í NCAA deildinni. Fremur lítið hefur komið af fréttum…Lesa meira