Fréttir

true

Búið að steypa stóran hluta af þekjunni

Framkvæmdir við Grundarfjarðarhöfn eru í góðum gír og vel gengur að steypa þekjuna á nýju bryggjuna. Búið er að steypa um 3.000 fermetra en alls er þekjan um 4.400 fermetrar og því langt komin. Skemmtiferðaskipin eru farin að leggjast að nýja hafnarkantinum, eins og fram hefur komið í Skessuhorni, og nýta þau bætta þjónustu hafnarinnar.Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir sigraði í 2. deild kvenna +50

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna í +50 ára flokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 19. – 21. ágúst. Alls tóku átta klúbbar þátt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og leikið var í tveimur riðlum og komust tvö efstu liðin úr hvorum riðli í undanúrslit. Golfklúbburinn Leynir frá Akranesi og Golfklúbbur Suðurnesja léku…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi merktum Ali, Bónus eða FK frá Matfugli vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur í öryggisskyni ákveðið að innkalla lotuna og sent frá sér fréttatilkynningu. Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina frá fyrirtækinu og lét heilbrigðiseftirlitið vita. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vöruheiti: Ali, Bónus, FK Framleiðandi:…Lesa meira

true

Reynir tapaði stórt í lokaleiknum

Reynir frá Hellissandi lék síðasta leik sinn í sumar í C-riðli 4. deildar karla í gær á Ólafsvíkurvelli gegn liði Álftaness sem endaði í toppsæti riðilsins og er á leið í úrslitakeppnina um að komast upp í 3. deild. Leikurinn byrjaði ansi fjörlega því strax á þriðju mínútu komst Álftanes yfir með marki Andra Janussonar.…Lesa meira

true

Kári kominn í neðsta sætið

Knattspyrnufélagið Kári er nú í neðsta sætinu í 2. deild karla í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. Liðið er níu stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir og nokkuð ljóst að Káramenn þurfa að sætta sig við fall í þriðju deild þegar talið verður upp úr kjörkössunum í haust.  Kári mætti norðanmönnum úr Völsungi,…Lesa meira

true

Fylgdu ekki almennum reglum stjórnsýsluréttar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gaf 18. ágúst síðastliðinn út leiðbeiningar og álit vegna nokkurra mála sem snerta stjórnsýslu í skipulags- og mannvirkjamálum í Borgarbyggð. Málið má rekja til þess að ráðuneytinu bárust kvartanir og ábendingar um; „meinta ólögmæta stjórnsýslu sveitarfélagsins Borgarbyggðar á sviði skipulags- og mannvirkjamála,“ eins og segir í álitsgerð ráðuneytisins, sem Skessuhorn hefur undir…Lesa meira

true

Háskólinn á Hólum boðar stórsókn

Háskólinn á Hólum sinnir einstökum námsþáttum í háskólastarfi á Íslandi, þ.e. ferðamálafræði, fiskeldis- og fiskalíffræði og hestafræði og hefur skapað sér mikilvægan sess í íslensku háskólaumhverfi. Skólinn hefur eflst og dafnað á undanförnum árum. Nú í haust mun skólinn bjóða í fyrsta sinn upp á meistaranám í hestafræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.…Lesa meira

true

Tekist á um kaup á loftpressu fyrir slökkviliðið

Stjórn Neista, félags slökkviliðsmanna í Borgarbyggð, átelur í opnu bréfi til sveitarstjórnar að það muni dragast um sinn að fjárveiting fáist til kaupa á nýrri loftpressu sem hleður á súrefniskúta slökkviliðsmanna. Byggðarráð fjallaði um umsókn Neista á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag og lagði þar til að loftpressan verði keypt eigi síðar en um næstu áramót,…Lesa meira

true

Skellur hjá Skallagrími á Valsvellinum

Skallagrímur úr Borgarnesi mætti KH (Knattspyrnufélaginu Hlíðarenda) í 4. deildinni á laugardaginn og fór leikurinn fram á Valsvellinum. Skallagrímsmenn fengu skell og töpuðu leiknum 2:9. Ernir Daði Arnberg Sigurðsson varð fyrir því óhappi að koma KH yfir með sjálfsmarki á 20. mínútu, en mínútu síðar jafnaði Viktor Ingi Jakobsson metin fyrir Skallagrím. En aðeins þremur…Lesa meira

true

Lýsir áhyggjum af umferðaröryggi á Arnarstapa

Jón Jóel Einarsson, ferðaþjónustubóndi á Arnarstapa á Snæfellsnesi, hefur sent opið bréf til Vegagerðarinnar þar sem hann lýsir þungum áhyggjum af umferðaröryggi á Arnarstapa. Áður hafði hann sömuleiðis lýst áhyggjum sínum við bæjaryfirvöld í Snæfellsbæ. „Ég leyfi mér að fullyrða að Arnarstapi sé fjölsóttasti ferðamannastaður á Snæfellsnesi yfir sumartímann, jafnvel á öllu Vesturlandi. Gott væri…Lesa meira