Fréttir

true

Sýnir þríeykinu þakklæti

Handverksmaðurinn og hönnuðurinn Svavar Garðarsson í Búðardal hefur komið fyrir fallegri blómaskreytingu á áberandi stað í heimabæ sínum. Þar er þeim Þórólfi, Ölmu, Víði og öllum hinum, þakkað framlag sitt fyrir að standa í stafni í baráttunni við Covid-19. Sveitungar Svavars hafa lýst ánægju sinni með framtakið enda skreytingin smekkleg og ber vor um mikinn…Lesa meira

true

Minnir á kirkjutröppurnar á Akureyri

Fljótt á litið minnir þetta mannvirki á kirkjutröppurnar á Akureyri í úrhellisrigningu. En því fer víðs fjarri. Hér er annar af tveimur laxastigum sem steyptir hafa verið til að auðvelda laxi uppgöngu í Brynjudalsá fyrir botni Hvalfjarðar. Fyrst eftir að þessi stöllótti laxastigi var steyptur var ekkert grindverk ofan á veggjunum. Það gerðist því ítrekað…Lesa meira

true

Kári gerði jafntefli við Reyni Sandgerði

Kári og Reynir Sandgerði mættust í 14. umferð í annarri deild karla í knattspyrnu í Akraneshöll síðastliðið miðvikudagskvöld. Leikurinn byrjaði fjörlega með marki frá Kára á tíundu mínútu leiks en það gerði Breki Þór Hermannsson með frábærri spyrnu beint úr hornspyrnu. Reynismenn jöfnuðu nokkrum mínútum seinna þegar Magnús Magnússon fylgdi eftir skoti sem Gunnar Bragi…Lesa meira

true

Grjótið er nýr veitingastaður á Akranesi

Veitinga-, skemmti- og afþreyingarstaðurinn Grjótið-Bistro-Bar við Kirkjubraut 10 á Akranesi var opnaður fyrir Írska daga í sumar. Veitingastaðurinn býður meðal annars upp á mat með mexíkönskum áhrifum. Haraldur Helgason er eigandi staðarins. Að sögn Haraldar leggur staðurinn mikla áherslu á að allt hráefni sé fengið úr héraðinu. Stefnt er að því að staðurinn skapi sex…Lesa meira

true

Ungmennafélagið fékk togvél í kveðjugjöf

Hjónin Karl Ingi Karlsson og Steinunn Matthíasdóttir flytja um þessar mundir búferlum úr Búðardal eftir um 20 ára búsetu. Steinunn segir í samtali við Skessuhorn að hún hafi gegnum árin nýtt sér vel þá líkamsræktaraðstöðu sem ungmennafélagið Ólafur Pái hefur staðið myndarlega á bak við. Þau hjónin langaði að færa félaginu þakklætisvott fyrir að halda…Lesa meira

true

Stórlax í Flekkudalsá og víða er fisk að fá

Flekkudalsá á Fellsströnd í Dölum á sérstakan stað í hjarta margra veiðimanna. Veiðisvæðið er fjölbreytt og fallegt. Þorgils Helgason var við veiðar í ánni fyrir stuttu og segir svo frá: „Veiðin í Flekkudalsá hefur farið rólega af stað eins og víðast hvar á landinu. Hollið sem lauk veiðum í dag landaði fimm löxum og missti…Lesa meira

true

Úrslit af Flemming – pútt mótinu á Hvammstanga

Hið árlega Flemming pútt mót var haldið á Hvammstanga síðastliðinn föstudag. Leiknar voru tvisvar sinnum 18 holur á mótinu. Mótið gekk vel og veður var allgott, að sögn Flemmings. Þátttakendur voru 39 og hafa aldrei verið fleiri en mótið hefur verið haldið árlega frá 2011. Þess má geta að mótið er opið öllum hvar sem…Lesa meira

true

Símakuldi ennþá á Ölkeldu og nágrannabæjum

Í byrjun júní birti Skessuhorn frétt um svokallaðan símakulda hjá ábúendum á Ölkeldu í Staðarsveit. Kristján Þórðarson bóndi segir að þau hafi síðustu tvo áratugi þurft að búa við það að nánast ekkert farsímasamband væri á svæðinu og eru þetta alls fimm bæir þarna í sveitinni sem eiga við þennan vanda að etja. Þetta eru…Lesa meira

true

Sveitabúðin að Brautarholti í Dölum til sýnis

Á laugardag og sunnudag um verslunarmannahelgina geta ferðalangar um Dali staldrað við í Brautarholti og virt fyrir sér gömlu sveitabúðina sem þar er, en hún hefur ekki verið opin almenningi í fimmtíu ár. Verslunin var starfrækt frá 1909 til 1971 og upprunalegar innréttingar hafa varðveist óbreyttar. Sveitabúð í þessari upprunalegu mynd er aðeins að finna…Lesa meira

true

Óskað eftir stuðningsfjölskyldum á Akranesi

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar auglýsir á vef sínum eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn á Akranesi. Stuðningsfjölskyldur taka á móti fötluðum og ófötluðum börnum til dvalar á heimili sínu að jafnaði eina helgi í mánuði með það að markmiði að styðja við foreldra barnsins, veita barninu tilbreytingu og stuðning. Önnur börn á heimilinu er ekki hindrun og…Lesa meira