Fréttir

true

Hyljir teppalagðir af fiski

,,Við enduðum ferðina á Akranesi þetta árið, í bili allavega, og þetta var meiriháttar ferðalag hjá okkur Friðriki Ómari. Spiluðum á 23 stöðum,“ sagði söngvarinn góðkunni Jógvan Hansen, en þeir félagar enduðu túrinn í Borgarnesi og Akranesi um liðna helgi. Þeim var tekið með kostum og kynjum um allt land og aðsóknin var meiriháttar. Nú…Lesa meira

true

Bjóða út smíði þriggja kennslustofa

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar auglýsir í Skessuhorni í dag útboð á smíði þriggja nýrra kennslustofa við Grundaskóla. Um er að ræða smíði utan verkstaðar á fjórum húsum; þremur kennslustofum og einni anddyriseiningu, ásamt flutningi, uppsetningu, sökkuleiningum, raflögnum og öllum frágangi. Húsin eiga að vera fullbúin til til notkunar eigi síðar en um áramótin næstu. Gólfflötur…Lesa meira

true

Ákveðið að fresta Landsmóti 50+ í Borgarnesi

Ákveðið hefur verið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ sem vera átti í Borgarnesi í lok ágúst. Það er gert vegna mikillar óvissu um sóttvarnir sem þá verða í gildi og fjölda sem má koma saman. Stefnt er að því að halda mótið í Borgarnesi í júní á næsta ári. „Við vorum einróma hjá UMFÍ og…Lesa meira

true

Grátlegt jafntefli hjá ÍA gegn KR

Skagastúlkur tóku á móti toppliði KR í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í gærkvöldi. Frábærar aðstæður voru á Akranesi í gær, logn og milt veður og völlurinn í toppstandi. Það var ljóst strax í byrjun  að Skagastúlkur voru mættar til að berjast fyrir stigunum og mættu grimmar til leiks. Jafnræði var með liðunum í…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Sjúkrahúsinu á Akranesi ganga vel

Framkvæmdir við endurnýjun A og B deilda í C-álmu sjúkrahússins á Akranesi ganga vel. Voru þær fyrir margt löngu orðnar tímabærar. Búið er að hreinsa allt út úr húsnæðinu; innréttingar, gólfefni, milliveggi, raf- og boðlagnir og fleira auk þess sem sögun og múrbroti er lokið. Í vikunni var lokið við að flota öll gólf.  Uppbygging…Lesa meira

true

Göngin lokuð til klukkan 10

Á Twitter síðu Vegagerðarinnar var klukkan 6 í morgun sett inn tilkynning þess efnis að næturlokun Hvalfjarðarganganna lengist til klukkan 10 í dag. Göngunum var lokað vegna malbikunarframkvæmda sunnan við þau klukkan 22 í gærkvöldi og átti að opna klukkan sjö í morgun, en það frestast um þrjá tíma.Lesa meira

true

Á góðri en blautri stund í Grundarfirði

Bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði fór fram um helgina í skugga fjölgandi smita í samfélaginu. Einhverjir viðburðir féllu niður eins og ball með Páli Óskari sem átti að fara fram á föstudagskvöldinu. Þó var nóg um að vera og gátu allir fundið sér eitthvað til dundurs. Veðrið var nokkuð blautt en þó lét sólin…Lesa meira

true

Áhugamannamót Íslands var á Æðarodda um helgina

Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi sá um að halda Áhugamannamót Íslands 2021 á félagsvæði sínu, Æðarodda, á Akranesi um helgina. Mótið var fyrst haldið árið 2015 og hefur ávallt þar til nú verið á Hellu. Allir knapar sem hafa náð 22 ára aldri á árinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum tveimur árum hafa…Lesa meira

true

Göngin voru ekki lokuð í gær – en verða það í kvöld!

Vegagerðin hafði boðað að Hvalfjarðargöng yrðu lokuð í gærkvöldi og nótt vegna malbikunarframkvæmda sunnan við göngin. Af því varð ekki ekki, vegna veðurs. Klukkan 23:30 í gærkvöldi var það kynnt á Twitter síðu Vegagerðarinnar að ekkert yrði af framkvæmdum. Framkvæmdum var því frestað og verða göngin lokuð frá klukkan 22 í kvöld og þar til…Lesa meira

true

Grunur um smit og skipverjar í sóttkví

Fiskveiðiskipið Kap II VE-007 kom til hafnar í Grundarfirði í morgun. Grunur er um Covid-19 smit um borð en nokkrir skipverjar hafa sýnt einkenni. Þeir fóru allir við komuna til hafnar í sýnatöku og mun niðurstöðu að vænta í kvöld. Þar til mun skipið verða við hafnargarðinni nærri smábátahöfninni. Enginn aðgangur er leyfður að skipinu…Lesa meira