Fréttir

true

Grímuskylda víða enda er almenningur ekki sérfróður um loftræstikerfi!

Um helgina tók í gildi ný reglugerð sem felur meðal annars í sér nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Misskilnings hefur gætt varðandi túlkun grímuskyldunnar, enda ákvæði afar óljós og bera þess merki að höfundar reglugerðarinnar hafi samið hana í flýti. Heilbrigðisráðuneytið sendi svo um helgina frá sér áréttingu til að reyna að skýra reglurnar sem gilda til…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti framboðslista sinn

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðs flokksins í gær. Efstu sæti eru skipuð í samræmi við niðurstöðu prófkjörs sem fram fór í júní. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður og ráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson, alþingismaður og bóndi. Í þriðja sæti er Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður, í…Lesa meira

true

Unglingalandsmóti UMFÍ frestað

„Það eru geysileg vonbrigði sem fylgja því að gera væntingar barna og ungmenna að engu annað árið í röð. Við höfum beðið eftir upplýsingum eins og öll þjóðin. Miðað við þær forsendur sem okkur voru að berast í kvöld er ljóst, að ekki verður hægt að halda Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina,“ segir Þórir…Lesa meira

true

Nytjamarkaður Skallagríms nú húsnæðislaus

Búið er að loka um tíma Nytjamarkaði körfuknattleiksdeildar Skallagríms í Borgarnesi. Eftir að loka þurfti húsnæðinu í Brákarey í febrúar fékk deildin inni í Félagsbæ þar sem markaður hefur verið þar til síðastliðinn laugardag. Ekki hefur enn tekist að finna markaðinum nýjan samastað. „Fyrir áhugasama þá verður tiltekt og hreinsun í gangi alla þessa viku,…Lesa meira

true

Óskað eftir stuðningsfjölskyldum á Akranesi

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar auglýsir á vef sínum eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn á Akranesi. Stuðningsfjölskyldur taka á móti fötluðum og ófötluðum börnum til dvalar á heimili sínu að jafnaði eina helgi í mánuði með það að markmiði að styðja við foreldra barnsins, veita barninu tilbreytingu og stuðning. Önnur börn á heimilinu er ekki hindrun og…Lesa meira

true

Sóley kosin íbúi ársins í Reykhólahreppi

Hefð er fyrir því í Reykhólahreppi að útnefna íbúa ársins á Reykhóladögum. Að þessu sinni var það Sóley Vilhjálmsdóttir í Króksfjarðarnesi sem varð fyrir valinu.. „Sóley hefur alla tíð verið dugleg og drífandi í ýmis konar félagsstarfi. Hún vann um árabil í útibúi Landsbankans í Króksfjarðarnesi, síðast sem útibússtjóri, allt þar til útibúið var lagt…Lesa meira

true

Nýjar sóttvarnareglur hafa tekið gildi

Á miðnætti tóku gildi reglur sem ríkisstjórnin samþykkti á föstudaginn um takmarkanir vegna Covid-19. Nú mega 200 manns koma saman sem jafnframt er hámarksfjöldi í verslunum. Grímuskylda er innanhúss og í bílum þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð. Líkamsræktarstöðvar og sundlaugar mega taka við 75% hámarksfjölda leyfilegra gesta, hámarksfjöldi á íþróttaæfingum…Lesa meira

true

Samkomulag landeigenda Grafar og Vegagerðarinnar

Vegagerðin og landeigendur Grafar í Þorskafirði náðu í gær samkomulagi um vegalagningu í Gufudalssveit. Þar með er langþráðum áfanga náð í deilu sem nær fjölmörg ár aftur í tímann, en nú hefur framgangur nauðsynlegra samgöngubóta á sunnanverðum Vestfjörðum loks verið tryggður. Eigendur Grafar voru þeir einu sem ósamið var við. Deilur hafa staðið um framkvæmdina…Lesa meira

true

Akranestorfæran verður haldin um helgina

Torfæruklúbbur Suðurlands heldur Akranestorfæruna næstkomandi sunnudag, 25. júlí. Keppnin er fjórða umferðin í Íslandsmeistaramótinu í torfæru. Að sögn Helgu Katrínar Stefánsdóttur, formanns Torfæruklúbbs Suðurlands hefur undirbúningur gengið ótrúlega vel en aðstandendur naga sig þó í handarbökin í óvissu um til hvaða aðgerða ríkisstjórnin mun grípa í dag, föstudag. Helga Katrín segir að keppnin verði haldin…Lesa meira