Fréttir

true

Fjórir leikmenn Skallagríms verða áfram með liðinu á næsta tímabili

Penninn var á lofti í herbúðum körfuknattleiksdeildar Skallagríms í liðinni viku. Ákveðið var að endurnýja samninga við fjóra leikmenn sem munu leika með meistaraflokki karla á komandi leiktíð. Þetta eru þeir Marinó Þór Pálmason, Ólafur Þorri Sigurjónsson, Almar Örn Björnsson og Alexander Jón Finnsson. Atli Aðalsteinsson og Hafþór Ingi Gunnarsson skipa þjálfarateymi liðsins en gerður…Lesa meira

true

Stangveiðar með drónum

Þegar blaðamaður Skessuhorns renndi niður Facebook í morgun rakst hann á athyglisverða auglýsingu. Þar auglýsti Suður-Afríska fyrirtækið Gannet búnað fyrir dróna sem gerir drónum kleift að bera farg fyrir veiðimenn, til dæmis spúna eða annað agn, út á sjó eða vatn og sleppa farginu þar. Þetta sparar því veiðimönnum fyrirhöfnina við að kasta spúninum út…Lesa meira

true

Malbikunarframkvæmdir að hefjast í Snæfellsbæ

Á vef Snæfellsbæjar er greint frá því að þriðji áfangi malbikunarframkvæmda í sveitarfélaginu mun hefjast mánudaginn 26. júlí og standa fram í ágúst, með hléi í kringum Verslunarmannahelgi. Fyrstu áfangar þessara framkvæmda voru sumrin 2017 og 2019 en nú er stefnt að því að malbika þær götur sem ekki voru teknar í fyrri áföngum. „Ef…Lesa meira

true

Nýtt fjölbýlishús að rísa við Vallholt á Akranesi

Framkvæmdir eru komnar vel í gang með byggingu nýs fjölbýlishúss á reitnum þar sem Vesturgata og Vallholt mætast á Akranesi en lóðin telst vera Vallholt 5 samkvæmt skipulagi. Þarna byggir Sóltún ehf. 12 íbúða fjölbýlishús. Neðri hæð hússins er nú risin en hún er byggð úr forsteyptum einingum. Á þessum bletti var síðast til húsa…Lesa meira

true

Bakvarðasveit heilbrigðisstarfsfólks kölluð inn

Vegna mikillar fjölgunar greindra smita af Covid-19 á undanförnum dögum hefur verið ákveðið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Heilbrigðisráðuneytið segir að enn á ný sé óskað eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. „Þau sem…Lesa meira

true

Hvalreki á Víkurrifi

Ungan háhyrning rak á land á Víkurrifi vestan við Grundarfjörð í síðustu viku. Hræið fannst á föstudaginn en það er mjög nálægt bílastæðinu á svæðinu. Víkurrifið er mikið notað af Grundfirðingum en vinsælt er að fara í heilsubótargöngu eftir fjörunni og svo hefur svæðið mikið verið notað fyrir sjósund á síðustu misserum. Hræið er illa…Lesa meira

true

Sumaropnun hefst á sunnudaginn í Ólafsdal

Sumaropnun hefst í Ólafsdal í Gilsfirði næstkomandi sunnudag og verður opið til 15. ágúst. Opnunartíminn er milli klukkan 12 og 17 alla daga. Eins og áður hefur komið fram eru miklar framkvæmdir við uppbyggingu staðarins og opnunartímabilið því með stysta móti. „Þrettánda Ólafsdalshátíðin verður haldin laugardaginn 14. ágúst og daginn eftir er síðasti opnunardagurinn þetta…Lesa meira

true

Ný bylgja Covid-19 þegar farin að hafa áhrif

Fjölgun smita vegna Covid-19 hefur verið mikil síðustu daga, en á þriðja hundruð staðfest smit eru í landinu í júlímánuði. Veiruna er því að nýju að finna í öllum landshlutum. Veiran er farin að hafa áhrif á samkomuhald. Þannig var t.d. leik Víkings og Fram sem vera átti í Ólafsvík í kvöld frestað þar sem…Lesa meira

true

Reynir gerði jafntefli við Björninn

Reynir Hellissandi tók á móti liði Bjarnarins í C-riðli 4. Deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á iðjagrænum gervigrasvellinum í Ólafsvík. Gestirnir komust yfir á 13. mínútu með marki frá Álftnesingnum með langa nafnið, Ronnarong Wongmahadthai en heimamenn svöruðu því með marki frá Kristni Magnúsi Péturssyni úr vítaspyrnu eftir tæplega hálftíma…Lesa meira

true

Leik frestað því smit greindist í leikmannahópi Víkings Ólafsvík

Ákveðið hefur verið að fresta leik Víkings Ó og Fram sem átti að fara fram á Ólafsvíkurvelli í kvöld. Ástæðan er sú að einn leikmaður Víkings hefur greinst með kórónuveiruna og eru allir leikmenn liðsins komnir í sóttkví. Illa hefur gengið hjá Ólsurum í sumar en þeir eru með tvö stig á botni Lengjudeildarinnar, sjö…Lesa meira