Fréttir

true

Veiðin róleg og laxinn áhugalaus að taka

Það er alveg óhætt að segja að laxveiðin sé ekkert til að hrópa húrra fyrir það sem af er sumri. Hún er slök í mörgum ám ef marka má samantekt Landssambands veiðifélaga. Mest veiði var skráð í síðustu viku í Urriðafossi í Þjórsá en í sætunum þar á eftir komu Norðurá og Þverá/Kjarará. Haffjarðará hefur…Lesa meira

true

Dalamaður ársins vill uppbyggingu í Búðardal

Á Jörvagleði Dalamanna, sem haldin var í apríl síðastliðnum, var Dalamaður ársins 2021 kynntur. Fjöldi Dalamanna hlaut tilnefningar en langflestar þeirra fékk Bragi Þór Gíslason og var hann útnefndur Dalamaður ársins 2021. Rökin fyrir valinu voru meðal annars að Bragi Þór er sagður vera bjartsýnn, duglegur, hugmyndaríkur og góð fyrirmynd fyrir unga fólkið auk þess…Lesa meira

true

Falla fjögur lið af Vesturlandi í sumar?

Það verður að segjast eins og er að það gengur ekki alveg nógu vel hjá Vesturlandsliðunum í knattspyrnu á Íslandsmótinu þegar mótið er hálfnað í flestum deildum. Í Skessuhorni sem kom út í dag fer Valdimar K Sigurðsson blaðamaður yfir stöðuna; skoðar stöðu liðanna, helstu úrslit og markaskorara og rýnir í framhaldið hjá karlaliðum ÍA,…Lesa meira

true

Þurfa að fjölga leikskólaplássum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag voru kynntar upplýsingar úr þarfagreiningu fyrir leikskóla í Borgarnesi. „Þarfagreining fyrir leikskóla í Borgarnesi og æskileg næstu skref í uppbyggingu leikskóla í Borgarnesi mun liggja fyrir í ágúst. Umsóknum um leikskólapláss í Borgarnesi heldur áfram að fjölga og því eru uppbyggingaráform með fjölgun leikskólaplássa í huga mikilvæg til að…Lesa meira

true

Völuspá hefur haft mikil áhrif á alla tilveru Jóns Gnarr

Laugardaginn 17. júlí heldur Jón Gnarr tónleika á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Þar mun hann syngja Völuspá við eigið lag. Með honum verða Hilmar Örn Hilmarsson, tónskáld og allsherjargoði og Hilmar Örn Agnarsson organisti, en þeir hafa verið Jóni til aðstoðar við verkefnið og leika þeir undir flutninginn á ýmis hljóðfæri. Meðal þeirra er steinharpa…Lesa meira

true

Tjón vegna vatnsleka í Grunnskóla Grundarfjarðar

Síðastliðinn mánudag varð vart við vatnsleka í húsnæði Grunnskóla Grundarfjarðar. Vatnið hafði þá runnið um tíma, fundið sér leið um allstórt svæði á báðum hæðum suðaustan til í skólabyggingunni. Í frétt á vef bæjarins kemur fram að vatn hafi flætt í kennslustofu á efri hæð í suðausturhorni byggingarinnar, runnið í miðrýmið og inn í litlu…Lesa meira

true

Lætur af störfum eftir 42 ár sem leikskólakennari í Borgarnesi

Ásdís Baldvinsdóttir fagnaði 70 ára afmæli sínu í gær, þriðjudaginn 13. júlí, og hefur jafnframt ákveðið að láta af störfum, en hún á að baki 42 ár sem leikskólakennari hjá Borgarbyggð. „Ég er í sumarfríi akkúrat núna, svo formlega læt ég ekki af störfum fyrr en 1. ágúst,“ segir hún létt í lund við eldhúsborðið…Lesa meira

true

Skothríð við sumarbústað með stolnum skotvopnum

Síðastliðið sunnudagskvöld barst lögreglu tilkynning um að verið væri að skjóta af haglabyssu og riffli við sumarbústað í Borgarfirði. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar eins og venja er í slíkum málum. Í kjölfarið voru fjórir handteknir á staðnum. Skotmennirnir héldu því fram að þeir hefðu leyfi húsráðanda fyrir skytteríinu. Þá var einn aðili sem…Lesa meira

true

Óvenjuleg björgunaraðgerð í Skallagrímsgarði

Þau eru margvísleg verkefnin sem Slökkvilið Borgarbyggðar fær í hendurnar. Borgarbyggð segir frá því á vef sínum í dag að á miðnætti laugardaginn 10. júlí, hafi komið beiðni frá Lögreglunni á Vesturlandi um aðstoð við að bjarga dróna niður úr tré í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Í fréttinni segir að fram til þessa hafi verið venja…Lesa meira

true

Enn er beðið eftir skýrslu um ítök stórútgerða

Fyrr í dag sendi Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, forsætisráðherra bréf og krafðist svara vegna óeðlilegra tafa á birtingu skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi, síðastliðinn áratug. „29 vikur eru liðnar frá því að Alþingi samþykkti einróma ósk Hönnu Katrínar um að fá þessa skýrslu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilgangur skýrslubeiðninnar…Lesa meira