
Þorsteinn Bárðarson hjólreiðakappi úr Snæfellsbæ gerði sér lítið fyrir og sigraði í Elite flokki Kia Gullhringsins í hjólreiðum um liðna helgi. Elite flokkurinn er lengsta leiðin en þar eru hjólaðir 96 kílómetrar. Þorsteinn hjólaði á tímanum 02:19:57 en næstu menn voru örfáum sekúndum á eftir honum. Þorsteinn hefur verið duglegur að keppa í hjólreiðum undanfarin…Lesa meira







