Fréttir

true

Fjórðungsmót hestamanna hefst í Borgarnesi í dag

Fjórðungsmót hestamanna á Vesturlandi hefst í dag og lýkur sunnudaginn 11. júlí. Í dag, miðvikudag, verður keppt í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og B-flokki ásamt því að dóma kynbótahrossa fara fram. Á morgun, fimmtudag, verður keppt í A-flokki og í tölti og seinni hluti dóma kynbótahrossa. Fjör verður á föstudeginum því þá er yfirlitssýning hryssa og…Lesa meira

true

Gott að njóta landsins á slíkum farkosti

Það eru ólíkir farkostir sem sjást á vegum úti um þessar mundir. Á meðfylgjandi eru þýsk hjón sem ljósmyndari rakst á í Grundarfirði um helgina. Þau sögðu að þetta væri í raun besta leiðin til að njóta landsins, voru alsæl með lífið og tilveruna á ferð sinni um Ísland.Lesa meira

true

Markaður fyrir greiðslumark mjólkur

Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 1. september næstkomandi. Í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu kemur fram að hámarki sé hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Þá má hlutdeild framleiðanda eða framleiðenda sem eru í eigu einstakra aðila, einstaklinga, lögaðila eða tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli…Lesa meira

true

Prjónað á Plani í Grundarfirði

Hafdís Gísladóttir er fædd og uppalin í Grundarfirði. Árið 2016 byrjaði hún verkefnið Prjónað á Plani á Bíldudal en hefur nú komið fyrir í sölu- og handverksgámi á horni Grundargötu og Hrannarstígs í Grundarfirði þar sem hún mun nú Prjóna á Plani. Þar býður hún til sölu fallegt handverk, svo sem peysur, trefla, húfur og…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um Sundabraut

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjórinn í Reykjavík undirrituðu í dag yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar. Stefnt er að því framkvæmdir við Sundabraut hefjist árið 2026 og að brautin verði tekin í notkun árið 2031. Ríki og borg sammælast um það í yfirlýsingunni að Sundabraut verði lögð alla leið á Kjalarnes…Lesa meira

true

Lífið bíður þín í Borgarbyggð

Borgarbyggð hefur komið af stað sérstakri herferð fyrir sumarið 2021 sem hófst í júní síðastliðnum. Markaðsherferðin tekur mið af markaðsstefnumótun sveitarfélagsins sem kynnt var í júlí á síðasta ári er fram kemur á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar kemur fram að markaðsherferðin muni standa yfir frá júní til ágúst á þessu ári þar sem áhersla verður lögð…Lesa meira

true

Aðeins þrír loftgæðamælar á öllu Vesturlandi

Í fréttum RÚV í gær sagði að mikil mengun hafi mælst í Hvalfirði og viðbúið að hún hafi líka verið mikil á Akranesi. Kom fram í fréttinni að styrkur brennisteinsdíoxið hafi numið um 900 míkrógrömmum á rúmmetra. Mengunin sem um ræðir kemur að hluta beint frá gosstöðvunum á Reykjanesi en einnig er um að ræða…Lesa meira

true

Mótmæla frestun framkvæmda á Dynjandisheiði

Í tilefni af fréttum um vegalagningu um Dynjandisheiði, frestun eða flýtingu framkvæmda þar, vill stjórn Vestfjarðastofu og sveitarstjórnir Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur, Súðavíkurhrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar koma eftirfarandi á framfæri: „Hin mikla framkvæmd Dýrafjarðargöng mun ekki nýtast til fulls fyrr en vegur um Dynjandisheiði er fullgerður frá Mjólká í Vatnsfjörð ásamt Bíldudalsvegi. Um er að ræða nýjan…Lesa meira

true

Naumt tap Skagamanna gegn Víkingi

Skagamenn léku gegn liði Víkings úr Reykjavík í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á Víkingsvelli í gærkvöldi. Víkingur sótti meira á Skagamenn í fyrri hálfleik og fengu dauðafæri á 25. mínútu þegar Nikolaj Hansen skallaði boltann yfir nánast á marklínu eftir hornspyrnu. Fyrsta færi Skagamanna kom eftir rúman hálftíma leik þegar Morten Beck komst…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Kára í sumar

Knattspyrnufélagið Kári gerði góða ferð á Ásvelli í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar þeir unnu lið Hauka með þremur mörkum gegn tveimur í 2. deild karla í knattspyrnu. Þetta var fyrsti sigur liðsins í sumar sem kom loks í tíundu umferð deildarinnar. Haukar voru meira með boltann í leiknum en Káramenn sem spilaði með fimm manna…Lesa meira