Fréttir

true

Samþykktu vinnslutillögu að breytingu aðalskipulags í Húsafelli til kynningar

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag um tillögu að vinnslutillögu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, sem snertir Húsafell. Lögð var fram vinnslutillaga sem dagsett er 7. júní 2021 og unnin af Alta. Í tillögunni er landnotkun skilgreind fyrir verslun, þjónustu, íbúða- og frístundabyggð sunnan þjóðvegar í Húsafelli. „Markmið breytingartillögunnar er að skilgreina landnotkun svæðisins…Lesa meira

true

Spáð hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi á morgun

Á morgun verður allhvasst á norðvestanverðu landinu. Spáð er sunnan og suðvestan 10-18 m/s og að hviður gætu farið í 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi fram yfir hádegi. Sömuleiðis verður hvasst í vindstrengjum við fjöll á Vestfjörðum. „Slíkur vindur gæti verið varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi,“ segir í athugasemd veðurfræðings.Lesa meira

true

ÍA mætir FH í Mjólkurbikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Skagamenn voru eina liðið af Vesturlandi í pottinum og mæta þeir liði FH á heimavelli 11. eða 12. ágúst. Aðrir áhugaverðir leikir í 16-liða úrslitunum eru leikir Víkings Reykjavíkur og KR, Vestra og Þórs Akureyri og 3. deildarlið KFS, sem sló út…Lesa meira

true

Selfoss vann Víking Ólafsvík í markaleik

Selfoss og Víkingur Ólafsvík áttust við á Selfossi í Lengjudeild karla á laugardaginn í stórskemmtilegum leik. Hrvoje Tokic, fyrrum leikmaður Víkings, kom Selfyssingum yfir á tíundu mínútu og 15 mínútum síðar bætti Tokic við öðru marki og staðan orðin 2-0. Fjögur mörk komu á síðustu sex mínútum fyrri hálfleiks; Kareem Isiaka minnkaði muninn fyrir Víking…Lesa meira

true

KM náði í sitt fyrsta stig gegn Reyni Hellissandi

Reynir Hellissandi lék gegn liði KM í gær á KR vellinum í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Heimir Þór Ásgeirsson kom Reynismönnum yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks með sínu sjöunda marki í sumar. KM náði hins vegar að jafna á 82. mínútu leiksins með marki frá Luis Sanchez og fyrsta stig KM í sumar…Lesa meira

true

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stækkaður á afmælisári

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 28. júní árið 2001 og á því 20 ára afmæli í dag. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í gangi undanfarna daga í þjóðgarðinum sem náði hámarki í gær þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins við athöfn sem fram fór á Malarrifi. Stækkar garðurinn nú um 9%…Lesa meira

true

Sumaropnun 25. júlí en Ólafsdalshátíð um miðjan ágúst

Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin laugardaginn 14. ágúst klukkan 11.00-17.00. Að sögn Rögnvaldar Guðmundssonar, formanns Ólafsdalsfélagsins, er stefnt að skemmtilegri og fjölskylduvænni hátíð við allra hæfi, en dagskrá verður kynnt fjótlega. „Vegna mikilla framkvæmda Minjaverndar við endurreisn staðarins mun sumaropnun Ólafsdalsfélagsins ekki hefjast fyrr en sunnudaginn 25. júlí. Eftir það verður opið alla daga…Lesa meira

true

Jafntefli í Borgarnesi

Skallagrímsmenn gerðu jafntefli á laugardaginn í leik gegn Uppsveitum þegar liðin áttust við í B-riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Gestirnir úr Uppsveitum skoruðu fyrsta mark leiksins á 25. mínútu. Þá var á ferðinni Pétur Geir Ómarsson. Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós í hálfleiknum. Seinni hálfleikur var…Lesa meira

true

Ráðherra fylgir veiðiráðgjöf Hafró

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár. Reglugerðin fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem byggir á því að nýta stofna miðað við hámarksafrakstur að teknu tilliti til vistkerfis- og varúðarnálgunar. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er lögð til 13% lækkun aflamarks þorsks næsta fiskveiðiár, en stofnmatið í…Lesa meira

true

Meðalverð seldrar fasteignar var 42,1 milljón

Í maímánuði skiptu 78 fasteignir á Vesturlandi um eigendur. Af þeim voru 31 eign seld í sérbýli, 27 í fjölbýli og 18 sumarhús. Ekkert atvinnuhúsnæði skipti um eigendur í mánuðinum. Veltan í þessum viðskiptum var 3,285 milljarðar króna. Meðalverð selds einbýlishúss var 55,6 milljónir króna, meðalverð íbúðar í fjölbýli var 35,1 milljón og meðalverð sumarhúss…Lesa meira