Fréttir

true

Ekkert ferðaveður frá Breiðafirði og austur um landið

Spáð er sunnan- og suðvestan stormi eða roki með vindhraða á bilinu 23-28 m/s á landinu norðanverðu. Appelsínugul viðvörun er því í gildi frá því eftir hádegi og fram undir kvöld við Breiðafjörð, en lengur norðantil á landinu. „Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll um og yfir 40 m/s, einkum á…Lesa meira

true

Sumartónleikar á sunnudaginn

Sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ halda áfram á sunnudag. Þá mun píanóleikarinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson flytja eigin verk undir nafninu 24 myndir. „Hjörtur Ingvi Jóhannsson hefur komið víða við, er hljómborðsleikari í hljómsveitinni Hjaltalín og er virkur í tónlistarlífi landsins, þ.á m. sem sjálfstæður lagasmiður, undirleikari, útsetjari, í hinum ýmsu hljómsveitum og í leikhúsum. Hjörtur…Lesa meira

true

Dregið í 16-liða úrslit á mánudag í Mjólkurbikarnum

Dregið verður í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu mánudaginn 28. júní kl. 12:00 í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum í Reykjavík. Um er að ræða 16-liða úrslit karla og undanúrslitakeppni kvenna. Undanúrslit kvenna fara fram 16. júlí. Nú þegar hefur lið Vals tryggt sér sæti í undanúrslitum en þrír leikir fara fram í 8-liða úrslitum í kvöld, föstudag.…Lesa meira

true

Opinn bólusetningardagur á miðvikudaginn í Borgarnesi

Opinn bólusetningardagur verður í Hjálmakletti í Borgarnesi næstkomandi miðvikudag, 30. júní, á milli kl. 14:00 og 14:30. Þá verður bólusett með bóluefninu frá Janssen Frá þessu greinir Rósa Marinósdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, á Facebook í morgun. Allir ættu nú að hafa fengið boð í bólusetningu að minnsta kosti einu sinni og verða…Lesa meira

true

Kúabændur byrjaðir slátt

Sláttur er nú víða að hefjast hjá bændum um vestanvert landið, svo sem í Dölum, Snæfellsnesi og Borgarfirði. Grasspretta tók verulega við sér í kjölfar úrkomu og hlýnandi veðurs í síðustu viku. Á friðuðum túnum hjá kúabændum er því komin þokkaleg slægja. Á það ekki síst við svæðið kringum Akrafjall þar sem sprettur oft snemma.…Lesa meira

true

Kári úr leik í Mjólkurbikarnum

Annarrardeildar liðið Kári þurfti að sætta sig við 2-1 tap gegn úrvalsdeildarliði KR í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins, rétt áður en flautað var til hálfleiks. Þar var á ferðinni Marinó Hilmar Ásgeirsson fyrir Káramenn sem skoraði á 40.…Lesa meira

true

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er nú 5,8%

Atvinnuleysi hér á landi dróst saman um 2,8% á milli apríl og maí í vor. Það stendur nú í 5,8% samkvæmt nýju mati Hagstofu Íslands. Á meðal ungs fólks á aldrinum 16-24 ára, dróst atvinnuleysisstigið saman um 13,7% á milli mánaða. Þegar verst lét var atvinnuleysi í sögulegu hámarki í maí á síðasta ári þegar…Lesa meira

true

Sýndi börnunum íbúa undirdjúpanna

Eymar Einarsson sjómaður á Akranesi gerði nýverið ferð á leikskólann Akrasel. Hafði hann meðferðis nokkra fiska sem hann sýndi börnunum. Eins og sjá má þá vakti þessi heimsókn mikla lukku meðal barnanna, enda hafa mörg þeirra aldrei séð slíka fiska áður. Því var mikið spáð og spurt og ekki stóð á upplýsingunum frá Eymari. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Lions gaf hesteigendafélaginu reiðhjálma

Hestaeigendafélagið Hringur í Ólafsvík fékk góða gjöf á dögunum þegar félaginu voru færðir barnareiðhjálmar. Munu hjálmarnir nýtast félaginu vel en þeir voru teknir í notkun þegar félagið var með opið hús á 17. júní. Það var Lionsklúbbur Ólafsvíkur sem færði félaginu þessa góðu gjöf og vilja félagsmenn fá að nýta tækifærið og koma á framfæri…Lesa meira

true

Útvegsfyrirtæki sameinuð

Tilkynnt hefur verið um að frá og með 1. júlí næstkomandi renna formlega saman í eitt útgerðarfyrirtækin Runólfur Hallfreðsson ehf. frá Akranesi og Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað. Runólfur Hallfreðsson ehf. var til áratuga fjölskyldufyrirtæki sem gerði út togarann Bjarna Ólafsson AK frá Akranesi.Lesa meira