Fréttir

true

Verslun Öldunnar opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar

Búið er að opna verslun Öldunnar í Safnahúsi Borgarfjarðar. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að Aldan bjóði upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Starfsemi Öldunnar kemur til móts við þarfir fatlaðs fólks fyrir atvinnu og hæfingartengda þjónustu sem stuðlar að…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng aftur lokuð næstu nótt

Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna vinnu og þrifa frá miðnætti til kl. 06:30 í morgun og verða aftur lokuð næstu tvær nætur á sama tíma, aðfararnætur, fimmtudags og föstudags. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar. Hjáleið verður um Hvalfjarðarveg á meðan.Lesa meira

true

Skildi vegabréfið eftir á innbrotsstað

Á mánudagsmorgun barst lögreglu tilkynning um að brotist hefði verið inn í nokkur fyrirtæki við Ægisbraut á Akranesi. Unnar höfðu verið skemmdir á húsum auk þess veggjakrotað hafði verið á þau. Þá hafði verið klippt á snúrur eftirlitsmyndavéla. Hurð hafði verið spennt upp á einu fyrirtækinu. Þar inni fannst taska með töluverðu magni af spreybrúsum…Lesa meira

true

HEIMASKAGI – fyrsta býlið á Skipaskaga

Skipaskagi: Ysti tangi Akraness sem kaupstaðurinn stendur á mun að fornu hafa heitið Skagi, en síðar, það er á 17. öld þegar Brynjólfur biskup Sveinsson í Skálholti hóf útgerð í stórum stíl á Skaga, hlaut hann nafnið Skipaskagi, m.a. vegna fjölda þeirra skipa sem biskup gerði út. Einnig gæti nafnið verið tilkomið til að aðgreina…Lesa meira

true

Íslendingar gegna mikilvægu hlutverki í rekstri barnaheimilis í Kenía

Inga Jóna Pálsdóttir býr á Akranesi en síðustu tvö ár hefur hún varið miklum tíma í Kenía sem sjálfboðaliði á barnaheimilinu Haven Rescue Home, HRH. Heimilið er ætlað ungum barnshafandi stúlkum og mæðrum sem eru 18 ára eða yngri. Heimilið opnaði Anna Þóra Baldursdóttir í maí 2017 og hafa búið þar yfir 70 einstaklinga í…Lesa meira

true

Stefna á að gera Barnafoss laxgengan

Samþykkt var á aðalfundi Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts í Borgarfirði þriðjudaginn 1. júní síðastliðinn að félagið heimilaði fyrir sitt leyti framkvæmdir á vatnasvæði félagsins með það að markmiði að fiskur geti gengið í Norðlingafljót. Lengi hafa verið uppi fyrirætlanir í þessa veru og niðurstaða þeirrar vinnu meðal annars sú að um aldamótin síðustu var hannaður…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Skallagrímsmönnum

Skallagrímur lék gegn liði Smára á gervigrasinu í Fagralundi í B-Riðli í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Skallagrímur komst yfir strax á annarri mínútu leiksins með marki Mario Miguel Pascual en heimamenn náðu að jafna eftir tæplega hálftíma leik og var þar að verki Sverrir Haukur Gíslason. Samherji hans, Hlynur Þorsteinsson, varð svo…Lesa meira

true

Hafa stundað handavinnu allt sitt líf

Systurnar Elín, María og Kristrún Sigurbjörnsdætur á Akranesi hafa frá unga aldri verið afkastamiklar handavinnukonur í frístundum sínum. Elín starfaði lengst af sem ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, María var bankastarfsmaður á Akranesi, en þær eru báðar hættar að vinna og njóta eftirlaunaáranna, en Kristrún er yngst og starfar sem kennari við Brekkubæjarskóla á…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs brettir upp ermar

Ákveðið hefur verið að fyrsta verkefni Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs í uppbyggingu gönguleiða verður að hefja merkingu og mögulega bæta hina vinsælu gönguleið upp á Hafnarfjall. „Í ljósi þess að nú liggja fyrir leyfi frá landeigendum, Hvalfjarðarsveit og öðrum hagaðilum, þá ætlar Stikunefnd FFB að hefjast handa við undirbúning á stikun og að fjarlægja girðingu við og…Lesa meira

true

Næturlokanir framundan í göngunum

Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna vinnu og þrifa frá miðnætti til kl. 06:30 næstu þrjár nætur, aðfararnætur miðvikudags, fimmtudags og föstudags. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar. Hjáleið verður um Hvalfjarðarveg á meðan.Lesa meira