Fréttir

true

Guðni fékk myndarlegan hæng í Norðurá

Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgun. Guðna Ágústssyni fyrrverandi þingmanni og ráðherra var boðið að egna flugu fyrir þann silfraða. Ekki leið löng stund þar til hann var búinn að setja í fisk og skömmu síðar var 14 punda hængur kominn á land. Þetta var jafnframt fyrsti laxinn sem Guðni veiðir á flugu.…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um hálft prósent á hálfu ári

Þann 1. júní síðastliðinn voru íbúar á Vesturlandi 16.792 og hafði fjölgað um 87, eða um 0,5%, frá 1. desember síðastliðnum. Á þessu sex mánaða tímabili hefur íbúum á Akranesi fjölgað um 97, í Snæfellsbæ um 20, í Hvalfjarðarsveit um 6, í Helgafellssveit um 5 og í Skorradalshreppi um einn. Íbúum í Grundarfirði fækkaði hins…Lesa meira

true

Breið og Lazy Town fengu styrki úr Lóu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, greindi síðasta mánudag frá 29 verkefnum sem fengu úthlutun úr verkefninu Lóu sem styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingu á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni…Lesa meira

true

Guðni mun kasta fyrir fyrstu laxana

Ávallt ríkir nokkur eftirvænting eftir hverjum er boðið að kasta fyrir fyrstu laxana þegar Norðurá í Borgarfirði er opnuð fyrir veiði. Í hugum margra markar sú opnun formlegt upphaf laxveiðitímabilsins hverju sinni. Ýmsum þjóðþekktum einstaklingum hefur hlotnast þessi heiður í gegnum tíðina. Nægir að nefna söngvarann Helga Björns í fyrra. Samkvæmt traustum heimildum Skessuhorns er…Lesa meira

true

Vordagar í grunnskólunum

Grunnskólarnir á Akranesi halda svokallaða Vordaga um þessar mundir. Má sjá grunnskólakrakka um allan bæ í alls kyns verkefnum og leikjum. Þeir Sigurður, Ísleifur, Benedikt og Guðjón, nemendur í sjöunda bekk í Grundaskóla, komu við hjá Skessuhorni í morgun. Þeir voru í ratleik en hluti af leiknum var að finna stærsta og besta landsbyggðarblaðið sem…Lesa meira

true

Tónlistarveisla framundan hjá Kalman listafélagi

Listafélagið Kalman efnir til tónlistarveislu í upphafi júnímánaðar. Fram undan eru þrennir áhugaverðir tónleikar. Laugardaginn 5. júní kl. 20 stíga á svið þeir Örn Árnason leikari og söngvari, Óskar Pétursson söngvari og Jónas Þórir píanóleikari. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Sjómannssonurinn, bóndadurgurinn og strákurinn af mölinni.“ Þeir félagar flytja skemmtivísur, syngja að hætti Álftagerðisbræðra og svo bregða…Lesa meira

true

Stórefnileg með veiðistöngina

Við fórum í Fiskilækjarvatn fyrir skömmu og dóttirin landaði þremur fiskum,“ sagði Reynir M Sigmundsson er við spurðum frétta af silungsveiði á svæðinu. Eftir að hlýna tók í veðri hefur veiðin lagast mikið víða í vötnum landsins og fiskurinn farið að gefa sig meira. ,,Helga Dís er fimm ára og landaði hún þremur fiskum; tveimur…Lesa meira

true

Stýrimaður og smábátasjómaður á Akranesi

Kristófer Jónsson er sjómaður á Akranesi. Hann er annar stýrimaður á einu af skipum Brims, Akurey, og frítímann notar hann til grásleppu- og strandveiða. Kona hans er Anna Ósk Sigurgeirsdóttir og saman eiga þau þrjár dætur, Dagnýju Líf 16 ára, Rakel Söru á 12 ári og Aldísi Ýr sem er á 10 ári. Blaðamaður hitti…Lesa meira