Fréttir

true

Tónlistarveisla framundan hjá Kalman listafélagi

Listafélagið Kalman efnir til tónlistarveislu í upphafi júnímánaðar. Fram undan eru þrennir áhugaverðir tónleikar. Laugardaginn 5. júní kl. 20 stíga á svið þeir Örn Árnason leikari og söngvari, Óskar Pétursson söngvari og Jónas Þórir píanóleikari. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Sjómannssonurinn, bóndadurgurinn og strákurinn af mölinni.“ Þeir félagar flytja skemmtivísur, syngja að hætti Álftagerðisbræðra og svo bregða…Lesa meira

true

Stórefnileg með veiðistöngina

Við fórum í Fiskilækjarvatn fyrir skömmu og dóttirin landaði þremur fiskum,“ sagði Reynir M Sigmundsson er við spurðum frétta af silungsveiði á svæðinu. Eftir að hlýna tók í veðri hefur veiðin lagast mikið víða í vötnum landsins og fiskurinn farið að gefa sig meira. ,,Helga Dís er fimm ára og landaði hún þremur fiskum; tveimur…Lesa meira

true

Stýrimaður og smábátasjómaður á Akranesi

Kristófer Jónsson er sjómaður á Akranesi. Hann er annar stýrimaður á einu af skipum Brims, Akurey, og frítímann notar hann til grásleppu- og strandveiða. Kona hans er Anna Ósk Sigurgeirsdóttir og saman eiga þau þrjár dætur, Dagnýju Líf 16 ára, Rakel Söru á 12 ári og Aldísi Ýr sem er á 10 ári. Blaðamaður hitti…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Stokkseyri

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð á Stokkseyri í gærkvöldi þegar þeir léku við heimamenn og unnu nauman en sterkan sigur, 3-2. Sigurjón Ari Guðmundsson kom Skallagrími yfir eftir 18 mínútna leik og þar við sat í hálfleik. Stokkseyringar jöfnuðu í byrjun síðari hálfleiks en sú sæla stóð ekki lengi yfir því (Super) Mario Miguel Pascual skoraði…Lesa meira

true

Snæfell dregur lið sitt úr Dóminosdeildinni

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Snæfells í Stykkishólmi hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni fyrir komandi tímabil í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominosdeildinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem körfuknattleiksdeild Snæfells sendi frá sér í gær. Ákveðið hefur verið að skrá liðið í fyrstu deild fyrir komandi leiktíð. „Ástæðan er [erfiður] rekstur sem og að máttarstólpar…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Líf og fjör á Langasandi í dag

Von er á nemendum a.m.k. þriggja skóla á Langasand á Akranesi í dag, en vordagar standa nú sem hæst í skólunum. Þá er jafnan leitast við að gera eitthvað skemmtilegt og njóta náttúrunnar. Snemma í morgun voru nemendur 1.-6. bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi mættir á sandinn. Hafist var handa við sandkastalakeppni og skipt upp í…Lesa meira

true

„Netið, sjónvarpið og betra fæði hefur bætt aðbúnað okkar“

Sigurður Ólafur Þorvarðarson er uppalinn Grundfirðingur og ólst upp í miklu návígi við sjóinn og sjávarútveginn. Faðir hans var Þorvarður Lárusson útgerðarmaður og skipstjóri. Allir bræður Óla Sigga fóru ungir til sjós og fjórir af fimm bræðrum hans fóru í Stýrimannaskólann. „Ég var 15 ára þegar ég byrjaði á skaki á Lunda SH-1 sem faðir…Lesa meira

true

Söfn og sýningar í Borgarbyggð taka höndum saman

Í sumar ætla þrjár menningarstofnanir í Borgarfirði, á vettvangi safna og sýninga, að bjóða upp á sameiginlegan aðgangseyri. Þetta eru Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri, Safnahús Borgarfjarðar í Borgarnesi og Snorrastofa í Reykholti. Gestum verður boðið upp á að borga hóflega upphæð, eða 2000 krónur, fyrir aðgang að öllum þremur söfnum með einu korti sem mun…Lesa meira

true

Varð skipstjóri 26 ára gamall – þriðji ættliður með skipið

Sandarinn Magnús Darri Sigurðsson er skipstjóri á neta- og dragnótarbátnum Magnúsi SH sem gerður er út frá Rifi á Snæfellsnesi. Magnús er þriðji ættliður skipstjóra í fjölskyldunni og tók nýlega við stýrinu af föður sínum en sjálfur var Magnús einungis 26 ára gamall þegar hann vann sér inn skipstjóratitilinn. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á…Lesa meira