Fréttir

true

Slakað á sóttvörnum í skólum

Með nýjustu tilslökunum heilbrigðisráðherra á sóttvarnareglum, sem gilda frá og með deginum í dag, falla úr gildi sérstakar takmarkanir um skólastarf sem í gildi hafa verið undanfarna mánuði. Sömu reglur munu því gilda um skólastarf og almennt í samfélaginu en verulega verður dregið úr samkomutakmörkunum í nýrri reglugerð. Meðal þeirra breytinga á sóttvarnaráðstöfunum sem helst…Lesa meira

true

Rúmur helmingur sveitarstjórnarfólks upplifir áreiti

Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á föstudaginn kynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, helstu niðurstöður könnunar um reynslu sveitarstjórnarfulltrúa af áreiti. Niðurstöðurnar eru hluti af stærri rannsókn, sem Dr. Eva Marín Hlynsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, vinnur að ásamt samstarfsfólki á starfsaðstæðum og viðhorfum kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að ríflega…Lesa meira

true

Æfðu í Skorradal með nýrri skjólu

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var við æfingar í Skorradal í gær. Tilefnið var að nú hefur gæslan eignast nýja slökkviskjólu, sem hengd er í þyrluna. Kemur hún í stað þeirrar sem eyðilagðist í gróðureldunum í Heiðmörk fyrir skömmu. Í skjóluna er tekið vatn og hægt að dreifa yfir elda á jörðu niðri. Pétur Davíðsson á Grund tók…Lesa meira

true

Hundi komið til bjargar

Rétt fyrir hádegi á laugardaginn voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til aðstoðar við hund sem komið hafði sér í sjálfheldu í Glymsgili í Hvalfirði. Hundurinn hafði hrapað fram af gilbrúninni en fólk á vettvangi heyrði til hans. Nærstaddir björgunarmenn fóru strax á vettvang og náðu að staðsetja hundinn. Fleira björgunarsveitarfólk fór síðan á vettvang…Lesa meira

true

Besti leikur Víkings þrátt fyrir tap

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Kórdrengjum 1:3 í leik í Lengjudeildinni í fótbolta sem fram fór í Ólafsvík á föstudagskvöldið. Þrátt fyrir tapið lék liðið sinn besta leik það sem af er móts. Víkingur kom ákveðinn til leiks og fékk upplögð tækifæri til að ná forystunni m.a. skot í stöng og rétt yfir markið frá Harley…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu gegn KR

Kvennalið ÍA lék á föstudagskvöldið gegn kvennaliði KR í Lengjudeild kvenna, í leik sem fram fór á Meistaravöllum í vesturbæ Reykjavíkur. Heimakonur í KR náðu forystunni á 14. mínútu með marki frá Guðmundu Brynju Óladóttur en Sigrún Eva Sigurðardóttir jafnaði metin fyrir Skagakonur á 42. mínútu og staðan því 1:1 í hálfleik. Eftir um tíu…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Skagamanna gegn HK

Skagamenn unnu afar mikilvægan 3:1 sigur gegn HK í Kórnum í Kópavogi í gærkvöldi þegar liðin áttust við í Pepsí Max deildinni í fótbolta. Í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar er afar mikilvægt að sigra liðin sem eru á svipuðum slóðum og það gerðu Skagamenn örugglega. Heimamenn í HK fengu draumabyrjun og náðu forystunni…Lesa meira

true

Káramenn töpuðu í uppbótartíma í Sandgerði

Káramenn voru nálægt því að landa stigi þegar þeir léku gegn Reyni frá Sandgerði í leik sem fram fór syðra í gær. Káramenn byrjuðu leikinn vel og Andri Júlíusson kom þeim yfir með marki úr vítaspyrnu á 33. mínútu leiksins. En Kristófer Páll Viðarsson jafnaði metin fyrir heimamenn í Sandgerði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þannig…Lesa meira

true

Slaka töluvert á samkomutakmörkunum

Stjórnvöld hafa ákveðið að slakað verði á samkomutakmörkunum frá og með næsta þriðjudegi, 25. maí. Fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 150 manns en tveggja metra nándarmörk verða enn meginreglan, þó fara þau niður í einn metra á veitingastöðum, sitjandi viðburðum, í skólastarfi og á sund- og baðstöðum. Þá er vakin athygli á að núgildandi reglur…Lesa meira

true

Fóru skáldaferð á Akranes

Nemar í meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands fara á hverju vori í svokallaða skáldaferð þar sem farið er út fyrir höfuðborgina yfir eina helgi og unnið í ritsmiðju með vel völdum rithöfundi. Að þessu sinni var förinni heitið á Akranes með Bergþóru Snæbjörnsdóttur en fyrsta skáldsaga hennar, Svínshöfuð, sló heldur betur í gegn árið…Lesa meira