Fréttir

true

Ofsahræðsla dýra vegna flugelda

Nú þegar áramót eru framundan er vert að minna á að þessi tími árs er alls ekki í sérlegu uppáhaldi hjá skepnum. Í ítarlegri tilkynningu sem Matvælastofnun hefur sent frá sér eru dýraeigendur hvattir til að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotum stendur. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta…Lesa meira

true

Hlaupið frá gamla árinu á morgun

Hið árlega gamlársdagshlaup ÍA fer fram á Akranesi á morgun, 31. desember. Hlaupið verður af stað frá Akratorgi kl. 13:00 og hægt er að velja um tvær vegalengdir að þessu sinni; 2 km og 5 km. Sú hefð hefur skapast í tengslum við hlaupið að hlaupararnir klæðast margir hverjir skrautlegum og skemmtilegum búningum. Undirstrikar það…Lesa meira

true

Stofnvísitala þorsks er nú svipuð og 2012

„Stofnvísitala þorsks hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haustmælingarinnar og er nú svipuð því sem hún var árið 2012. Stofnvísitölur ýsu og ufsa lækkuðu frá fyrra ári eftir að hafa farið hækkandi frá 2014. Vísitölur gullkarfa, skarkola og löngu eru háar miðað við árin fyrir aldamót. Vísitölur djúpkarfa,…Lesa meira

true

Le Boreal er væntanlegt tvisvar sinnum í sumar

Skemmtiferðaskipið Le Boreal er væntanlegt til Akraness á komandi sumri. Tvær komur skipsins hafa verið bókaðar, annars vegar 30. júlí og hins vegar 13. ágúst. Skipið er gert út af franska fyrirtækinu Pontant, en það hefur alls fimm skemmtiferðaskip í sínum flota. Skipið var smíðað árið 2010, er 142 metrar á lengd, 18 metrar á…Lesa meira

true

Gert að greiða dánarbúi fimm milljónir

Sambýliskona manns sem lést á síðasta ári var dæmd til að greiða dánarbúi hans fimm milljónir króna, sem millifærðar höfðu verið inn á reikning hennar skömmu fyrir andlát mannsins. Dómurinn taldi manninn ekki hafa verið í ástandi til að gera slíkar fjárhagslegar ráðstafanir, en konan bar því við að þau hefðu gert mér sér samkomulag…Lesa meira

true

Sveitarfélög hætta aðkomu að landsbyggðarstrætó

Vegagerðin mun nú um áramót taka við öllum landsbyggðarleiðum Strætó. Samtök sveitarfélaga á landsbyggðinni vildu ekki halda rekstrinum áfram enda tap verið á öllum leiðum, en verst hefur nýtingin á vögnunum verið á Vesturlandi og Vestfjörðum. Búist er við því að Vegagerðin bjóði leiðirnar út á næsta ári en óvíst er hvort samstarfið við Strætó…Lesa meira

true

Mjólk hækkar um 2,5%

Verðlagsnefnd búvara tók skömmu fyrir jól ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á mjólk og mjólkurafurðum. Eftir verðbreytingar nú um áramótin hækkar lágmarksverð mjólkur til bænda um 2,5%, úr 90,48 kr. í 92,74 kr. lítrinn. Heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur hækkar sömuleiðis um 2,5%. „Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana…Lesa meira

true

Andlát – Vilhjálmur Einarsson skólameistari

Vilhjálmur Einarsson fyrrum skólameistari og íþróttakappi lést á Landspítalanum í Reykjavík í gær, 85 ára að aldri. Vilhjálmur var einn fremsti þrístökkvari í heimi á árunum 1956-1962. Frægasta afrek sitt vann Vilhjálmur þegar hann vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956 og var um leið fyrstur Íslendinga til að komast á…Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarsveitanna að hefjast

Björgunarsveitir á Vesturlandi reiða sig á sölu flugelda fyrir áramót til að fjármagna starfsemi sína. Nú er sala þeirra ýmist farin af stað eða hefst á morgun, mánudag. Hjá Björgunarfélagi Akraness fer salan sem fyrr fram í húsnæði sveitarinnar við Kalmansvelli 2. Þau Björn Guðmundsson og Birna Björnsdóttir stóðu vaktina þegar ljósmyndari Skessuhorns leit þar…Lesa meira

true

Kjöri íþróttamanns Akraness lýst á þrettándanum

Mánudaginn 6. janúar næstkomandi verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akraness árið 2019. Athöfnin fer sem fyrr fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum að lokinni þrettándabrennu. Rafrænni kosningu um kjörið lýkur í dag. Valið fer fram með þeim hætti að 9 manna nefnd greiðir atkvæði í kjörinu en auk þeirra er eitt atkvæði sem valið er…Lesa meira