Fréttir

true

Lionsmenn seldu miða í leikfangahappdrættinu

Félagar í Lionsklúbbi Ólafsvíkur gengu í hús um síðustu helgi og seldu súkkulaðidagatöl og happadrættismiða í hinu vinsæla leikfangahappadrætti Lionsklúbbsins sem dregið er í á aðfangadagsmorgun. Þegar lionsmenn ganga í hús og selja dagatölin og miðana færa þeir bæjarbúum í Ólafsvík rafhlöður í reykjskynjara í samstarfi við TM. Þetta er þó ekki það eina sem…Lesa meira

true

Lilja Björg tekur tímabundið við starfi sveitarstjóra

Lilja Björg Ágústsdóttir tekur tímabundið við starfi sveitarstjóra í Borgarbyggð. Þetta var samþykkt á fundi byggðarráðs í morgun. Fram kemur í tilkynningu að meirihluti byggðarráðs hafi ákveðið að ganga til samninga við Lilju Björgu, forseta sveitarstjórnar, um að gegna starfi sveitarstjóra tímabundið. „Lilja Björg mun taka við starfinu á meðan unnið er að ráðningarferli nýs…Lesa meira

true

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram föstudaginn 13. desember frá klukkan 13-17 að Þjóðbraut 13, þar sem Vínbúðin var áður til húsa. Tekið verður á móti umsóknum alla virka daga frá 22. nóvember til 3. desember frá kl. 11-13 í síma 859-3000 (María) og 859-3200 ( Svanborg ). Alllir umsækjendur þurfa að skila inn staðgreiðsluskrá sem…Lesa meira

true

Skipulagsstofnun staðfesti aðalskipulagsbreytingu

Skipulagsstofnun staðfesti 22. nóvember síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna Vestfjarðavegar milli Bjarkalundar og Skálaness. Breytingin felur í sér nýja legu Vestfjarðavegar frá Bjarkalundi að Skálanesi um Teigsskóg og nánari útfærslu á þverunum yfir Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð auk efnistökusvæða vegna lagningar vegarins. Um er að ræða veglínu sem er kölluð Þ-H leið. Einnig er…Lesa meira

true

Útvarp Akranes í loftið á morgun

Útsendingar Útvarps Akraness hefjast á morgun, föstudaginn, 29. nóvember, og standa yfir þar til fyrsta sunnudag í aðventu, 1. desember. Að vanda er það Sundfélag Akraness sem stendur fyrir útvarpsútsendingum fyrstu helgina í aðventu, eins og félagið hefur gert frá árinu 1988. Er útvarpið þannig fyrir löngu orðinn árviss boðberi jólahátíðarinnar á Akranesi. Útvarp Akraness…Lesa meira

true

Alexandrea Rán lauk keppnisárinu með nýju Íslandsmeti

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir setti enn eitt Íslandsmetið í bekkpressu á KRAFT ÍM ungmenna og öldunga í klassískum kraftlyftingum á Akureyri 16. nóvember síðastliðinn. Alexandrea setti sitt fyrsta met í bekkpressu í október á síðasta ári þegar hún lyfti 62,5 kg í -57 kg flokki junion kvenna. Núna gerði hún sér lítið fyrir og lyfti…Lesa meira

true

Klassík á laugardegi – Tónleikar í Vinaminni á laugardaginn

Dimitri Þór Ashkenazy klarínettuleikari, Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Tómas Guðni Eggertsson píanóleikari hemisækja Akranes, laugardaginn 30. nóvember kl. 14. Þeim til fulltingis verður Kór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar. Flutt verður fjölbreytt dagskrá þar sem m.a. má hlýða á tónlist eftir Franz Schubert, J. S. Bach, Leonard Bernstein og Wolfgang Amadeus Mozart. „Dimitry Þór…Lesa meira

true

Strákarnir úr leik í Unglingadeildinni

Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skallagríms í 2. flokki karla er fallið úr leik í Unglingadeild UEFA, eftir 4-1 tap gegn Derby County í Englandi í gær. Fyrri leik liðanna hér heima lauk með 2-1 sigri Englendinganna. Heimamenn voru mun öflugri í fyrri hálfleik og skoruðu þrjú mörk fyrstu 45 mínútur leiksins. Skagamönnum gekk mun betur í seinni…Lesa meira

true

Framkvæmdir komnar á fullt við Norðurgarð

Framkvæmdir við stækkun Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn er komnar á fullan skrið. Nú er mikil umferð vörubíla og vinnuvéla um hafnarsvæðið og fólk því beðið um að draga úr bryggjurúntum á meðan. Þessa dagana er verið að keyra á staðinn stórgrýti úr Grafarnámu. Það er Borgarverk sem er verktaki við framkvæmdirnar.Lesa meira

true

Eitt kort miðlar upplýsingum um ferðaaðstæður

Safetravel hefur tekið í notkun nýjung í miðlun upplýsinga um ferðaaðstæður. Nú er dregið úr flækjustigi með því að þurfa ekki lengur að beina ferðamönnum á nokkra staði til að afla sér upplýsinga um veður og færð, en eitt nýtt Íslandskort á að auðvelda ferðamönnum að sækja á því upplýsingar um t.d. færð á vegum,…Lesa meira