Fréttir

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf. með lotunúmerinu 215-19-43-1-06 vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið vinnur nú að innköllun úr verslunum og frá neytendum. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vöruheiti: Ali, Bónus, Krónan og FK. Framleiðandi: Matfugl, Lotunúmer: 215-19-43-1-06 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar) með pökkunardag 25.11, 26.11 og 27.11. Dreifing:…Lesa meira

true

Hátíð í Reykholti á fullveldisdegi

Snorrastofa og Reykholtskirkja taka höndum saman og fagna fullveldisdegi á fyrsta sunnudegi í aðventu, 1. desember næstkomandi. Hátíðin hefst með messu í kirkjunni klukkan 14 og hátíðarkaffi að henni lokinni í safnaðar- og sýningarsal. Klukkan 16 býður Snorrastofa til fyrirlestrar dr. Auðar Hauksdóttur fyrrverandi forstöðumanns Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um viðhorf Dana til íslenskrar  tungu og…Lesa meira

true

Útvarp Akranes ómar um helgina

Árvissar útsendingar Útvarps Akraness hófust kl. 13:00 í dag og standa yfir þar til síðdegis á sunnudag. Sem fyrr er það Sundfélag Akraness sem á veg og vanda að útvarpsútsendingum fyrstu helgina í aðventu. Eins og síðustu ár voru það Hlédís Sveinsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson sem riðu á vaðið með fyrsta þáttinn, þar sem…Lesa meira

true

Rammíslensk bjúgnahátíð í Langaholti

Þjóðlegur matur samhliða íslenskri gestrisni er blanda sem sjaldan svíkur. Á því var engin undantekning síðastliðið laugardagskvöld þegar árleg bjúgnaveisla var haldin í Langaholti í Staðarsveit. Þemað var bjúgu í sinni víðustu mynd, sem matreidd voru á fjölbreyttan veg. Óskar veitingamaður, Keli vert, Rúna, Sunna Dögg og þeirra starfsfólk höfðu lagt sig í líma við…Lesa meira

true

„Barátta gegn einmanaleika á að vera hluti af lýðheilsustefnu“

Bjarki Þór Grönfeldt fjallaði um hættuna af því að einstaklingar einangrist í rafrænum heimi   Á ráðstefnu sem fram fór í tilefni fimmtíu ára afmælis Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fyrr í þessum mánuði, fluttu nokkrir ungir Vestlendingar ávörp og ræddu framtíðarsýn þeirra fyrir landshlutann. Meðal þeirra var Bjarki Þór Grönfeldt frá Brekku í Norðurárdal. Bjarki…Lesa meira

true

Sagði amfetamín vera matarsóda

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði bifreið sem ekið var um Vesturlandsveg kl. 9:00 á sunnudagsmorgun. Var bifreiðin stöðvuð við almennt eftirlit. Höfð voru afskipti af farþega bifreiðarinnar, sem heimilaði leit í tösku. Þar fannst plastílát með hvítu efni. Farþeginn sagði að það væri matarsódi en þegar lögregla kannaði málið kom í ljós að efnið gaf svörun…Lesa meira

true

Syngja í Hörpu á fullveldisdaginn

Samkórinn Hljómur, sem er kór FEBAN á Akranesi, leggur í vikunni land undir fót og stefnir á að halda tónleika í Eldborgarsal Hörpunnar í Reykjavík á fullveldisdaginn sunnudaginn 1. desember. Þar mun kórinn syngja ásamt sjö öðrum kórum af landinu. Lárus Sighvatsson er stjórnandi Hljóms: „Á haustdögum komu skilaboð frá Garðari Cortes um að hann…Lesa meira

true

Gestirnir stjórnuðu ferðinni

Skallagrímur tapaði gegn Álftanesi, 88-102, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Jafnt var á með liðunum framan af fyrsta leikhluta. Álftnesingar skoruðu fyrstu stigin en Skallagrímsmenn leiddu um miðbik fjórðungsins. Þá tóku gestirnir góða rispu og leiddu með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, 13-19. Álftnesingar voru…Lesa meira

true

Fræddust um eldvarnir og starf slökkviliðsins

Eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og slökkviliða landsins stendur nú yfir. Sem fyrr fræða slökkviliðsmenn börn í 3. bekk víða um land um um eldvarnir og starf slökkviliðanna. Í gærmorgun mætti vel á sjöunda tug nemenda í 3. bekk Grundaskóla í heimsókn á slökkviliðsstöðina á Akranesi. Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, tók á…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á Matarhátíð á Hvanneyri

Matarmarkaður, matarhandverk, úrslit í matarkeppni og matur beint frá býli voru meginþemu á fjölmennri Matarhátíð sem fram fór á laugardaginn á gömlu útihúsatorfunni á Hvanneyri. Ítarlega er fjallað um dagskrána í Skessuhorni sem kom út í dag. Opið hús var í Landbúnaðarsafni Íslands og Ullarselinu í gamla fjósinu en auk þess kynning á sigurvegurum í…Lesa meira