Fréttir

true

Bogfimisamband Íslands stofnað

Nýtt sérsamband innan ÍSÍ, Bogfimisamband Íslands, var stofnað í gær á degi fullveldisins í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Með stofnun félagsins eru sérsambönd ÍSÍ orðin 33 talsins. Bogfimiíþróttin á Íslandi á rætur sínar að rekja til íþróttafélaga um íþróttir fatlaðra og fyrstu skipulögðu æfingar í bogfimi hér á landi voru hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Bogfimi…Lesa meira

true

Mótmæla vinnubrögðum við ráðningu sveitarstjóra

„Fulltrúar Framsóknarflokksins í Borgarbyggð hafa óskað eftir því að Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið rannsaki lögmæti ráðningar sveitarstjóra í Borgarbyggð. Fulltrúar Framsóknarflokksins gera athugasemdir við það að fulltrúar í sveitarstjórn hafi fyrst fengið upplýsingar um ráðningu Lilju Bjargar Ágústsdóttir sem sveitarstjóra frá 1. desember í fjölmiðlum.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fulltrúar Framsóknarflokks í sveitarstjórn sendu…Lesa meira

true

Tap eftir góðan fyrri hálfleik

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn sterku liði Vestra, 95-77, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var vestur á Ísafirði. Snæfellingar höfðu undirtökin framan af fyrri hálfleik, en í þeim síðari tóku heimamenn öll völd á vellinum og tryggðu sér sigurinn. Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir tóku forystuna snemma…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Vesturlandsslaginn

Skallagrímur og Snæfell mættust í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Borgarnesi. Borgnesingar mættu til leiks eftir góðan sigur gegn Grindavík en Hólmarar töpuðu síðasta leik á heimavelli gegn Íslandsmeisturum Vals. Eins og alltaf þegar þessi lið mætast var um hörkuleik að ræða. Snæfellskonur byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina í…Lesa meira

true

Viðbygging Dvalarheimilisins Fellaskjóls vígð ið hátíðlega athöfn

Laugardaginn 30. nóvember var nýja viðbyggingin við Dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði vígð og formlega tekin í notkun. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur í Grundarfirði, vígði og blessaði viðbygginguna áður en Hildur Sæmundsdóttir fór stuttlega yfir sögu dvalarheimilisins. Þá þakkaði hún öllum sem lagt hafa hönd á plóg til að láta þetta verða að veruleika. Eftir stutt…Lesa meira

true

Margir að ljúka doktorsnámi við HÍ

Metfjöldi doktora, eða 95, hefur brautskráðst frá Háskóla Íslands á síðustu tólf mánuðum og var þessum stóra hópi fagnað á árlegri Hátíð brautskráðra doktora sem fram fór í Hátíðasal skólans á sjálfan fullveldisdaginn. Viðstaddur var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, en þetta er í níunda sinn sem Háskólinn heiðrar doktora frá skólanum með þessum hætti.…Lesa meira

true

Styrkir til verkefna á svið umhverfis- og auðlindamála

Umhverfisráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og rekstrarstyrki til félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála. Ráðuneytið veitir árlega styrki til verkefna sem falla undir málefnasvið þess. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna á vegum aðila utan ríkisstofnana. Heildarfjárhæð til úthlutunar er 56 m.kr. en hver einstakur styrkur getur…Lesa meira

true

Nýjar bækur kynntar og aðventa lesin af sjálfboðaliðum

Fimmtudaginn 5. desember næstkomandi verður opin aðventudagskrá í Safnahúsinu í Borgarnesi, þar sem fólki er boðið að koma við og hlýða á bóklestur. Dagskráin hefst kl. 17.00 með því að tveir höfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum. Það eru þau Una Margrét Jónsdóttir sem les úr bók sinni Gullöld revíunnar og Þorbergur Þórsson sem…Lesa meira

true

Saumastofan sýnd í Logalandi í kvöld og Dalabúð annað kvöld

Leikfélag Hólmavíkur hefur að undanförnu sýnt Saumastofuna eftir Kjartan Rangarsson í leikstjórn Skúla Gautasonar. Að venju fer leikfélagið í leikferð og sýnir Saumastofuna í Logalandi í Reykholtsdal í kvöld, laugardaginn, 30. nóvember kl. 20 og í Dalabúð í Búðardal á morgun, sunnudaginn 1. desember kl. 20. Saumastofan er eitt þekktasta verk Kjartans Ragnarssonar og er…Lesa meira

true

Fjölgað um fjögur varanleg hjúkrunarrými á Höfða

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Höfða dvalar- og hjúkrunarheimili á Akranesi varanlega rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkrunarrýmum sem þar hafa verið rekin tímabundið sem biðrými fyrir Landspítalann. Þessi fjögur biðrými á Höfða voru opnuð árið 2017 og ætluð fólki með gilt færnimat sem tilbúið var til útskrifar af Landspítala en bíður eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.…Lesa meira