Fréttir

true

Öflugri á lokamínútunum

Snæfellskonur unnu góðan sigur á Grindavík, 63-66, í hörkuleik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Grindavík í gærkvöldi. Heimaliðið hafði undirtökin lengi vel en í lokafjórðungnum sneru Snæfellskonur taflinu sér í vil og höfðu að lokum sigur. Snæfell hafði undirtökin í fyrsta leikhluta, komst mest níu stigum yfir en leiddi með þremur…Lesa meira

true

Creditinfo birtir lista yfir 36 fyrirmyndarfyrirtæki á Vesturlandi

Creditinfo veitti síðdegis í gær framúrskarandi fyrirtækjum hér á landi viðurkenningu fyrir góðan rekstur. Að þessu sinni verða 874 fyrirtæki verðlaunuð, en það er um 2% af öllum fyrirtækjum á Íslandi. Af þeim eru 36 fyrirtæki á Vesturlandi. Á meðfylgjandi lista eru þau fyrirtæki á Vesturlandi sem rata á lista Creditinfo að þessu sinni. Borgarverk…Lesa meira

true

Við flytjum á morgun

Á morgun, föstudaginn 25. október, verður skrifstofa Skessuhorns lokuð eftir hádegi. Þá verður starfsemin flutt á nýjum stað við Garðabraut 2A á Akranesi (áður skrifstofa Sjóvá), þar sem opnað verður mánudaginn 28. október. -fréttatilkynningLesa meira

true

Töpuðu á lokasprettinum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn KR, 68-83, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Gestirnir höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta og leiddu með átta stigum að honum loknum, 17-25. Þær juku forskotið í ellefu stig í upphafi annars fjórðungs en þá tók Borgarnesliðið heldur betur…Lesa meira

true

Hættir að sekta vegna nagladekkja

„Að gefnu tilefni þá viljum við taka það fram að við erum hættir að sekta ökumenn sem aka um á nagladekkjum,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Samkvæmt reglugerð má ekki aka á nagladekkjum fyrr en eftir 1. nóvember, en nú er gerð undantekning frá því í ljósi veðurs og færðar. „Við hvetjum alla…Lesa meira

true

Ævintýralega góður árangur strákanna í öðrum flokki ÍA

Strákarnir í 2. flokki Knattspyrnufélags ÍA gera það ekki endasleppt. Eftir að hafa gjörsigrað á Íslandsmótinu í sumar, annað árið í röð, var röðin komin að leikjum í Unglingadeild UEFA. Dróst liðið á móti Levadia Tallin frá Eistlandi. Fyrri leikur liðanna fór fram á Akranesi fyrr í haust og endaði með 4-0 sigri Skagamanna. Síðari…Lesa meira

true

Maximus trítlar í tónlistarskólann í dag

Sýningin Maximus Músikús trítlar í tónlistarskólanum verður sett upp í Tónbergi af nemendum og kennurum Tónlistarskólans á Akranesi ásamt sögumanni og myndasýningu í dag, fimmtudaginn 24. október. Maximus tónlistarmús er sköpunarverk Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar og í þessari sýningu er músin fjöruga stödd í tónlistarskóla og flækist þar á milli og segir frá…Lesa meira

true

Lagfæring fjölfarinna ferðamannavega brýnasta verkefnið

Kynnti rannsókn á ástandi vega og umferðarmannvirkja á Vesturlandi   Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi héldu fjóra kynningarfundi á Vesturlandi í síðustu viku þar sem vegamál og umferðaröryggi var til umræðu. Fundirnir voru haldnir í Stykkishólmi, Búðardal, Borgarnesi og Hvalfjarðarsveit. Á þeim hélt Ólafur Guðmundsson ráðgjafi erindi en hann hefur um árabil annast EuroRap öryggismat á…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma á Akranesi

Rafmagn fór af hluta Akraness upp úr klukkan níu í morgun. Í tilkynningu frá Veitum kom fram að það væri vegna háspennubilunar. Straumlaust var í rúman hálftíma. „Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Eignir hljómlistarsjóðs renna til Nikkolínu

Hljómlistarsjóður Steinars Guðmundssonar frá Hamraendum var stofnaður árið 1966, til minningar um Steinar Guðmundsson, sem var fæddur 29. júní 1938 og lést af slysförum í Reykjavík 15. des. 1965. Steinar fæddist og ólst upp á Hamraendum í Miðdölum. Þar var tónlist í hávegum höfð. Gróa Sigvaldadóttir húsfreyja söng í kirkjukórnum sem eiginmaður hennar, Guðmundur Baldvinsson…Lesa meira